Fréttablaðið - 23.11.2018, Qupperneq 14
1299 kr.kg
Þakkargjörðarfuglinn, veislu kjúklingur
999 kr.pk.
Sætkartöflumús, 500 g 1390 kr.stk.
Kalkúnasósa með salvíu, 500 ml
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
Á
a
ð b
jóða
til veislu?Þessi
er stór
2-2,4 kg
kronan.is/
Takk
Allt fyrir
einfalda og góða
þakkargjörðar
veislu
599 kr.pk.
Rauðkál heimagert, 250 g
Húsnæðismál „Þetta er ekki alveg
svo einfalt að verið sé að leita utan
landsteinanna eftir lægri launa-
kostnaði og framleiðslukostnaði,“
segir Drífa Snædal, forseti Alþýðu-
sambands Íslands. Fundið hefur
verið að því að Bjarg íbúðafélag,
húsnæðissjálfseignarstofnun sem
stofnuð er af ASÍ og BSRB, muni
reisa 33 íbúðir á Akranesi með ein-
ingahúsum sem framleidd eru og
flutt inn frá Lettlandi. Húsin koma
nær fullsmíðuð að utan og þarf í
raun aðeins að púsla þeim saman
og klæða að utan.
Þetta styttir byggingartímann um
helming og gerir það að verkum að
fólk í húsnæðisvanda kemst fyrr í
öruggt leiguhúsnæði. Samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins barst
þessi innflutningur og aðkoma
erlends vinnuafls til tals í fyrirspurn
á fundi Sjálfstæðismanna á Akranesi
með verkalýðsforystunni í bænum
fyrir skemmstu. Þar var varpað fram
þeirri spurningu hvort verkalýðs-
forystan væri búin að verðleggja
íslenskt vinnuafl svo hátt að það
yrði að kaupa allt í verkið að utan.
Drífa, sem aðeins var skipuð
formlega í stjórn Bjargs í fyrradag,
segir að það sem hún hafi kynnt
sér af málinu snúist í fyrsta lagi um
hverjir geti framleitt þetta og í öðru
lagi um stærðarhagkvæmni.
„ASÍ kaupir vörur erlendis þó við
reynum að beina viðskiptum okkar
til innlendra framleiðslufyrirtækja
ef það er mögulegt. Þetta er ekki
Snýst um meira en lægri laun
og kostnað segir forseti ASÍ
Skóflustunga að íbúðum Bjargs á Akranesi var tekin í síðasta mánuði. Um verður að ræða innflutt einingahús. Mynd/BjArg
ASÍ kaupir vörur
erlendis þó við
reynum að beina viðskiptum
okkar til innlendra fram-
leiðslufyrirtækja.
Drífa Snædal,
forseti ASÍ
Forseti ASÍ gerir ekki
athugasemdir við að
íbúðafélagið Bjarg láti
framleiða og flytja inn
einingahús til að reisa
ódýrari leiguíbúðir á
Akranesi. Sjálfstæðis-
menn á Skaganum
spurðu hvort verkalýðs-
forystan tímdi ekki að
greiða launin sem hún
berst fyrir hér á landi.
Bretland ESB og Bretar samþykktu í
gær drög að pólitískri yfirlýsingu um
framtíðarsambandið eftir Brexit og
hafa drögin verið send á leiðtoga
ríkjanna 27 sem munu eftir standa
innan ESB. Þessi pólitíska yfirlýsing
á að fylgja með um 600 síðna samn-
ingi um téð framtíðarsamband.
Hins vegar hefur ekki enn náðst
samkomulag um framtíð bresku
hólmlendunnar Gíbraltar. Spán-
verjar hafa sóst eftir ákveðnum
tryggingum og hafa lengi gert til-
kall til svæðisins. Fyrsti ráðherra
Gíbraltar, Fabian Picardo, sagði í gær
að svæðið væri tilbúið undir hvaða
niðurstöðu sem er í samningavið-
ræðunum.
Gíbraltarmálið er eini kaflinn sem
stendur eftir opinn. Það gerir það
að verkum að nokkur óvissa verður
á fundi leiðtogaráðs ESB sem á að
fara fram á sunnudaginn, náist ekki
að loka kaflanum. Theresa May, for-
sætisráðherra Bretlands, á þó bók-
aðan fund með Jean-Claude Juncker,
forseta framkvæmdastjórnar ESB, á
laugardagskvöld til að freista þess
að ná endanlegu samkomulagi svo
leiðtogarnir geti skrifað undir á
sunnudag.
Deilt er um drög gærdagsins
heima á Bretlandi. Jeremy Corbyn,
leiðtogi Verkamannaflokksins, sagði
að samkomulagið væri það versta
mögulega. „Þessar 26 síður sýna fram
á að Íhaldsflokknum hefur mistekist
algjörlega í samningaviðræðunum,“
sagði Corbyn. – þea
Þokast nær
undirritun
Brexit-samnings
Theresa May, forsætisráðherra Bret-
lands. nordicphoToS/AFp
Jeremy Corbyn, leiðtogi
Verkamannaflokksins, sagði
að samkomulagið væri það
versta mögulega.
bara hagkvæmnisjónarmið til að
gera þetta ódýrara, heldur tel ég að
það sé ekki víst að það séu fyrirtæki
sem geti annað þessu í þessu magni
sem Bjarg er að óska eftir,“ segir
Drífa.
„Þetta er alltaf hagsmunamat.
Við erum að reyna að lækka leigu,
við erum að reyna að byggja fljótt
og örugglega og það liggur mjög á
að koma húsum upp þannig að það
er víðtækt hagsmunamat sem fer
þarna í gang.“
Björn Traustason, framkvæmda-
stjóri Bjargs, benti á það í samtali við
Fréttablaðið á dögunum að umrædd
hús væru framleidd af Byko-LAT,
timburverksmiðju íslenska bygg-
ingarvörurisans BYKO í Lettlandi.
Modulus, sem útvegi einingarnar, sé
einnig íslenskt fyrirtæki tengt Byko-
fjölskyldunni og allt sé þetta íslensk
hönnun. Húsin komi í flytjanlegum
einingum búin gólfefnum, innrétt-
ingum, máluð að innan og nær til-
búin. Aðeins eigi eftir að púsla þeim
saman á staðnum og klæða að utan.
Lágmarkslaun í Lettlandi eru sem
nemur 60 þúsund krónum á mán-
uði, meðallaun rúmar 80 þúsund,
og því ljóst að vinnuaflið er ódýrara
þar í landi en hér.
Í samtali við RÚV í fyrradag sagði
Björn að þrýstingur um hagkvæmni
sem fylgt hafi stofnframlögum frá
Íbúðalánasjóði hefði orðið til þess
að þessi leið var valin á Akranesi.
„Það vantar íbúðir núna og ef við
getum helmingað smíðatíma húsa
þá þýðir það að fólk sem vantar hús-
næði fær það fyrr. Það er það sem
þjóðfélagið er að kalla á í dag og við
erum að reyna að koma til móts við
þær þarfir,“ segir Björn í samtali við
Fréttablaðið.
mikael@frettabladid.is
60.000
krónur eru lágmarkslaun
í Lettlandi.
2 3 . n ó v e m B e r 2 0 1 8 F Ö s t U d a G U r12 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
7
D
-0
E
B
4
2
1
7
D
-0
D
7
8
2
1
7
D
-0
C
3
C
2
1
7
D
-0
B
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K