Fréttablaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 20
sem sögðu tölvupóstinn „hrylling“,
gagnrýndu algjöran skort á nánari
upplýsingum og sögðust ætla að
breyta lykilorðum sínum af ótta
við að Amazon væri að leyna ein-
hverjum upplýsingum.
Þegar blaðamaður Techcrunch
spurði fulltrúa Amazon um frekari
upplýsingar um málið sagði Ama-
zon-starfsmaðurinn að fyrirtækið
vildi engu bæta við fyrri yfirlýsingu.
Fyrirtækið neitar því að nokkur hafi
brotist inn í tölvukerfi þess.
Þessi leki, eða galli, átti sér stað
þegar stutt var í tvo stærstu net-
verslunardaga ársins, „black friday“
og „cyber monday“. Þeir gætu því
komið sér illa fyrir fyrirtækið enda
eru lekar sem þessir ekki hættu-
lausir þótt lykilorð hafi ekki fylgt
með. Með netföngin ein að vopni
gætu óprúttnir tölvuþrjótar til að
mynda herjað á viðskiptavini Ama-
zon með fölskum auglýsingum eða
skilaboðum og þannig komið fyrir
veirum í tölvu viðtakenda.
Blaðamaður Techcrunch gagn-
rýnir Amazon harðlega í fréttinni
og segir að skortur á upplýsingum
geri málið verra. Fólk óttist það sem
það skilur ekki og þar sem Amazon
neitar að upplýsa almenning er
fyrirtækið í raun að magna þennan
ótta. thorgnyr@frettabladid.is
Bandaríska stórfyrirtækið Ama-
zon vill lítið sem ekkert tjá sig
um hugbúnaðargalla sem varð til
þess að tölvupóstföng viðskipta-
vina vefverslunar fyrirtækisins
voru aðgengileg hverjum sem er.
Þetta kemur fram í umfjöllun sem
Techcrunch birti í gær en í svari við
fyrirspurn fjölmiðilsins sagði einn
talsmanna Amazon að fyrirtækið
hefði „lagað þennan galla og upp-
lýst þá viðskiptavini sem gætu hafa
orðið fyrir óþægindum vegna hans
um málið“.
Notendum var upphaflega gert
viðvart um vandann í tölvupósti á
miðvikudaginn. Í póstinum sagði:
„Halló. Við erum að hafa samband
við þig til þess að láta þig vita að
vefsíða okkar birti fyrir mistök net-
fang þitt vegna hugbúnaðargalla.
Þessi vandi hefur verið lagaður. Það
er að engu leyti við þig að sakast og
þú þarft hvorki að breyta lykilorði
þínu né gera nokkrar aðrar ráðstaf-
anir vegna málsins.“
Fjölmargir deildu póstinum á
Twitter og vitnaði CNBC í nokkra
Amazon þegir um galla sem
olli leka á netföngum kúnna
Bandaríska vefverslunin birti fyrir slysni netföng viðskiptavina. Vill ekki tjá sig um umfang vandans en
hugbúnaðargalli olli. Amazon segist hafa lagað gallann. Fólk sem fékk tilkynningu frá Amazon kallar á svör.
Lekinn átti sér stað stuttu fyrir tvo stærstu daga ársins fyrir netverslun, „black friday“ og „cyber monday“.
Óljóst með tilkynningaskyldu
Þar sem Amazon er með
höfuðstöðvar í bandaríska ríkinu
Washington ber fyrirtækinu að til-
kynna dómsmálaráðherra ríkisins
um leka á gögnum 500 íbúa eða
fleiri. Ekki er ljóst hvort það hafi
verið gert.
Samkvæmt Techcrunch eru
reglurnar hins vegar óljósar í
Evrópu, þrátt fyrir að hin nýsam-
þykkta GDPR-Evrópulöggjöf um
vernd persónulegra gagna sé
almennt strangari en tíðkast í
Bandaríkjunum.
Samkvæmt starfsmanni per-
sónuverndarstofnunar Bretlands
þarf fyrirtækið sjálft að meta
hvort það tilkynni atvikið til
bresku stofnunarinnar eða ann-
arrar sambærilegrar stofnunar
annars staðar í Evrópu. „Það er
alltaf á ábyrgð fyrirtækisins að
vera meðvitað um það er gagna-
lekar hafa áhrif á breska ríkisborg-
ara og að gera ráðstafanir til þess
að koma í veg fyrir að lekinn bitni
á viðkomandi. Við munum hins
vegar halda áfram að fylgjast náið
með málinu og starfa með öðrum
stofnunum ef á slíku er þörf.“
Samfélagsmiðlarisinn Facebook
mun áfrýja sekt sem persónuvernd-
arstofnun Bretlands lagði á fyrir-
tækið vegna hins svokallaða Cam-
bridge Analytica-hneykslis. Sektin
nemur 500 þúsund pundum, and-
virði um áttatíu milljóna króna, og
mat stofnunin það svo að fyrirtækið
hefði með markvissum hætti sankað
að sér persónulegum upplýsingum
notenda.
Frá því The New York Times, The
Guardian og The Observer komu
upp um hneykslið fyrr á árinu, sem
tengist notkun greiningarfyrirtæk-
isins Cambridge Analytica á téðum
gögnum í pólitískum tilgangi, hefur
Mark Zuckerberg, stofnandi og for-
stjóri Face book, komið fyrir banda-
ríska þingið en hafnað því að koma
fyrir það breska. Breska stofnunin
er þó sú eina sem hefur beitt refsi-
aðgerðum gegn fyrirtæki Zucker-
bergs vegna málsins.
Stofnunin komst að því að Face-
book hafi „á ósanngjarnan hátt“
safnað gögnum milljónar Breta og
mistekist að gera nauðsynlegar var-
úðarráðstafanir.
Í tilkynningu sem Facebook sendi
frá sér sagði að fyrirtækið hefði viljað
gera meira til að fyrirbyggja málið en
breska stofnunin hefði ekki sýnt fram
á að persónulegar upplýsingar Breta
hafi verið sendar Cambridge Analy-
tica og notaðar í pólitískum tilgangi.
„Þannig byggist rökstuðningurinn
ekki lengur á Cambridge Analytica-
málinu heldur grundvallarhug-
myndum um það hvernig eigi að
deila upplýsingum á netinu. Það er
mun stærra mál og höfum við því
ákveðið að áfrýja. Samkvæmt kenn-
ingum stofnunarinnar mætti fólk til
dæmis ekki áframsenda tölvupóst
eða skilaboð án samþykkis allra
annarra sem sendu eða áframsendu
téð skilaboð.“ – þea
Facebook áfrýjar sekt vegna Cambridge Analytica-hneykslisins
Tækni
Amazon vill ekki gera
opinbert hversu mörg
netföng voru aðgengileg.
Tölvuleikjaframleiðandinn Blizzard
þróar nú snjallsímaleik byggðan á
söguheimi Warcraft-leikjanna sem
á að vera þeirra útgáfa af Pokémon
Go. Frá þessu greindi leikjafrétta-
vefurinn Kotaku í gær og hafði eftir
heimildarmönnum. Leikurinn á
þó að vera íburðarmeiri, stærri og
flóknari en Pokémon Go að því er
kemur fram í fréttinni en það sem
fyrirrennarinn var einna helst gagn-
rýndur fyrir á sínum tíma var það
hversu grunnur leikurinn var.
Snjallsímaleikir virðast vera
afar heitir á meðal starfsfólks og
stjórnenda Blizzard en á ráðstefnu
fyrirtækisins fyrr í mánuðinum var
tilkynnt um nýjan leik í Diablo-
seríunni, Immortal, sem mun bara
koma út fyrir snjallsíma. Þeim
tíðindum reiddust heitir Diablo-
aðdáendur sem hafa beðið lengi
eftir tíðindum af næsta Diablo-leik
og vilja fá leik fyrir PC-tölvur. – þea
Warcraft-útgáfa
af Pokémon Go
InterContinental opnaði hótel í
Sjanghæ í Kína í samstarfi við sam-
félagsmiðilinn WeChat í gær. Hót-
elið er merkilegt fyrir þær sakir að
flestu þar er stýrt í gegnum appið
WeChat. Þannig er hægt að bóka
herbergi, skrá sig inn, opna dyr og
panta herbergisþjónustu í gegnum
appið og komast hjá öllum mann-
legum samskiptum, vilji maður
það.
WeChat er stærsti samfélagsmið-
illinn í Kína og eru möguleikarnir
nær endalausir. Hægt er að spjalla,
bera saman verð, greiða fyrir vörur,
millifæra á vini, fylla á inneign fyrir
síma, borga reikninga, hringja
myndsímtöl, fylgjast með póst-
sendingum, panta mat eða bóka
borð, telja skref og svo framvegis
og svo framvegis.
Hótelið í Sjanghæ er þó ekki
fyrsta svokallaða „snjallhótelið“
í Kína. Áður hafa slík hótel verið
opnuð í samstarfi hótelkeðja við
tæknirisa á borð við til að mynda
Baidu og Alibaba. – þea
Snjallhótel
opnað í Sjanghæ
Netföng viðskiptavina láku út en Amazon vill lítið tjá sig um málið. Vill til dæmis ekki gefa upp á hve marga lekinn hafði áhrif. Nordicphotos/Getty
Wechat nýtur mikilla vinsælda í
Kína. Nordicphotos/Getty
Kona í gervi Warcraft-hetjunnar Jaina
proudmoore. Nordicphotos/Getty
Facebook lenti illa í cambridge Analytica-hneykslinu. Nordicphotos/Getty
2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r18 F r é T T i r ∙ F r é T T A b L A ð i ð
2
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
7
C
-D
3
7
4
2
1
7
C
-D
2
3
8
2
1
7
C
-D
0
F
C
2
1
7
C
-C
F
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K