Fréttablaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 8
fyrir tíu árum er ég ekki viss um að
það hefði verið tekið svona ákveðið
á málinu. Ég er ánægð með það hvað
allir eru að taka ákveðið á málinu
þótt þetta sé búið að vera mjög erfitt
fyrir persónur og leikendur.“
Hún fagnar því sérstaklega að
stjórn OR hafi ákveðið að hafa
frumkvæði að því að vinna áfram
með vinnustaðagreininguna sem
Félagsvísindastofnun gerði. „Ég lagði
mikla áherslu á það þegar farið var
í þessa úttekt að það yrði ekki bara
kannað hvort þessar uppsagnir
hefðu verið réttmætar heldur yrði
vinnustaðamenningin skoðuð líka.
Þessi vinnustaðagreining sýnir að
það er fullt af tækifærum til að gera
betur. En það eru líka góðar niður-
stöður um það að fólki líður ágæt-
lega hjá Orkuveitunni.“
Eyþór telur að miðað við viðbrögð
stjórnenda OR við skýrslunni þurfi
eitthvað að breyta skipulaginu. „Þau
líta kannski pínulítið á þetta sem
ímyndarmál eins og þessu hefur
verið stillt upp. Aðalmálið er það
að kúltúrinn sé í lagi. Þetta er stórt
og mikið fyrirtæki og kemur okkur
öllum við. Það er ýmislegt í rekstri
þess sem hefur verið í fréttum síð-
ustu tvö árin þannig að það er mikil-
vægt að félagið nái sér vel á strik. Ég
treysti því að stjórnin taki á þessum
ábendingum sem hún hefur fengið
núna.“ sighvatur@frettabladid.is
Audi Q7 e-tron er umhverfismildur
tengiltvinnbíll sem sameinar krafta
dísilvélar og rafmagnsmótors með
drægni allt að 56 km. (skv. NEDC).
Verð frá 10.990.000 kr.
Audi Q7 e-tron quattro
Rafmagnaður
Eigum nokkra Audi Q7 e-tron quattro
hlaðna aukahlutum á einstöku tilboðsverði.
Til afhendingar s
trax!
Dómsmál Landsréttur staðfesti á
miðvikudag úrskurð Héraðsdóms
Vesturlands um áframhaldandi
gæsluvarðhald yfir konu á áttræð-
isaldri sem grunuð er um tilraun til
manndráps.
Konan er sökuð um að hafa
aðfaranótt 10. nóvember síðast-
liðins stungið tengdason sinn í
bringuna með hníf í heimahúsi á
Akranesi.
Helgi Pétur Ottesen, rannsóknar-
lögreglumaður á Akranesi, sagði í
samtali við Fréttablaðið.is í gær að
maðurinn hefði sloppið vel en þurft
að gangast undir aðgerð um nóttina.
Maðurinn, sem er á fimmtugsaldri,
hefur verið útskrifaður af spítala.
Konan hefur verið í haldi lögreglu
frá því atvikið átti sér stað og er
málið, sem fyrr segir, rannsakað sem
tilraun til manndráps. Konan mun
sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi
fram í miðjan desember. – smj
Öldruð kona
stakk tengdason
sinn í bringuna
Dómsmál Stjórn Sambands ungra
sjálfstæðismanna (SUS) hefur kallað
eftir því að óháð rannsókn fari fram
á stjórnsýslu Seðlabanka Íslands
(SÍ) í tengslum við málsmeðferðir,
kærur og sáttir sem bankinn hefur
átt þátt í vegna meintra brota á
gjaldeyrislögum. Telur stjórn SUS
sterkar vísbendingar uppi um að
bankinn hafi misbeitt sér við rann-
sókn mála er vörðuðu meint brot
gegn gjaldeyrislögum og vísar þar
væntanlega fyrst og fremst í mál
Samherja sem fjallað hefur verið
um að undanförnu.
Vilja SUS-liðar þá einnig að „aug-
ljóst“ samstarf SÍ og Ríkisútvarpsins
verði rannsakað. „Þar sem upp-
lýsingum var bersýnilega lekið til
fjölmiðla til þess að auka hróður
SÍ á kostnað þeirra sem voru undir
rannsókn.“
Í orðsendingu stjórnar er þetta
augljósa samstarf þó hvergi tíundað
nánar. – smj
Kalla eftir
óháðri rannsókn
SUS vill rannsaka Seðlabankann.
Fréttablaðið/SigtryggUr ari
ORKUVEITAN „Það sem liggur fyrir
er að það þarf að fara dýpra í málin.
Þessu máli er ekki lokið. Í skýrslunni
var fyrst og fremst verið að horfa á
tvær manneskjur en það er ljóst að
það þarf að skoða heildarmyndina
betur,“ segir Eyþór Arnalds, odd-
viti Sjálfstæðisflokksins í borgar-
stjórn Reykjavíkur, um skýrslu innri
endurskoðunar um málefni Orku-
veitunnar.
Skýrslan var kynnt á fundi
borgarráðs í gær en þangað mættu
Helga Jónsdóttir, settur forstjóri
OR, og Brynhildur Davíðsdóttir,
stjórnarformaður OR, auk Halls
Símonarsonar, innri endurskoð-
anda borgarinnar.
Eyþór bendir á að 30 prósent af
þeim sem hafi hætt störfum hjá fyrir-
tækinu síðustu tvö ár telji sig hafa
orðið fyrir einelti. „Svo er til greining
sem hefur ekki verið afhent enn þá
sem fer yfir miklu fleiri starfsmenn.
Það er búin að vera mikil starfs-
mannavelta, ekki síst hjá Orku nátt-
úrunnar og þeir starfsmenn sem hafa
hætt virðast óánægðir. Ég held að
það skipti miklu máli að Orkuveitan
fari betur ofan í saumana á þessu.“
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, for-
maður borgarráðs og fulltrúi
Viðreisnar, segir að kynningin á
skýrslunni hafi verið mjög ítarleg
og gríðarlega góðar umræður farið
fram. „Ég fagna mjög hversu ákveðið
stjórnin hefur tekið á þessu máli.
Núverandi forstjóri hefur tekið
þetta mál mjög föstum tökum og
fer beint í aðgerðir.“
Málið sé nú á borði stjórnar OR og
hennar verkefni sé rétt að byrja. „Svo
finnst mér áhugavert í þessu öllu að
þetta mál vaknaði upp úr Metoo-
umræðunni. Ef þetta hefði gerst
Kafa þurfi dýpra í málefni OR
Eyþór Arnalds segir ljóst að fara þurfi dýpra í málefni Orkuveitunnar. Úttekt á vinnustaðamenningu OR var
kynnt á fundi borgarráðs í gær. Formaður ráðsins fagnar því hversu ákveðið stjórn OR hefur tekið á málinu.
Eyþór segir viðbrögð stjórnenda Or til marks um að þau líti á úttektina sem ímyndarmál. Fréttablaðið/aNtON briNK
Enn í myrkrinu með margt
„Mér fannst þessi yfirferð innri
endurskoðanda takmörkuð. Það
þarf að skoða málið betur. Nú er
lögð of mikil áhersla á vinnustaða-
menninguna og að allir séu
svo glaðir og ánægðir eins
og ekkert hafi í skorist,“
segir Kolbrún baldurs-
dóttir, áheyrnarfulltrúi
Flokks fólksins í borgar-
ráði.
Hún segist velta því fyrir
sér í ljósi þess að síðustu tvö ár
hafi hundrað manns látið af
störfum og um 30 prósent þeirra
hafi upplifað einelti, hvort fólk
hafi verið látið fara af því það hafi
kvartað.
„Svo kemur þetta mál þar sem
kvartað er yfir kynferðislegri
áreitni og þessari konu sagt upp.
Svo er farið að tala um einhverja
frammistöðu. Ég velti fyrir
mér hvenær hafi verið farið
að tala um frammistöð-
una. Er þetta eftiráskýring
eða var þetta vandamál
sem var búið að reyna
tækla áður?“
Hafi umræddur frammi-
stöðuvandi verið fyrir hendi sé
hann varla tæklaður með því að
sparka viðkomandi burt. „Þetta
kemur illa og harkalega út. Mér
finnst ég enn í myrkrinu með svo
margt í þessu sambandi.“
Ekkert nýtt kom fram
„Mér fannst ekkert nýtt koma
fram þarna. Ég gagnrýndi það
mjög að innri endurskoðandi hafi
ekki verið látinn kynna skýrsluna
sjálfur á blaðamannafundin-
um því þetta er lagt fram í
nafni Innri endurskoðunar
Reykjavíkur,“ segir Vigdís
Hauksdóttir áheyrnar-
fulltrúi Miðflokksins í
borgarráði.
Hún gagnrýnir einnig að
kjörnir fulltrúar, aðrir en þeir sem
sitji í stjórn OR, hafi fyrst fengið
upplýsingar um innihald skýrsl-
unnar í gegnum fjölmiðla. „Þetta
er náttúrulega gamalt trix að efna
til blaðamannafundar til að hafa
áhrif á niðurstöður og umræður í
framhaldinu. Þannig að mér finnst
allt óeðlilegt í sambandi við kynn-
ingu á skýrslunni.“
Þá telur Vigdís framgöngu
Helgu Jónsdóttur, setts for-
stjóra OR, ekki sæmandi
og vísar þar sérstaklega
í ummæli hennar um að
jafnvel eigi að kæra Einar
Bárðarson vegna innihalds
tölvupósts sem hann sendi
stjórnendum OR.
„Orkuveitan er svo stórt fyrir-
tæki og á ekki að taka þátt í svo-
leiðis leik og setja sjálfa sig niður
á þetta plan. Að vera að eltast við
einstaklinga sem eru í sárum.“
Þetta mál vaknaði
upp úr Metoo-um-
ræðunni. Ef þetta hefði gerst
fyrir tíu árum er ég ekki viss
um að það hefði verið tekið
svona ákveðið á málinu.
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir,
formaður
borgarráðs
2 3 . N ó V E m b E R 2 0 1 8 F Ö s T U D A G U R6 F R é T T I R ∙ F R é T T A b l A ð I ð
2
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
7
D
-1
3
A
4
2
1
7
D
-1
2
6
8
2
1
7
D
-1
1
2
C
2
1
7
D
-0
F
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K