Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Blaðsíða 6
6 7. september 2018FRÉTTIR Hver er hann n Hann er fæddur í Reykjavík þann 8. janúar árið 1959. n Í lok árs 1996 var hann ráðinn fram- kvæmdastjóri Tóbaksvarnarnefnd- ar. n Hann varð bikarmeistari í frjálsíþróttum með FH árið 1988 og keppti í spjótkasti n Árið 2010 fékk hann Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir bókina Ertu Guð, afi? n Hann hefur unnið fyrir íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu undanfarin ár. SVAR: ÞORGRÍMUR ÞRÁINSSON Samlokubarinn gjaldþrota á rúmu ári Í byrjun júní í fyrra var opn- aður veitingastaðurinn Samlokubarinn með pomp og prakt. Staðurinn var stað- settur í verslun Krónunnar í Lindum og bauð upp á vel úti- látnar steikar- og BLT-samlok- ur auk rifja- og veganborgara. Alls tók staðurinn 25 manns í sæti og viðtökurnar virðast hafa verið góðar til að byrja með. Í viðtali við veitinga- geirinn.is, á þeim tíma, sagði annar eigandinn, Valþór Sverr- isson, að rifjaborgari staðar- ins væri að slá í gegn. Gamanið stóð þó stutt því í byrjun árs var veitingastaðnum lokað og þann 30. ágúst var búið tekið til gjald- þrotaskipta. Valþór, sem þekkt- ur er fyrir úravörumerki sitt 24Iceland, átti 65 prósenta hlut í fyrirtækinu á móti 35 prósenta hlut Nadiu Tamimi. Samlokubarinn í Krónunni, Lindum. MYND: VEITINGAGEIRINN.IS M iðað við þessa reynslu mína þá verð ég að ráð- leggja fólki að vista ekki kreditkortanúmer sín á ýmsum bókunarsíðum á netinu, jafnvel þó að um sé að ræða stórar síður eins og booking.com,“ segir Stefanía Ósk Þorsteinsdóttir, alltaf kölluð Ósk, í samtali við DV. Hún hefur undanfarna daga staðið í miklum bréfaskriftum við starfs- menn bókunarsíðunnar stóru vegna hótelbókunar sem skyndi- lega birtist á reikningi hennar og Ósk kannast ekki við. Viðbrögð booking.com hafa valdið henni miklum vonbrigðum en með- al annars hefur hún verið sökuð um að vera óprúttinn tölvuhakk- ari. „Þetta er búið að kosta mikinn tíma og ónæði.“ Skráð fyrir bókun hafnfirskrar fjölskyldu Forsaga málsins er sú að Ósk fékk á dögunum textaskilaboð á sím- ann sinn þess efnis að það styttist í helgarferð hennar til Edinborgar. „Ég hrökk við enda hafði ég ekki bókað neina ferð þangað,“ segir Ósk. Þegar hún kannaði málið frekar sá hún að á reikningi henn- ar á booking.com var sannarlega skráð bókun á gistingu í Edinborg í nokkra daga fyrir tvo fullorðna og eitt barn. Fljótlega komst hún að því að um var að ræða fjölskyldu frá Hafnarfirði sem að hafði sett inn allt annað kreditkortanúmer. „Eftir á að hyggja var ég mjög heppinn að þetta voru Íslendingar en ekki útlendingar þannig að auðvelt var að finna fólkið. Ég hringdi í fjölskylduföðurinn sem var skrifaður fyrir pöntuninni og spurði hann hvort fjölskylda hans væri á leið til Edinborgar fljótlega og hvort að kreditkortanúmerið hans endaði á tilteknum tölum,“ segir Ósk. Að hennar sögn vissi maðurinn ekki hvaðan á hann stóð veðrið, skiljanlega, en þegar hún hafði útskýrt málavöxtu fyrir honum varð þeim hjónum mjög brugðið. Sökuð um að vera svikull hakkari „Okkur fannst þetta náttúrlega stórundarlegt og höfum síðan verið í góðu sambandi við að leysa þetta mál,“ segir Ósk. Að hennar sögn hafi báðir aðilar málsins sent ítrekað tölvupóst á booking. com og hringt til þess að óska eftir skýringum og fá bókunina leiðrétta. Það gerðist ekki, heldur brást fyrirtækið við með undarleg- um hætti. „Hafnfirska fjölskyldan fékk þau svör frá booking.com að ég væri augljóslega svikull hakkari og þau skyldu loka sínum aðgangi og kreditkorti.“ Þar sem ruglingur- inn var augljóslega algjör ákváðu hafnfirsku hjónin að frysta kortið sitt tímabundið. „Það vildi svo heppilega til að ég hafði skömmu áður lokað kreditkortinu mínu út af ótengdu máli. Það var eins gott því ég fékk fljótlega skilaboð frá booking.com að gjaldfærsla á mitt kort hefði ekki gengið og því myndi ég fljótlega missa gistinguna í Edin- borg og þurfa að greiða sekt. Ef kortið mitt hefði verið opið þá hefði hótelið gjaldfært háa upphæð af mínu kreditkorti sem ég hefði örugglega aldrei fengið endurgreidda. Þetta var því lán í óláni,“ segir Stefanía. Hún er afar ósátt við booking.com og þau tilsvör sem hún hefur fengið frá fyrir tækinu. „Ég hef óskað eftir skýringum frá fyrirtækinu en hef ekkert heyrt í rúma viku. Ég hef notað þessa bókunarsíðu mjög mikið, en öryggi síðunnar er greinilega ekki meira en þetta. Ég verð því að ráðleggja öllum að hafa varann á varðandi skráningu kreditkorta sinna á netinu,“ segir Ósk. „Ég verð því að ráð- leggja öllum að hafa varann á varðandi skrán- ingu kreditkorta sinna á netinu STÆRSTA BÓKUNARSÍÐA HEIMS SAKAÐI ÓSK UM AÐ VERA TÖLVUHAKKARA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.