Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Blaðsíða 14
14 7. september 2018FRÉTTIR
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR &
UNDIRKERFI
Þrír
rússneskir
blaðamenn
myrtir í Afríku
S
nemma morguns dag einn
í lok júlí fundust lík þriggja
rússneskra blaðamanna í
um 200 kílómetra fjarlægð
frá Bangui, höfuðborg Mið-Afríku-
lýðveldisins. Þeir höfðu allir verið
skotnir. Embættismaður á vegum
Sameinuðu þjóðanna sagði að
mennirnir hefðu verið myrtir
af meðlimum eins ótal margra
hópa uppreisnarmanna í landinu.
Fljótlega var ljóst að hvorki yfir-
völd í Mið-Afríkulýðveldinu né
rússneska sendiráðið vissu um
veru blaðamannanna í landinu.
Morðin hafa vakið upp spurningar
um hvort rússneskir málalið-
ar séu að störfum í Afríku. Blaða-
mennirnir þrír, sem allir voru
þaulreyndir, sjálfstætt starfandi
blaðamenn, höfðu farið til Mið-
Afríkulýðveldisins til að kafa ofan
í hernaðarumsvif Rússa þar. Þetta
voru þeir Orkhan Dzhemal stríðs-
fréttamaður, Alexander Rastoguev
rannsóknarblaðamaður og Kiril
Radchenko myndatökumaður.
Allt bendir til að hernaðarumsvif
Rússa í þessu sárfátæka ríki séu
miklu meiri en almenningur veit.
Málið hefur vakið athygli víða um
heim og hefur valdið því að um-
heimurinn veltir fyrir sér hversu
mikil hernaðarumsvif Rússa séu á
svæðinu.
Náin tengsl við Pútín
Þremenningarnir höfðu fengið
veður af fyrirtæki sem er í eigu
rússneskra kaupsýslumanna sem
tengjast Vladimír Pútín Rúss-
landsforseta nánum böndum. Auk
þess tengjast þessir kaupsýslu-
menn leynilegum her rússneskra
málaliða sem er þekktur undir
nafninu Wagner-hópurinn. Þetta
fyrirtæki er nýbyrjað að stunda
námuvinnslu í Mið-Aríkulýð-
veldinu.
Blaðamennirnir ætluðu að
fara að gullnámu á yfirráðasvæði
eins uppreisnarhópsins og rann-
saka tengsl Rússa og áhrif þeirra.
Þessu skýrði Mikhail Khodorkov-
sky, stofnandi The Centre for In-
vestigation í Moskvu, frá eftir að
fréttist af morðunum. Hann sagði
að þremenningarnir hafi starfað
með fleirum að rannsókn á mál-
inu og hafi hún að hluta snúið að
rússneskum leigumorðingjum.
Khodorkovsky var eitt sinn rík-
asti maður Rússlands. Í dag er
hann þekktastur fyrir að vera einn
mesti gagnrýnandi landsins á
stjórn Pútíns.
Maria Zakharova, talskona
rússneska utanríkisráðuneytisins,
var fljót að bregðast við fréttum
af málinu og sagði að málið sem
blaðamennirnir voru að rannsaka
hefði ekki verið „neitt merkilegt“.
Hún vísaði einnig til nýlegs samn-
ings Rússlands og Mið-Afríkulýð-
veldisins um hernaðarsamstarf
ríkjanna.
Mikil leynd
Margir telja það opinbert leyndar-
mál að rússneskir málaliðar séu
að störfum í Afríku en ekki er vit-
að hversu margir þeir eru eða hvað
þeir eru að gera. Financial Times
hefur eftir Lewis Mudge, sem sér-
hæfir sig í rannsóknum á afrísk-
um málefnum fyrir mannréttinda-
samtökin Human Rights Watch,
að fólk í Mið-Afríkulýðveldinu
segi að liðsmenn Wagner séu þar
að störfum. Á undanförnum árum
hefur komið fram í dagsljósið að
rússneskir málaliðar hafa starf-
að með mikilli leynd í Úkraínu og
í Sýrlandi en eins og í Mið-Afríku-
lýðveldinu hvílir mikil leynd yfir
verkefnum þeirra og þeirri stað-
reynd að þeir séu til staðar. Hvað
varðar samstarfssamning Rúss-
lands og Mið-Afríkulýðveldisins
þá felst í honum að Rússar sendi
fimm hernaðarráðgjafa og 170 al-
menna ráðgjafa til Bangui. Rúss-
ar vinna að þjálfun hers landsins í
dag og öryggissveita Faustin Tou-
adera forseta. Svo vill til að nán-
ustu öryggisráðgjafar forsetans eru
Rússar. Rússar selja einnig vopn
til landsins og aðstoða við rekstur
æfingabúða í borginni Sibut en
rússnesku blaðamennirnir þrír
heimsóttu borgina einmitt á ferð
sinni um landið. Í lok ágúst skrif-
aði varnarmálaráðherra Rúss-
lands undir nýjan samstarfs-
samning við starfsbróður sinn
frá Mið-Afríkulýðveldinu um enn
frekari samvinnu ríkjanna tveggja.
Innihald samningsins hefur ekki
verið opinberað en franska dag-
blaðið Le Monde segir að eftir því
sem Sergej Sjojgu, varnarmálaráð-
herra Rússlands, hafi upplýst þá sé
markmið samningsins að styrkja
tengsl ríkjanna í varnarmálum.
Hann er sagður hafa sagt að Mið-
Afríkulýðveldið væri áhugaverður
samstarfsaðili í Afríku.
Áratuga langt borgarastríð
Borgarastríð hefur staðið yfir í
Mið-Afríkulýðveldinu áratugum
saman en ótal hópar uppreisnar-
manna berjast gegn stjórnvöldum
og hver öðrum. Engin framþró-
un er í landinu vegna átakanna og
fjárfestar halda sig víðs fjarri þessu
stríðshrjáða ríki þrátt fyrir að þar
sé mikið af gulli, demöntum og
úrani enda er staða öryggismála í
landinu vægast sagt slæm. Thierry
Vircoulon, sérfræðingur í málefn-
um Mið-Afríku hjá International
Crisis Group, sagði í samtali við
Financial Times að Rússar væru að
styrkja stöðu sína í Afríku og Mið-
-Afríkulýðveldið sé ein af leiðun-
um inn í álfuna. Ríkisstjórn lands-
ins sé veikburða og því auðvelt að
eiga við hana.
Sama dag og Rússar skrifuðu
undir nýja samninginn við Mið-
Afríkulýðveldið skrifuðu þeir und-
ir samstarfssamning um hernað-
armál við stjórnvöld í Búrkína
Fasó. Áður höfðu þeir gert við-
líka samninga við Eþíópíu, Gíneu,
Lýðstjórnarlýðveldið Kongó og
Mósambík. Þá selja Rússar vopn
til Nígeríu og Angóla og koma að
námuvinnslu þar. Rússar hafa ekki
farið leynt með áhuga sinn á að
seilast til áhrifa í Afríku en Pútín
og aðrir embættismenn í Rúss-
landi þegja hins vegar þunnu
hljóði um leynileg störf rússneskra
málaliða í álfunni og önnur umsvif
sem þola illa dagsljósið. n
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Faustin Touadera, forseti Mið Afríku Lýðveldisins