Fréttablaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 31
„Láttu okkur fá það óþvegið!“
Já, við foreldrar viljum fá spark í rassinn.“ Ég var stödd á fjöl-mennum og líflegum fundi
foreldrafélags í leikskóla þegar
talið barst að snjallsímanotkun,
ekki barna heldur foreldra. Allir
voru á einu máli um að síminn
væri of fyrirferðarmikill í fjöl-
skyldulífinu og að fullorðið fólk
þyrfti að læra að umgangast hann
af hófsemi áður en hægt væri að
búast við því sama af börnum.
Það er ekki langt síðan margir voru
háðir annars konar litlum pökkum
á stærð við farsíma sem þeir skildu
aldrei við sig. Á þeim stóð ekki
Apple eða Samsung heldur Win-
ston eða Camel. Kannski er þess
ekki langt að bíða að það þyki
álíka heilbrigt að vera stöðugt með
símann á lofti og sígarettu. Til að
byrja með vissi fólk ekki mikið um
skaðsemi tóbaks en hvað vitum
við um áhrif þess að foreldrar séu
sítengdir netheimum?
Í bandarískri rannsókn var
fylgst með 55 fjölskyldum borða
á skyndibitastað.[1] 73% foreldra
voru með eða notuðu símann og
við það dró úr samskiptum við
börnin, foreldrarnir voru lengur
að bregðast við þeim og meira bar
á árekstrum (foreldrar hækkuðu
róminn, börnin hegðuðu sér illa).
Önnur rannsókn skoðaði sam-
skipti á milli foreldris og barns
sem voru tekin upp á myndbönd
og síðar greind.[2] Þar kom í ljós að
símanotkun foreldra dró úr yrtum
samskiptum um 20%, óyrtum um
tæp 40% og hvatningu til barns
um tæp 30%. Börnin sýndu meiri
einhæfni, minni hugsun og tak-
markaðri næmni í samskiptum.
Vakandi eftirtekt foreldris veitir
börnum öryggi og er þeim jafn
nauðsynleg og heimili. Áhugasamt
andlit gefur barni staðfestingu
á að það skipti máli og styrkir
sjálfsmynd þess. Umhyggjusöm
athygli dregur úr streitu og með
gagnkvæmum samskiptum lærir
barn að þekkja og skilja sjálft sig
og aðra. Venjist barn því að for-
eldrar gefi því athygli jafn fúslega
og morgunmat má búast við að
það þrói með sér öryggiskennd
sem gerir því kleift að gleyma sér í
leik og síðar í námi og starfi.
Vitanlega eru foreldrar ekki
alltaf stöðugt með augun á börn-
unum sínum, enda ekki ástæða
til, en öll börn þarfnast vakandi
athygli foreldra sinna á hverjum
degi. Hellings af henni. Þegar
venjan er að foreldri sé með annað
eða bæði augun á símanum fær
barn skilaboð um að það áhuga-
verða og mikilvæga gerist „annars
Sæunn
Kjartansdóttir
sálgreinir
Þegar venjan er að foreldri sé
með annað eða bæði augun á
símanum fær barn skilaboð um
að það áhugaverða og mikil-
væga gerist „annars staðar“.
staðar“. Með athyglina við skjáinn
verður foreldrið annars hugar,
finnst barnið vera truflandi og
ýtir því frá sér, ef ekki með orðum
þá með látbragði. Barn sem þarf
að jafnaði að hafa fyrir því að ná
athygli foreldra sinna verður meira
krefjandi því það er upptekið við
að halda þeim við efnið. Það má
líka búast við að það verði eirðar-
lausara, háðara, eigi erfiðara með
að sofna á kvöldin og vakni oftar
á nóttunni. Það hlýtur því að vera
tilraunarinnar virði fyrir foreldra
að hvíla símann í morgunsárið
og frá því að börnin koma heim
úr leikskólanum þangað til þau
eru sofnuð. Flest símtöl, póstar,
skilaboð og fréttir þola nokkurra
klukkutíma bið. Ef símalaus tími
reynist of strembinn gæti verið
forvitnilegt að spá í hvaða þörfum
símanum er ætlað að svara, hversu
vel honum tekst það og hvað það
mögulega kostar.
[1] Radesky JS, et al. Patterns of
mobile device use by caregivers
of young children during fast food
meals. Pediatrics 2014.
[2] Radesky JS, et al. Maternal
mobile device use during eating
encounters and mentalization.
JDBP 2018.
GEFÐU
VATN
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
Föstudag og
Laugardag
Opnunartímar
10:00 - 18:00
BLACK FRIDAY!
Af tölvuskjám
Allt að50%Afsláttur
Af fart
ölvum
Allt að
40.000
Afslátt
ur
19.-24. nóvember
Af yfir
1000
vörum
90%
Afslátt
ur
Allt að
23. nóvem
ber 2018 • B
lack Friday tilboð gilda 19-24. nóvem
ber eða m
eðan birgðir endast. B
irt m
eð fyrirvara um
breytingar, innsláttarvillur og m
yndabrengl
SÍÐAS
TI
SÉNS
Opið fös
tudag
og lauga
rdag
10-18
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 29F Ö S T u D A G u R 2 3 . n ó v e m B e R 2 0 1 8
2
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
7
D
-3
1
4
4
2
1
7
D
-3
0
0
8
2
1
7
D
-2
E
C
C
2
1
7
D
-2
D
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K