Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Blaðsíða 54
54 FÓLK 7. september 2018
Plastlaus september
Prófaðu umhverfisvæna ruslapokann
SEGÐU NEI VIÐ PLASTI
• Brotnar niður á nokkrum vikum
• Umhverfisvænn
• Slitsterkur
„Tussusnúður er alltaf gott svar
ef þú veist ekki hvað þú átt að segja“
Ef þú þyrftir að breyta, hvað myndirðu
vilja heita annað en Friðrik Ómar eða
vera annað en tónlistarmaður?Var
virkilega sáttur við nafnið þar til Friðrik Dór
varð mesta poppstirni landsins. Er kallaður
Friðrik Dór einu sinni í viku. Myndi segja að
ég væri til í að heita Ragnar Sigurðsson.
Hverjum líkist þú mest? Pabba og
mömmu. Ágætis blanda.
Hvað halda margir um þig sem er alls
ekki satt? Að ég geti ekki spilað á trommur.
Í hverju finnst þér þú vera betri en aðrir?
Finna gott samstarfsfólk. Engin spurning!
Hvað finnst þér að eigi að kenna í skólum
sem er ekki kennt þar núna? Að gera
skattskýrslu.
Ef þú þyrftir að eyða 1 milljón á klukku-
tíma, í hvaða verslun færirðu? Hljóðfæra-
húsið/Tónabúðin.
Hvað viltu að standi skrifað á legsteinin-
um þínum? Batnaði með aldrinum.
Sex ára barn spyr þig hvort að jóla-
sveinninn sé til. Hvernig svarar þú?
Auðvitað. Ho ho ho.
Hvernig myndirðu lýsa litnum gulur fyrir
blindum manni? Honum væri slétt sama
held ég.
Hvaða lag hefðir þú viljað hafa samið? I
Will Always Love You eftir Dolly Parton.
Hvaða lag skammastu þín mest fyrir að
hafa haldið upp á? Guð – ekki nokkurt.
Maður þroskast við að hlusta á alls konar.
Ef þú þyrftir að dansa til að bjarga lífinu,
undir hvaða lagi myndirðu vilja dansa?
Single Ladies með Beyonce.
Hvað ætti ævisagan þín að heita? Mað-
urinn sem elskar Siggu Beinteins.
Hvaða bíómynd hefurðu séð oftast?
Stellu í orlofi.
Hvað var í tísku þegar þú varst yngri en
er það ekki lengur? Jójó.
Yfir hverju getur þú alltaf hlegið?
Prumpi. Fæ aldrei nóg.
Borðarðu mat sem er kominn fram yfir
síðasta söludag? Já, en fer samt eftir því
hvað það er.
Hvað er það furðulegasta sem þú hefur
keypt? Pottþétt eitthvert grenningarlyf.
Hvert er versta hrós sem þú hefur feng-
ið? Ég er ekki hommi sko, en þú ert frábær
söngvari.
Heilsarðu frægum Íslendingum úti á
götu, þótt þú þekkir þá ekki persónu-
lega? Já, stundum.
Hvaða ósið hefur þér reynst erfiðast að
hætta? Naga neglurnar.
Hverju laugstu síðast? Er afspyrnu hrein-
skilinn svo ég man það barasta ekki.
Um hvað geta allir í heiminum verið
sammála? Hreint og gott vatn.
Ef þú mættir bæta við ellefta boðorðinu,
hvernig hljómaði það? Ekki elta þann sem
er með nammipokann.
Hvað í hegðun hins kynsins ruglar þig
mest? Hvað þær fara illa með karlmennina
okkar … haha djók.
Hvaða áhugamál myndirðu ekki sætta
þig við að maki þinn stundaði? Enska
boltann.
Á hvern öskraðirðu síðast? Bubba
Morthens.
Hvaða einstakling finnst þér þú þekkja,
þótt þú hafir aldrei hitt hann? Elvis.
Hvað er það merkilegasta sem hefur
gerst í heiminum á þínum líftíma? Að fá
að eldast kemur fyrst upp. En „over all“ er
það helst þakklæti fyrir fólkið mitt og vini.
Hvaða hljóð fer mest í taugarnar á þér?
Christina Aguilera.
Hvaða frægu persónu leistu upp til en
sérð eftir því í dag? Sé ekki eftir neinu.
„Live and learn!“
Hver er mest kynæsandi teiknimynda-
persónan? Tinni auðvitað.
Hvaða viðburð sérðu mest eftir að hafa
misst af? Whitney Houston í Stokkhólmi
þegar ég bjó þar 2011. Sat heima á jogging-
-gallanum og hugsaði: „ég fer bara seinna.“
Hún lést ári síðar.
Hvaða tveir hlutir eru hræðilegir hvor í
sínu lagi en frábærir saman? Hákarl og
sykur. Oj. Datt ekkert annað í hug.
Hver er fyndnasta „pick-up“-línan sem
þú hefur heyrt? Agalegt skvaldur hérna
inni. Eigum við ekki að spjalla heima hjá
mér bara?
Hver er lélegasti fimmaur sem þú hefur
heyrt? Hvað sagði gítarinn við gítarleikar-
ana? Farðu varlega – ég er með strengi.
Hvað er löglegt í dag en verður það
líklega ekki eftir 25 ár? Áfengi.
Hver er versta vinnan sem þú hefur
unnið? Mjög lánsamur með það. Vann í
fiski, útvarpi, bókabúð, bar … fílaði það.
Gaman að vinna.
Um hvað varstu alveg viss þangað til
þú komst að því að þú hafðir rangt fyrir
þér? Að ég hefði alltaf rétt fyrir mér.
Hvert er þitt stærsta líkamlega afrek
í lífinu? Að skíta á mig á rúntinum með
stjúppabba vinar míns þegar ég var 8 ára.
Í hvaða íþróttagrein finnst þér að kepp-
endur ættu að vera ölvaðir? Skíðastökki.
Ókei, ég grenja úr hlátri sjálfur. Þetta er gott
svar.
Hvaða kvikmynd þætti þér helst við
hæfi að breyta í söngleik? Bodyguard.
Hvað verður orðið hallærislegt eftir 5
ár? Nocco-orkudrykkurinn.
Ef þú yrðir handtekinn án skýringa, hvað
myndu vinir þínir og fjölskylda halda að
þú hefðir gert af þér? Rænt hljóðfæra-
verslun.
Hvaða teiknimyndapersónu myndirðu
vilja eiga sem vin? Tinna.
Hvað myndirðu nefna landið okkar ef við
þyrftum að breyta? Tussusnúður. Það er
alltaf gott svar ef þú veist ekkert hvað þú
átt að segja.
Hvað ættu allir að prófa að minnsta
kosti einu sinni í lífinu? Verða ástfangnir.
Hvað myndirðu segja ef Guð hnerraði?
Þegiðu.
Ef þú myndir borða sjálfan þig, hvort
myndirðu hverfa eða tvöfaldast? Hverfa!
Ef þróunarkenningin er rétt, af hverju
eru svín þá ekki með vængi? Af því það
væri mjög hallærislegt, en samt gaman
að sjá.
Nú labbar mörgæs með kúrekahatt inn
um dyrnar hjá þér. Hvað segir hún og af
hverju er hún þarna? Ertu alveg búin að
missa vitið? Dettur þér engin önnur spurn-
ing í hug? Af hverju er það bara ekki styttra
þetta viðtal?
Ef þú værir ritstjóri dagblaðs og sama
daginn myndi Lagarfljótsormurinn
finnast, Frikki Dór vinna Eurovision fyrir
Íslands hönd og Donald Trump verða
myrtur. Hver væri stærsta fyrirsögnin
í blaðinu þínu daginn eftir? Friðrik Dór
myrtur í Lagarfljóti.
Ef þú kæmir einn daginn heim úr
vinnunni og þar væri enginn nema Geir
Ólafsson í sturtu, myndirðu hringja í lög-
regluna? Nei. Geir er góður drengur. Smá
kaffisopi og svo myndi ég vísa honum út.
Hver er tilgangurinn með þessu jarðlífi?
Að elska Siggu Beinteins og Stjórnina.
Hvað er framundan um helgina? Ég ætla
að syngja úr mér hjartað í Eldborg á George
Michael-tónleikunum.
Friðrik Ómar er einn af ástsælli söngvurum þjóðarinnar. Hann hefur
keppt fyrir hönd okkar í Eurovision, heillað tugþúsundir með mögnuðum
stórtónleikum á Fiskideginum á Dalvík og fært okkur tónlist fjölmargra
listamanna í sýningum Rigg viðburða, en næst tekur hann fyrir lög George
Michael í Eldborg þann 14. september. Friðrik Ómar hlóð batteríin í sólinni
í Króatíu um leið og hann hlóð í svör og sýndi á sér hina hliðina.
HIN HLIÐIN