Fréttablaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 36
Það má sjá bætt vinnubrögð í nýrri samgönguáætlun því hér í fyrsta skipti er hún í sam- ræmi við samþykkta fjármálaáætlun frá Alþingi. Samgönguáætlun skal stefna að því að samgöngukerfi landsins myndi eina samþætta heild sem þjóni íbúum og atvinnulífi sem best. Auka á aðgengi fólks að vörum og þjónustu og bæta hreyfanleika. Meginstoðir Samgönguáætlun skal stefna að því að samgöngukerfi landsins myndi eina samþætta heild sem þjóni íbúum og atvinnulífi sem best. Það er ánægjulegt að sjá þær meginstoð- ir sem samgönguáætlun byggir á en lögð er áhersla á þær stóru stofn- brautir sem eru út úr höfuðborginni og nú á líka að klára grunnnet vega- kerfisins á Vestfjörðum. Strax á næsta ári skal hefja fram- kvæmdir við 2+1 veg á Kjalarnesi. Það er verkefni sem kallað hefur verið eftir og er mjög brýnt þar sem núverandi vegur uppfyllir engan veginn öryggiskröfur eða stendur undir þeirri gríðarlegu umferðar- aukningu sem orðið hefur á undan- förnum árum. Grunnnet á Vest- fjörðum er í forgangi og búið að tryggja fjármagn í uppbyggingu á vegum á Dynjandisheiði um leið og hönnun á vegstæðinu er lokið og sú leið hefur farið í gegnum umhverfis- mat. Einnig er búið að tryggja fjár- magn í uppbyggingu á vegum í Gufudalssveit. Þá geta Vestfirðingar loksins sagt að þeir búi við eðlilegt samgöngukerfi að mestu. Samvinnuleið í vegamálum Nokkuð hefur verið talað um um gjaldtöku vegna samgöngumann- virkja þegar horft er í einkafram- kvæmdir. Til að hraða samgöngu- framkvæmdum er unnið að útfærslu gjaldtökuleiða sem nýtist á ákveðn- um mannvirkjum. Slík gjaldtaka á einstaka mannvirkjum býr til svig- rúm í samgönguáætlun og hægt að ráðast fyrr í einstök verkefni en gert er ráð fyrir í áætluninni. Nú um mánaðamótin var hætt gjaldtöku við Hvalfjarðargöng en hún er dæmi um góða samvinnuleið í úrbótum á samgöngumálum. Í þessu sambandi gætum við nefnt jarðgöng og stórar framkvæmdir í kringum höfuðborg- ina eins og Sundabraut og tvöföldun Reykjanesbrautar. Tengivegir og vetrarþjónusta Um land allt býr fólk við malarvegi sem eiga að þjóna samgöngum til skóla og í vinnu dagsdaglega. Oft eru þetta vegir sem uppfylla ekki kröfur um burðarþol og alls ekki þeær öryggiskröfur sem nútíminn gerir til slíkra samgangna. Dæmi eru um að börn þurfi að heiman og heim að hristast á holóttum malar- vegi langan veg í skóla. Það skiptir miklu máli að lögð verði áhersla á að leggja bundið slitlag á tengi- vegi. Í þessu sambandi vil ég nefna Vatnsnesveg í Vestur-Húnavatns- sýslu. Þar hefur umferð stóraukist á undanförnum árum, enda má finna á þeirri leið eina ferðamannaperlu okkar sem er Hvítserkur. Núverandi vegur hefur ekki staðið undir þeirri miklu umferð og getur því ekki talist til nútíma samgöngumannvirkja. Í tillögu að nýrri samgönguáætlun er gert ráð fyrir að veita aukið fjár- magn til að styrkja og leggja bundið slitlag á umferðarlitla tengivegi. Það er vonandi að hægt verði að leggja aukna áherslu á tengivegina og vetrarþjónustu með því að horfa á samvinnuleiðir í nýframkvæmdum á stórum framkvæmdum. Samgöngur til framtíðar Halla Signý Kristjánsdóttir 7. þingmaður Norðvestur­ kjördæmis Þrjátíu ára stríðið í Evrópu 1618 til 1648 hefur stundum verið kallað fyrsta allsherjarstyrjöldin í sögu álfunnar. Stríðið var í byrjun trúarbragðastyrjöld á milli mótmæl- enda og kaþólskra í Þýskalandi og víðar, en snérist á endanum upp í afmarkaða og hefðbundna landvinn- inga konunga og fursta. Þessi styrjöld olli gríðarlegri eyðileggingu og miklu manntjóni í viðkomandi löndum eins og til dæmis í Þýskalandi og Tékklandi. Friður kenndur við bæina Münster og Osnabrück í Vestfalíu í Þýskalandi var saminn árið 1648. Nú eru liðin 400 ár síðan þrjátíu ára stríðið hófst. Á þeim tíma hafa styrj- aldir stórar og smáar geisað í álfunni nær sleitulaust og raðast upp eins og blóðsvartar perlur á bandi. En ef frá- talin eru Balkanstríð 20. aldar og stutt stríð með þátttöku Rússa má þó segja að friður hafi ríkt í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar árið 1945 eða í 73 ár. Er það lengsta friðartímabil og um leið tímabil framfara og hagsældar í Norður- og Mið-Evrópu síðan 1648. Sé litið á söguna getur Evrópa greinilega verið jarðvegur tíðra átaka og hörmunga þeim fylgjandi. Þetta langtíma friðartímabil er því raun- veruleg nýjung í sögu álfunnar. Og hverju er það að þakka? Samtökum þjóða eins og NATO og ESB? Eða eru einnig önnur öfl að verki s.s. þjóð- félagsbreytingar í heiminum öllum sem gera stríðsrekstur enn ófýsilegri en áður. Aðildarþjóðum NATO hefur með samheldni sinni tekist að verja landa- mæri aðildarríkjanna frá stofnun bandalagsins árið 1949. En það er Evrópusambandið, ESB, sem á mestan heiður af því að viðhalda samheldni og efnahagsframförum í Evrópuríkj- um undanfarna áratugi og með þeim hætti stuðlað að friði og stöðugleika. Og það gleymist alltof oft að ESB er að grunni til friðarbandalag. Árið 1951 undirrituðu utanríkis- ráðherrar nokkurra Evrópuríkja: Frakklands, Vestur-Þýskalands, Hol- lands, Ítalíu, Belgíu og Lúxemborgar hina svokölluðu Parísaryfirlýsingu sem varð upphaf Evrópska kola- og stálbandalagsins. Það varð síðar undan fari Evrópusambandsins eins og við þekkjum það í dag. Helsti hvatamaður þessa var utanríkisráð- herra Frakklands, Robert Schuman. Markmiðið með samkomulagi þess- ara ráðamanna var að forða Evrópu frá áframhaldandi stríðsrekstri í fram- tíðinni eins og þeim sem hrjáð hafði þjóðir álfunnar fram að þeim tíma. Þeir töldu að besta leiðin til að ná þessu markmiði væri náin samvinna og frelsi á sviði verslunar og þjónustu. Á Íslandi er í allri umræðu um hugsan- lega aðild að Evrópusambandinu hins vegar einblínt á hreinan fjárhagslegan ágóða fyrir Íslendinga. Íslandsmaður- inn spyr sig aldrei „Hvað getum við sem þjóð lagt af mörkum?“ Fyrsta janúar 2016 var heildar- íbúafjöldi landa Evrópusambandsins 510,1 milljón eða um það bil 6,9 pró- sent  af íbúafjölda heimsins. Það er reiknað með að þetta hlutfall lækki á næstu áratugum. Þess vegna er mikilvægt að Evrópuþjóðir standi þétt saman og láti ekki sundrungaröfl ýmiss konar veikja eða beinlínis eyði- leggja samstarfið. Pútín, forseti Rúss- lands, Donald Trump, forseti Banda- ríkjanna, og fleiri af sama sauðahúsi eru iðnir við að grafa undan alþjóða- stofnunum ýmiss konar, oft undir formerkjum þjóðernisstefnu og lýð- skrums. Þeir beina spjótum sínum sérstaklega að Evrópusambandinu með lúmskum áróðri og lygum. Íslendingar, sem eru fámennir, verða að átta sig á því hvar þeim er best borgið í ölduróti heimsmálanna. Það er örugglega ekki í faðmi ein- stakra lýðskrumara – í félagsskap manna og kvenna eins og Trumps, Pútíns, Le Pen, Nigels Farage og fleiri og fleiri og fleiri. Stríð og friður í Evrópu frá fyrri hluta 17. aldar Ingimundur Gíslason augnlæknir Nýsköpun í atvinnulífinu er iðulega fagnað og ýtt undir frekari þrekvirki á þeim vettvangi til að kalla fram örari þróun bæði í tækni, viðskiptum og þjónustu. Til eru ótal sjóðir þar sem nýsköpunarfyrirtækin geta sótt styrki til ákveðinna verkefna bæði hjá hinu opinbera og fjárfestum. Við Íslendingar erum óspör á hvatn- inguna og hrósið í garð þeirra sem reyna að finna nýjar leiðir til að gera líf okkar allra betra. En þegar kemur að nýsköpun í heilbrigðismálum þá breytist allt. Þar er lítill vilji til þess að sjá ein- staklinga finna nýjar leiðir til að gera hlutina, skara fram úr og berj- ast fyrir hönd þeirra sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda. Enn fremur virðist sem hið opinbera leggi heldur steina í götu þeirra sem berjast af hugsjón í heilbrigðisgeir- anum, til dæmis með því að skera niður fjárveitingar til þeirra. Þannig er málum háttað varðandi GET geðheilbrigðisteymi Hugarafls, samtök notenda í geðheilbrigðis- þjónustu sem nú hafa misst fjárveit- ingu sína frá ríkinu. Auður Axels- dóttir stofnaði Hugarafl árið 2003, ásamt fjórum öðrum sem höfðu reynslu af geðröskunum. Hugar- afl hefur unnið þrekvirki á síðustu fimmtán árum og lagt áherslu á for- varnir, uppbyggingu í bataferli og endurhæfingu. Starfið hefur breytt og bætt íslenskt heilbrigðiskerfi þann tíma sem það hefur starfað. Notkun hugtaka líkt og bati og vald- efling eru nú almennt notuð innan geðheilbrigðiskerfisins en þau þekktust vart þegar starf Hugarafls hófst. Þá hefur Auður verið heiðruð fyrir störf sín og sæmd fálkaorðunni fyrir frumkvæði í geðheilbrigðis- málum árið 2017. Heilsugæslan tekur við Á þeim fimmtán árum sem Hugar- afl hefur verið starfrækt hefur náðst frábær árangur og fjöldi manns leitað eftir aðstoð. Nú er svo komið að GET sem vann í nánu samstarfi við Hugarafl hefur verið lagt niður en það gerðist 1. september sl. Fjár- veitingin fyrir teymið hefur verið færð til heilsugæslustöðvanna. Starf Hugarafls hefur verið í upp- námi vegna þessa en stjórn Hugar- afls hefur ekki hug á að gefast upp þrátt fyrir að starf samtakanna sér í hættu og óvissa ríki enn með fram- tíðina. Með því að loka GET er verið að hefta aðgengi fólks með geðröskun að hjálpinni sem það svo sárlega þarf. Ekki þurfti að panta tíma, allir gátu komið og sótt nauðsynlega þjónustu. Með þessum aðgerðum er búið að draga úr valfrelsi fólks í þessum málaflokki. Þess í stað var tekin ákvörðun um að auka enn frekar álag á heilsugæsluna sem mun gera fólki erfiðara fyrir að nálg- ast aðstoð hratt og örugglega þegar erfiðleikarnir knýja á dyr. Hjá GET starfaði fagfólk með mikla þekkingu sem vildi koma henni í farveg sem virkaði, farveg sem gagnaðist og var aðgengilegur öllum. Nú hefur ríkið lokað þeim farvegi og beinir öllu í hítina sem er heilsugæslan. Er þetta skýrt dæmi um hvernig nýsköpun og einkaframtak er ekki velkomið í heilbrigðiskerfinu. Þorum að fara nýjar leiðir Eftir stendur að við verðum að gæta að því að þeir einstaklingar sem þurfa á hjálp að halda geti nálgast hana hratt og örugglega. Við stöndum frammi fyrir fíknifaraldri og sjálfsvígstíðni hefur aldrei verið hærri, ef einhvern tíma hefur verið þörf á því að hafa val um fjölbreytt úrræði þá er það núna. Úrræðin spila oft saman eins og í tilfelli Hugarafls og GET og því verður að passa að keðjan slitni ekki eins og í þeirra tilfelli. Á bak við hverja tölu í Excel-skjalinu um kostnað hjá ríki og sveitarfélögum við úrræði sem þessi eru einstaklingar sem kjósa að leita sér hjálpar og koma sér aftur út í samfélagið. Það verður að bregð- ast við með varanlegum lausnum, líkt og að tryggja starfsemi GET og Hugarafls fjárhagslegt öryggi til frambúðar. Við þurfum ekki að vera hrædd við að styðja við bakið á nýsköpun í geðheilbrigðismálum. Þeir sem sýna árangur eiga ekki að þurfa að berjast fyrir tilvist sinni. Þeir ein- staklingar sem taka þennan slag með nýjum leiðum og úrræðum eru ekki bara að spara á endanum tugi milljóna, heldur eru þeir að bjarga mannslífum og það verður seint metið til fjár. Höfum dug og þor til að fara nýjar leiðir og hjálpum þeim sem vilja byggja upp nýjar lausnir. Tryggjum að starfsemi GET og Hugar afls geti haldið áfram. Styðjum nýjar leiðir í geðheilbrigðismálum Valgerður Sigurðardóttir borgarfulltrúi Með því að loka GET er verið að hefta aðgengi fólks með geðröskun að hjálpinni sem það svo sárlega þarf. Ekki þurfti að panta tíma, allir gátu komið og sótt nauðsyn- lega þjónustu. Með þessum aðgerðum er búið að draga úr valfrelsi fólks í þessum málaflokki. Það er ánægjulegt að sjá þær meginstoðir sem samgöngu- áætlun byggir á en lögð er áhersla á þær stóru stofn- brautir sem eru út úr höfuð- borginni og nú á líka að klára grunnnet vegakerfisins á Vestfjörðum. Íslendingar, sem eru fámenn- ir, verða að átta sig á því hvar þeim er best borgið í ölduróti heimsmálanna. 2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r34 S k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 2 3 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :5 2 F B 0 9 6 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 7 D -0 4 D 4 2 1 7 D -0 3 9 8 2 1 7 D -0 2 5 C 2 1 7 D -0 1 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 9 6 s _ 2 2 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.