Fréttablaðið - 23.11.2018, Síða 70
Aðalpersónan í nýrri skáldsögu Bergsveins Birgissonar, Lifandi-lífslækur, er Magnús Árelíus sem seint á 18. öld er sendur sem
fulltrúi danskra yfirvalda í Stranda-
sýslu til að meta ástand samfélagsins.
Dönsk yfirvöld eru að íhuga hvort
flytja beri alla vinnufæra Íslendinga
til Danmerkur. Magnús Árelíus er inn-
blásinn af anda upplýsingarinnar en
kynnist annars konar raunveruleika
á Ströndum.
Bergsveinn, sem býr og starfar í
Björgvin í Noregi, var hér á landi á
dögunum. Spurður um hina nýju
skáldsögu sína segir hann: „Ég hef
verið að skoða upplýsingarmanninn
í ljósi þess sem er að gerast í dag. Ég
fór einfaldlega að hugsa: Hvar byrjaði
þetta allt saman að maðurinn fór að
horfa á náttúruna sem fyrirbæri sem
hann gæti drottnað yfir og ráðsk-
ast með að vild. Ég lít svo á að það
sé upplýsingarmaðurinn sem búi að
baki þeirri blindu skynsemisdýrkun
og falsskynsemi sem við búum við
í dag og er að smætta líf okkar allra.
Rómantíkin reyndi að sporna við og
minna á aðrar hliðar, en nú óttast ég
mótstöðuleysið. “
Var upplýsingarmaðurinn þá ekki
eins upplýstur og hann sjálfur taldi sig
vera?
„Upplýsingarmaðurinn kom með
ný trúarbrögð. Vitanlega stendur
hann á bak við mikið af framförum en
þær eru nú orðnar svo miklar að þær
ógna öllu lífi. Vitanlega er það hér sem
hnífurinn stendur í kúnni varðandi
loftslagsbreytingar, mengun og hinn
óhóflega ágang á höfuðstól jarðar.
Maðurinn hefur sigrað allt en um leið
er hættan sú að hann tapi mennsku
sinni. Þetta langaði mig til að klæða
í litla sögu.“
Maður sem trúði á eigin reisn
Af hverju valdirðu Strandir sem sögu-
svið?
„Magnús Árelíus gat farið hvert sem
er, en það er visst ofbeldi í farvatninu
gagnvart einmitt þessu svæði, og er
sem miníatýr af því sem gerist hnatt-
rænt. Hvalárvirkjun felur í sér að land-
ið er gefið erlendu auðvaldi í nafni
skynsemi og aukinnar framleiðslu
á bitcoin sem enginn þarf. Gróðinn
af rafmagnssölu endar hjá nokkrum
ríkum í Kanada. Kalla mætti þetta
nútímabirtingu hugarfarsins sem
ég var að tala um, og sem ég held að
æ fleiri sjái að er „skynsemi“ sem að
lokum mun granda öllu lífi. Auk þess
er ég ættaður af þessu svæði og þekki
ágætlega til þar.
Á þessum tíma var þetta svæði
mjög einangrað og fornlegt. Ég valdi
þennan stað líka vegna þess að þarna
var maður sem ég hef lengi verið svag
fyrir að setja á bók. Hann hefur lengi
heillað mig og lifir enn í munnmælum
á Ströndum. Þetta er Hallvarður Halls-
son kenndur við Horn þar sem hann
ólst upp. Hann var í Skjaldabjarnar-
vík árið 1785 þegar Magnús Árelíus
fer þarna um. Ég hef lengi velt því fyrir
mér af hverju Hallvarður er þessi goð-
sögn.“
Hver er ástæðan heldurðu?
„Ég get ekki svarað því algjörlega
en á þessum mesta niðurlægingar-,
harðinda- og kúgunartíma reis hann
upp og sýndi engan undirlægjuhátt
gagnvart einokun og syndahjali. Hann
trúði á sína eigin reisn fremur en það
samfélagskerfi sem var þröngvað upp
á fólk.“
Af hverju ertu upptekinn af þessari
manngerð?
„Þrátt fyrir allt babl um frelsi er ég
hræddur um að við séum að sigla inn
í alræðistíma, þar sem aðrir heimar
og aðrar heimsmyndir mega sín lítils.
Það á að eyða öðrum lífsháttum og
annarri sýn á lífið. Mér finnst þetta
alræði hafa komið eins og þjófur að
nóttu. Svo erum við læst inni í kúgandi
efnahagskerfi, miðstéttin er að hverfa
og eftir standa elíta og restin. Það er of
lítill efi eða uppreisn gegn þessu. Ætli
það sé ekki uppreisnarandinn í Hall-
varði sem heillar mig. Þannig mann-
eskjur eru til og ég hef þá trú að þær
verði alltaf til. Edward Snowden er
til dæmis dæmi um mann sem hefur
breytt miklu. Ég trúi á þessa mann-
gerð.“
Hluti af handverkinu
Bókin gerist á 18. öld, lagðirðu mikið á
þig til að ná stíl og orðfæri þessa tíma?
„Já, ég hef grúskað töluvert í þessum
tímum þar sem miðaldahugsunin er
að víkja fyrir nýju vísindahugsuninni.
Mér finnst það vera hluti af handverk-
inu sem ég hef alltaf lagt mikla áherslu
á í mínum verkum, að taka sér góðan
tíma í slíkt. Þetta var dönskuskotið og
latínuskotið mál á þessum tíma og ég
reyni að laða fram andblæ þessa í text-
anum framan af. Ég hef samt alltaf lagt
mig eftir því að skrifa fyrir venjulegt
fólk, en um leið finnst mér skemmti-
legt ef lesandi vill vera með mér og
taka við smá brýningu. Mál og inni-
hald verður aldrei aðskilið.“
Hver eru svo næstu verkefni?
„Það er eitt og annað. Ég setti skáld-
sögu í salt og tók aðra úr salti sem ég
er að skoða. Svo er ég að vinna að
fræðibók um fyrsta sagnaritara Nor-
egs sögu sem var Íslendingur og er
algjörlega gleymdur og hét Þormóður
Torfason. Það eru fleiri verkefni í far-
vatninu. Ég reyni alltaf að vera með
nokkur járn í eldinum. Svo finnur
maður skyndilega að verk er orðið
þroskað í undirvitundinni og þá tekur
maður það fram og hamrar úr því ein-
hvern hlut.“
Maðurinn hefur sigrað allt
Þrátt fyrir allt babl um frelsi er ég hræddur um að við séum að sigla inn í alræðistíma, segir Bergsveinn. FréttaBlaðið/anton Brink
Í nýrri skáldsögu
Bergsveins Birgis-
sonar kynnist
maður innblásinn
af anda upplýs-
ingarinnar raun-
veruleikanum á
Ströndum.
Ég hef Samt alltaf
lagt mig eftir þvÍ
að Skrifa fyrir venjulegt
fólk, en um leið finnSt mÉr
Skemmtilegt ef leSandi vill
vera með mÉr og taka við
Smá Brýningu.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
2 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r52 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð
bækUr
Svik
HHH H
lilja Sigurðardóttir
Útgefandi: JPV
Fjöldi síðna: 390
Úrsúla hefur um árabil unnið fyrir
alþjóðleg hjálparsamtök og er með
áfallaastreitu á háu stigi eftir að
hafa bæði tekist á við ebólufaraldur
og skipulag flóttamannabúða fyrir
stríðshrjáða. Hún flytur heim til
Íslands til að geta varið meiri tíma
með fjölskyldu sinni og þegar sagan
Svik hefst hefur hún þegið boð um
að verða innanríkisráðherra, ekki
kannski alveg það sem læknirinn
fyrirskipaði en hún tekur starfinu til
að hafa áhrif til góðs. Í kjölfarið fer af
stað spennandi atburðarás þar sem
fléttast saman nokkrar sögur þar til
æsispennandi endapunkti er náð.
Lilja Sigurðardóttir vex með hverri
bók og hefur gott vald á bæði per-
sónusköpun og að spinna spennandi
söguþráð sem heldur lesandanum
vel. Svik er spennusaga þar sem við
fylgjum nokkrum þráðum sem allir
koma saman að lokum. Sögusviðið er
Reykjavík í samtímanum en sjónar-
horn sögupersóna og borgin sem
þær búa í eru innbyrðis ólík. Við
fylgjumst með daglegu lífi útigangs-
manns, ungri konu sem á erfitt með
að finna fótfestu í lífinu og býr við
fátækt, bílstjóra með drauma og
háleit markmið um viðameira og
merkingarbærara starfsheiti og svo
auðvitað Úrsúlu sjálfri en í gegnum
hana fáum við innsýn í daglegt líf
stjórnmálamanns. Inn í fléttast svo
pólitískar leikfléttur, persónulegir
harmleikir og draugar fortíðar. Sögu-
tíminn er aðeins tæpar þrjár vikur
en mjög viðburðaríkar og spennan
magnast smám saman uns hún nær
hápunkti undir lokin eins og vera ber
í góðri spennusögu.
Hliðarsögurnar eru áhugaverðar,
ástarævintýri fréttakonunnar og
ungu stúlkunnar kannski aðeins of
fjarri aðalsögunni en nógu áhuga-
vert til að það skemmir ekki fyrir og
þá er bílstjórinn einnig athyglisverð
persóna sem minnir á persónu líf-
varðarins í samnefndum
breskum sjónvarpsþáttum
um lífvörð sem fenginn
er til að gæta kvenráð-
herra. Úrsúla sjálf er
margbrotin og mannleg,
úrvinnsla hennar úr því
sem hún hefur orðið
vitni að og lýsingarnar á
lífinu í ebólufaraldrinum
og svo sprengjuregninu
í samanburði við þann
hversdagsleika sem hún tekst á við
heima eru vel gerðar og raunsæjar án
þess þó að fara dýpra í hryllinginn en
hæfir í spennusögu.
Sjónvarpsþættir um líf kvenna í
stjórnmálum hafa notið vinsælda,
sem dæmi má nefna Borg en og The
Bodyguard sem áður var
vísað í. Það er ekki erfitt
að sjá fyrir sér sjónvarps-
þáttaröð sem byggir á
þessari bók enda fléttan
og persónusköpunin vel
til þess fallin að byggja á
henni slíkt efni.
Síðasta verk Lilju Sig-
urðardóttur var þríleikur
og það væri ánægjulegt ef
Svik væri bara fyrsta bókin
um þessar persónur.
Brynhildur Björnsdóttir
niðUrSTAðA: Vel skrifuð spennu-
saga sem heldur lesandanum við
efnið með vel uppbyggðri fléttu og
áhugaverðum persónum.
Svik í Reykjavík
menning
2
3
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
7
D
-1
8
9
4
2
1
7
D
-1
7
5
8
2
1
7
D
-1
6
1
C
2
1
7
D
-1
4
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
9
6
s
_
2
2
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K