Fréttablaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 28
SKÁK Stærstan hluta nóvembermán
aðar hafa augu skákheimsins einblínt
á London. Þar fer fram heimsmeist
araeinvígi sitjandi heimsmeistara,
Norðmannsins Magnusar Carlsen,
og Bandaríkjamannsins Fabiano
Caruana.
Carlsen varð heimsmeistari árið
2013 er hann lagði Indverjann Vis
wanathan Anand í einvígi. Hann
varði titilinn gegn Anand ári síðar
og aftur fyrir tveimur árum er hann
hafði betur gegn Sergei Karjakin í
bráðabana. Frá því í desember 2009
hefur Carlsen, sem þá var nítján ára,
verið efstur á ELOstigalista FIDE og
aðeins í stutta stund hefur nokkur
komist yfir hann á listanum.
Að undanförnu hefur þó fyrr
nefndur Caruana andað ofan í háls
mál heimsmeistarans. Fyrir fyrstu
einvígisskákina munaði aðeins
þremur ELOstigum á keppinaut
unum og var ítalskættaði Kaninn
hársbreidd frá því að taka toppsætið
af Norðmanninum í Evrópukeppni
skákfélaga áður en einvígið hófst.
Meiddur við borðið
Skiljanlega er heimsmeistarinn Carl
sen sá virki skákmaður sem er hvað
þekktastur af þeim sem ekki fylgjast
náið með skák. Það má ekki aðeins
rekja til afreka hans við skákborðið
heldur einnig til annarra starfa hans.
Meðal annars hefur hann setið fyrir í
auglýsingaherferð GStar en hitt and
lit auglýsingaherferðarinnar var leik
konan Liv Tyler sem margir kannast
við í hlutverki Arwen í Hringadrótt
inssögu.
Þó að skák sé íþrótt hugans krefst
það mikils þols að ná að halda ein
beitingu svo klukkustundum skipti.
Fyrsta einvígisskákin nú var til að
mynda 115 leikir, þriðja lengsta
skákin í sögu heimsmeistaraeinvígja,
og stóð yfir í um sjö klukkustundir.
Til að tryggja hámarkseinbeitingu
hleypur Carlsen löngum stundum
og stundar tennis og knattspyrnu af
miklum móð.
Heimsmeistarinn bar skýr merki
knattspyrnuiðkunar í níundu ein
vígis skákinni. Fyrirkomulag ein
vígisins er með þeim hætti að teflt
er tvo daga í röð, ein skák hvorn dag,
en síðan er frídagur. Undantekning
er milli síðustu tveggja skákanna en
milli þeirra er auka frídagur. Frídag
arnir fara bæði í andlegan og líkam
legan undirbúning og nýtti Carlsen
fríið meðal annars til að spila knatt
spyrnu. Í leiknum fór hann í skalla
einvígi þar sem hann og annar leik
maður skullu saman. Mætti hann
því með myndarlegt glóðarauga og
plástraður til leiks eftir það.
Spekúlantar hafa bent á hve kjána
legt það hefði orðið hefðu meiðslin
orðið alvarlegri og þau haft áhrif á
einvígið. Hollenski stórmeistarinn
Anish Giri gantaðist meðal annars
með hvort Carlsen þyrfti ekki nýja
aðstoðarmenn fyrst þeir stefna ein
víginu í hættu með slíku kappi.
Hipphopp og jóga
Áskorandinn Caruana er yngri en
Carlsen. Caruana fæddist í Miami en
Tíu skákum lokið og enn er staðan jöfn
Carlsen og Caruana í níundu einvígisskákinni. Takið eftir plástrinum á hægri augabrún heimsmeistarans en hann kom til eftir skallaeinvígi. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Rúmlega einni milljón evra skipt á milli keppenda
Fyrirkomulag einvígisins er þann-
ig að tefldar eru tólf kappskákir.
Stórmeistararnir hafa 100 mínútur
hvor til að ljúka fyrstu 40 leikjunum
en þá bætast 50 mínútur við. Eftir
60 leiki bætist korter við til við-
bótar og þá bætast 30 sekúndur
við tímann við hvern leik. Taki skák
því hundrað leiki og fullnýti báðir
tímann varir hún í rúmar sjö stundir.
Keppendur skiptast á að hafa svart
og hvítt en röðin víxlaðist eftir
sjöttu skákina.
Verði jafnt að tólf skákum
loknum eru tefldar fjórar at-
skákir, 25 mínútur á mann auk tíu
sekúndna fyrir hvern leik. Verði enn
jafnt verða tvær hraðskákir, fimm
mínútur auk þriggja sekúndna á
hvern leik. Verði jafnt að þeim
loknum verður bráðabani. Tefld
verður skák þar sem hvítur hefur
fimm mínútur en svartur fjórar.
Svörtum nægir jafntefli til að vinna.
Verðlaunapotturinn er ein
milljón evra auk hlutdeildar í aug-
lýsingatekjum. Heimsmeistarinn
fær 60 prósent þeirrar upphæðar
nema til atskáka komi. Þá skiptist
potturinn í hlutföllunum 55/45.
Glóðarauga heimsmeist-
arans og óheppilegt
myndband áskorandans
er meðal þess sem hefur
verið rætt mikið um
í einvígi Carlsen og
Caruana. Öllum skákum
hefur lokið með jafntefli.
Þær hafa þó verið mis-
fjörugar og keppendur
misst af vænum leiðum.
Jóhann Óli
Eiðsson
joli@frettabladid.is
fluttist ungur til Brooklyn. Foreldrar
hans eru af ítölskum ættum og tefldi
hann fyrir hönd Ítalíu þar til 2015.
Hann var nálægt því að vinna sér inn
rétt til að skora Carlsen á hólm árið
2016 en laut í gras gegn Karjakin í
síðustu skák áskorendamótsins.
Bandaríkjamaður hefur ekki
keppt um heimsmeistarakrúnuna
síðan 1972 er Boris Spassky og
Bobby Fischer öttu kappi í Reykja
vík. Skiljan lega er nafn Caruana því
oft nefnt í sömu andrá og Fischer þar
vestra.
„Sá skákmaður sem hefur alltaf
veitt mér mestan innblástur er Bobby
Fischer. Í sögulegu samhengi er frá
bært að vera borinn saman við Fisc
her en hvað varðar persónuleika og
skákstíl erum við mjög ólíkir,“ segir
Caruana.
Líkt og Carlsen veit Caruana að
líkamlega og andlega hliðin þarf að
vera í toppstandi svo honum farnist
Fabiano
Caruana
Fæddur
30. júlí 1992
Stórmeistari
Árið 2007,
tæplega 15
ára gamall
ELO-stig
2.832
hæst 2.844
í ágúst 2014
Magnus
Carlsen
Fæddur
30. nóvember 1990
Stórmeistari
Árið 2004,
þá tæplega 13 ára
og 5 mánaða gamall
ELO-stig
2.835
hæst 2.882
í maí 2014
Í sögulegu samhengi
er frábært að vera
borinn saman við Fischer en
hvað varðar persónuleika og
skákstíl erum við mjög
ólíkir.
Fabiano Caruana, stórmeistari í skák
1. SKÁK 9. nóvEMBER
Fyrsta skákin var fjörug og löng.
Tvisvar missti Carlsen af færum
sem hefðu getað tryggt honum
sigurinn og yfirhöndina í ein-
víginu. 36. – h4? Nokkrum leikjum
áður missti Carlsen af mögu-
leika á að planta drottningunni
á skálínuna a1-h8. Það gerðist
aftur hér. 36. – Dg7! hefði þýtt að
hvíta staðan yrði ekki teflanleg
enda getur svarta drottningin þá
nánast valið hvaða peð hún vill
fella á drottningarvængnum. Eftir
36. – h4? einfaldaðist taflið og
Carlsen reyndi að svíða hróks-
endatafl peði yfir í sjötíu leiki án
árangurs.
6. SKÁK 16. nóvEMBER
Carlsen kom öllum á óvart með
því að leika 4. Rd3 í Petroff.
Hann hafði leikið nokkrum óná-
kvæmum leikjum í miðtaflinu sem
skapaði veikleika sem aðeins eru á
færi ofurstórmeistara og ofurtölva
að nýta sér. Hér hafði hann leikið
68. Bc4 og staðan virðist nokkuð
öruggt jafntefli. Hinn ómanneskju-
legi ofurtölvuleikur 68. – Bh4!
færir svörtum hins vegar unnið tafl
eftir 69. Bd5! Re2 70. Bf3 Rg1!! 71.
Bd5 Bg5! 72. Kh7 Re2! og hvítur er
í leikþröng. Caruana missti skiljan-
lega af þessu og jafntefli var samið
eftir 80 leiki.
8. SKÁK 19. nóvEMBER
Upp kom Sveshnikov-afbrigði
Sikileyjarvarnar og var Caruana,
með hvítt, vel undirbúinn. Carlsen
lék ónákvæmt og allt í einu voru
færin öll hvíts. 21. c5! Peðsfórn
sem færir hvítum yfirburði með
hvassri og hárnákvæmri tafl-
mennsku. 21. – Rxf3+ 22. Dxf3
dxc5 23. Had1 Bd6 24. h3? Eftir
kraftmikla taflmennsku missir Fabi
flugið. Nauðsynlegt var 24. Dh5!
og svartur er í alls kyns vand-
ræðum. Eftir 24. – De8 var staðan
jöfn og samið fjórtán leikjum síðar.
✿ Nokkrar áhugaverðar stöður úr eingvíginu hingað til vel við skákborðið. Bandaríkjamaðurinn þykir góður sundmaður
og hefur einnig leikið skvass. Þá hug
leiðir hann, stundar jóga og að end
ingu má nefna að Kendrick Lamar og
Killah Priest hafa hjálpað honum við
undirbúninginn.
Lekinn mikli
Einvígið nú er langt á veg komið.
Fyrstu níu skákum þess er lokið og
hefur þeim öllum lyktað með því að
kapparnir hafa sæst á skiptan hlut. Er
það lengsta jafnteflishrina sögunnar í
upphafi heimsmeistaraeinvígis.
Báðir keppendur hafa leyft aðdá
endum að fylgjast með undirbúningi
sínum að einhverju leyti. Á fyrsta frí
degi sendu þeir báðir frá sér mynd
bönd úr herbúðum sínum. Undir
búningur Norðmannsins samanstóð
af stúderingum og knattspyrnu að
sjálfsögðu. Þar var þó passað að upp
ljóstra ekki hvað heimsmeistarinn
var að skoða. Í herbúðum Caruana og
aðstoðarmanna hans voru hins vegar
þau mistök gerð að myndbandið
sýndi tölvuskjá sem listaði upp hluta
þeirra byrjana sem Caruana var að
kanna sérstaklega. Myndbandið var
fjarlægt snögglega.
Deilt var um það hvort lekinn
hefði verið aulaleg mistök eða til þess
fallinn að afvegaleiða heimsmeistar
ann með því að láta hann verja dýr
mætum tíma í að skoða afbrigði sem
aldrei stóð til að tefla. Á blaðamanna
fundi eftir þriðju skákina svaraði
Carlsen því þó að hann hefði ekki
séð myndbandið.
Tíunda skákin fór fram í gær og
lauk henni með jafntefli eftir fjör
uga skák í Sveshnikovafbrigðinu.
Caruana fékk sénsa í tvísýnni stöðu
en nýtti þá ekki. Næst verður teflt á
morgun. John Carew lýsir skákinni
í beinni hjá norska ríkissjónvarpinu.
2 3 . N ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r26 F r é T T i r ∙ F r é T T A b L A ð i ð
2
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
7
D
-1
D
8
4
2
1
7
D
-1
C
4
8
2
1
7
D
-1
B
0
C
2
1
7
D
-1
9
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K