Fréttablaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 50
Það er bráð-
skemmtilegt að
keyra rafmagnsbíla og
upplifunin allt önnur en
með hefðbundna bensín-
eða dísilbíla.
Hekla er leiðandi í sölu vist-vænna bíla hér á landi og býður fyrirtækið einstak-
lega breitt úrval af grænum far-
kostum segir Jóhann Ingi Magnús-
son, vörumerkjastjóri Volkswagen.
„Þegar litið er á sölu vistvænna
bíla frá upphafi árs til dagsins í dag
þá ber Hekla höfuð og herðar yfir
önnur umboð með rúmlega 55%
markaðshlutdeild meðan næsta
umboð er með tæplega 20%. Bílar
frá Heklu eru þeir mest seldu í
flokki tengiltvinn- og metanbíla
en þegar kemur að hreinum raf-
magnsbílum vermir Volkswagen
annað sætið með 25% nýrra raf-
magnsbíla.“
Forskot á markaði
Sem dæmi nefnir hann að vöru-
merki Heklu standi á bak við 62%
markaðshlutdeild af nýskráðum
tengiltvinnbílum á árinu auk þess
sem mest seldi tengiltvinnbíllinn
á Íslandi er Mitsubishi Outlander
PHEV en tæp 40% allra seldra bíla
sem ganga fyrir bæði rafmagni
og bensíni eru af þeirri tegund.
„Volkswagen er einnig sterkt merki
þegar kemur að tengiltvinnbílum
með um 17% markaðshlutdeild
ef bílaleigubílar eru undanskildir.
Forskot Heklu er þó mest áberandi
í flokki metanbíla en hver einn
og einasti metanbíll sem fluttur
hefur verið til landsins það sem
af er ári kemur frá vörumerkjum
Heklu sem þýðir fyrir vikið 100%
markaðshlutdeild. Skoda er þar
með 65% allra seldra metanbíla en
Volkswagen og Audi fylgja á eftir.“
Mikið úrval
Jóhann segir spennandi tíma að
renna í garð hjá Heklu þar sem
úrval rafmagns- og metanbíla sé
stöðugt að aukast. „Tengiltvinn-
bíllinn Mitsubishi Outlander
PHEV hefur notið mikilla vin-
sælda frá kynningu hans árið 2013
og er í dag mest seldi bíllinn á
Íslandi. Nýr Outlander PHEV var
frumsýndur í september en hann
státar nú af enn meiri sparneytni
og bættum aksturseiginleikum,
auknum afköstum, endurbættu
aldrifi og meiri þægindum á öllum
sviðum.
Volkswagen e-Golf hefur slegið
í gegn síðustu ár og markaðurinn
hefur þróast í að drægi rafmagns-
bíla er orðið nægt fyrir flest
íslensk heimili. Valið stendur ekki
eingöngu um hvaða bíll er með
stærstu rafhlöðuna eins og áður.
Tengiltvinnbílarnir Golf GTE og
Passat GTE eru líka sterkir hjá
Volkswagen en eins og Outlander
PHEV ganga þeir fyrir bæði raf-
magni og bensíni. Audi býður
einnig tvo tengiltvinnbíla; Audi A3
e-tron og Q7 e-tron svo það er nóg
úrval.“
Allt önnur upplifun
Jóhann segir að í umræðunni um
rafmagnsbíla sé gjarnan einblínt
eingöngu á drægi í stað þess að
skoða aðra aksturseiginleika og
gæði. „Það er bráðskemmtilegt að
keyra rafmagnsbíla og upplifunin
allt önnur en með hefðbundna
bensín- eða dísilbíla. Tengjanleiki
nýrra bifreiða í dag er orðinn meiri
en áður og hefur Volkswagen til að
mynda þróað appið Car-Net fyrir
rafmagnsbílana sína en þaðan má
til að mynda skoða stöðu á hleðslu,
finna bílinn á stórum bílastæðum
og auðvitað hita bílinn á köldum
vetrarmorgnum.“
Framúrstefnuleg hönnun
Á döfinni hjá Volkswagen er kynn-
ing á nýrri ID línu en þeir munu
fara í forsölu snemma á næsta
ári. Þetta er ný lína rafmagnsbíla
sem er í öllum stærðarflokkum
frá Volkswagen en eiga það sam-
eiginlegt að vera framúrstefnu-
legir í útliti, hönnun og drægi segir
Jóhann Ingi. „Einnig sjáum við
skemmtilega aukningu í metan-
drifnum bílum á nýju ári sem við
teljum að eigi mikið inni á íslensk-
um bílamarkaði. Metanstöðvum
hefur fjölgað og vonandi verður
farið í frekari uppbyggingu á næstu
árum til að fullnýta þessa íslensku
vistvænu orku. Á næsta ári munum
við bjóða upp á nýjan Volkswagen
Golf TGI og Skoda Octavia G-Tec
en ný Octavia mun til að mynda
bjóða upp á allt að 480 km drægi á
hreinum metanakstri.“
Mikil eftirvænting
Á þessari stundu er nýjasta afurð
Audi á leiðinni til landsins en það
er hinn nýi Audi e-tron quattro
sem beðið hefur verið eftir með
mikilli eftirvæntingu. Um er að
ræða 100% rafmagnsdrifinn og
fjórhjóladrifinn sportjeppa sem
endurspeglar Audi á öld raf-
bílsins, bæði að innan og utan,
segir Jóhann Ingi. „Forsala hófst
fyrir nokkrum mánuðum á audi. is
sem hefur farið fram úr vænt-
ingum okkar. Sýningareintak er á
leiðinni til landsins og við munum
frumsýna Audi e-tron quattro í
desember en við gerum ráð fyrir að
fyrstu bílarnir komi á götuna á vor-
mánuðum 2019. Það eru æsispenn-
andi tímar fram undan og mikið
af nýjungum sem líta dagsins ljós
á næstu mánuðum. Það er nokkuð
ljóst að framleiðendur okkar
eiga mikið inni sem mun tryggja
áframhaldandi forskot okkar sem
vistvænt bílaumboð,“ segir Jóhann
Ingi að lokum.
Grænu bílarnir eru hjá Heklu
Ríflega 64% allra nýrra bíla sem Hekla hefur selt til einstaklinga það sem af er árinu hafa
verið vistvænir. Það sýnir gríðarlegan áhuga íslenskra neytenda á vistvænum möguleikum.
Audi e-tron quattro í framleiðslu.
Volkswagen ID.
„Þegar litið er á sölu vistvænna bíla frá upphafi árs til dagsins í dag þá ber Hekla höfuð og herðar yfir önnur umboð,“ segir Jóhann Ingi Magnússon, vörumerkjastjóri Volkswagen. MYND/ERNIR
6 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . N ÓV E M B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RVISTVÆN ÖKUTÆKI
2
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
7
D
-3
B
2
4
2
1
7
D
-3
9
E
8
2
1
7
D
-3
8
A
C
2
1
7
D
-3
7
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K