Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Blaðsíða 8
8 7. september 2018FRÉTTIR Í ris Dögg Stefánsdóttir fékk blóðtappa í höfuðið aðfaranótt laugardagsins 25. ágúst síðast­ liðinn. Hún var flutt á Landspít­ alann í Fossvogi, þar sem hún lést ellefu dögum síðar, aðfaranótt miðvikudagsins 5. september, um­ vafin sínum nánustu, hún komst aldrei til meðvitundar. Íris Dögg skilur eftir sig fjögur börn á aldr­ inum 12–21 árs og hefur söfnun verið hrundið af stað til að standa straum af kostnaði vegna jarðar­ farar hennar og tryggja fjárhags­ lega velferð barnanna. „Íris Dögg var að vinna föstu­ daginn 24. ágúst síðastliðinn í veiðihúsinu hér í Jökulsárhlíð. Hún var búin að kvarta yfir höfuð­ verk yfir daginn og fá svima og vildi bara fara heim að hvíla sig,“ segir Anna Hólm Stefánsdóttir, eldri systir Írisar Daggar. „Unnusti hennar, Ásgeir Páll Baldursson, vildi keyra hana heim, en hún neitaði því og vildi bara frið og sagðist hvílast betur ein. Íris Dögg tók parkódín og lagði sig. Um miðnætti komu dóttir hennar og sonur minn heim. Þá var Íris Dögg inni hjá sér og síð­ ar um nóttina heyra þau undar­ leg hljóð, þá var Íris Dögg eins og í flogakasti. Þetta var um tvö leytið aðfaranótt laugardags. Fyrst var farið með hana í Neskaupstað, því talið var að þetta væri flogakast vegna vinnuálags.“ Þegar ljóst var að ástandið var alvarlegra var flogið með hana til Reykjavíkur og lent þar um tíu leytið að morgni laugardags 25. ágúst. Íris Dögg komst aldrei til meðvitundar. „Við fengum að vita að ósæðin hafði stíflast, kominn í hana tappi sem var losaður. Í kjölfarið rofn­ aði æð í höfði, líklega vegna líkam­ legs álags og þá varð ljóst í hvað stefndi.“ Íris Dögg skilur eftir sig fjögur börn;12, 15, 17 og 21 árs, og elsta dóttir hennar á von á sínu fyrsta barni daginn fyrir jarðarför Írisar Daggar, sem verður 22. september. „Börnin hennar völdu séra Ólöfu Snorradóttur til að annast út­ förina, en hún er erlendis og því dregst jarðarförin þar til Ólöf kem­ ur heim. Ólöf fermdi þau, var með okkur nóttina sem Íris Dögg lést og einnig þegar móðir okkar lést fyrir tveimur árum, 30. maí 2016. Móðir okkar greindist með krabbamein árið 2009 og þá var henni sagt að hún myndi ekki lifa fram á það haust, en við segjum alltaf að við höfum grætt sjö ár með henni, en hún var rétt sextug þegar hún lést.“ Fjölskyldan er búsett á Egils­ stöðum og segir Anna að nærsam­ félagið hafi hlúð að þeim eftir and­ lát Írisar Daggar. „Við höfum fengið afar mikið af fallegum kveðjum og skilaboðum og boðum um aðstoð. Við erum bara eiginlega með höf­ uðið á „rest mode“ en þegar nær dregur jarðarför munum við þiggja þá aðstoð sem verður í boði.“ Íris Dögg var á örorkubótum vegna stoðkerfis og kvíða og gafst henni því ekki kostur á að líftryggja sig og átti engan varasjóð fyrir út­ för. Litlir fjármunir eru því til stað­ ar til að standa undir útfararkostn­ aði eða tryggja fjárhagslega velferð barna hennar í framtíðinni. „Ég sagði við föður okkar að það væri gott ef umfjöllun vekti fólk til umhugsunar um mikilvægi þess að tryggja hag barna sinna ef eitthvað óvænt kæmi upp á. Markmið söfnunarinnar er að styrkja börnin og fjölskyldu á erf­ iðum tíma. Sorgin er næg þótt fjár­ hagsáhyggjur bætist ekki ofan á.“ Reikningurinn er á nafni og kennitölu móðursystur Írisar Daggar. Við hvetjum þá sem geta lagt söfnuninni lið að gera það. Margt smátt gerir eitt stórt. Reikningur: 0123-05-010052 Kennitala: 150160-2439 – Ljóð sem Ásgeir Páll, unnusti Írisar Daggar, orti í minningu hennar: Alltaf þú brúaðir bilið á milli bræddir mitt hjarta, sorgir og sár Þú skalt því hafa hug þess og hylli heiðvirð um ókomin ár Lífið er dans ekki alltaf á rósum lifnaði aldrei hinn fegursti dans Bjartsýnn þó riti úr bókum og glósum bljúgur minn fegursta krans Oft finnst birtan falleg í heiði fegurstu dagarnir draumana fá Sú mun sólrík skína á þitt leiði sælt verður hana að sjá Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is SKILUR EFTIR SIG FJÖGUR BÖRN n Íris Dögg varð bráðkvödd 35 ára Józef fékk tveggja mánaða dóm fyrir að stela vegahandbók á bensínstöð H éraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Józef Jan Damrath í sextíu daga fang­ elsi fyrir þjófnað. Józef ját­ aði brot sitt fyrir dómi en hann stal vegahandbók í verslun N1 Ártúns­ höfða. Handbókin er metin á 4.990 krónur en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum þremur árum frá upp­ kvaðningu dómsins haldi hann al­ mennt skilorð. Józef sem er fæddur árið 1956 á að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 2006 en með broti sínu rauf hann skilorð. Józef var í byrjun árs 2017 dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir þjón­ að. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að Józef viðkenndi brot sitt. Auk þess var litið til þess að ekki voru mikil verðmæti í húfi. Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kvað upp dóminn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.