Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Blaðsíða 56
7. september 2018
34. tölublað xxx. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Tilboð og innblástur
Nýtt blað frá
Hólf og gólf
Skoðaðu á byko.is
Komdu eldhúsinu í lag fyrir jólin!
25%
afsláttur
JKE innréttingar eru
á 25% afslætti út
september.
Tilboð
Tilboð Tilboð
Veggflís
Hexagonal, glans
og matt, spænsk
flís, 17x15cm
4.900kr/m2
18087645/7
Almennt verð: 6.950kr/m2
DECUS
Native Eik
8mm, 1285x192mm
Hörkustuðull AC4/32
1.765kr/m2
0113509
Almennt verð: 2.622kr/m2
Handlaug
Á borð, 56x45cm.
Blöndunartæki
fylgja ekki með.
9.900
10708505
Almennt verð: 19.795
Tilboð
Space
handlaugar-
tæki. krómað
6.995
15510821
Almennt verð: 9.395
Tilboð
Spegill
Spegill með LED
ljósi. 62x70cm.
12.995
10705200
Almennt verð: 15.995
Salerni
Vegghengt með
hæglokandi setu.
Án skolbrúnar. C+
45.995
13002336
Almennt verð: 59.995 B
ir
t m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
p
re
nt
vi
ll
ur
o
g/
eð
a
m
yn
da
br
en
gl
.
Hann var
örugg-
lega súr!
Lítt þekkt
ættartengsl
H
in skelegga og beitta
blaðakona Þóra Kristín
Ásgeirsdóttir hefur
komið víða við á ferl-
inum, meðal annars á RÚV,
Stundinni, Morgunblaðinu og
Fréttatímanum þar sem hún
var fréttastjóri. Nýverið tók
Þóra við stöðu upplýsingafull-
trúa hjá Íslenskri erfðagrein-
ingu en hún skrifar enn þá
pistla sem hitta í mark.
Yngri systir hennar er Ester
Bíbí Ásgeirsdóttir, bassaleik-
ari hinnar goðsagnakenndu
rokksveitar Kolrössu Krókríð-
andi. Bandið naut mikilla vin-
sælda um miðjan tíunda ára-
tuginn og gerði svo tilraun til
að „meikaða“ erlendis sem
Bellatrix og túraði til dæmis
með Coldplay. Meðlimir Kol-
rössu komu nýverið saman
eftir nærri tuttugu ára hlé. Ester
starfar hjá Kvikmyndasafni Ís-
lands.
Móðir Þóru og Esterar er
Sigríður Jóhannesdóttir, fyrr-
verandi alþingismaður Al-
þýðubandalagsins og Samfylk-
ingarinnar. Bæði Þóra og Ester
hafa tekið sæti á framboðslista
hjá Vinstri
grænum.
Refur réðst á sex ára son Freyju
Í
vikunni birti DV hugljúft mynd-
skeið af ungum dreng sem lék
sér við óvenju gæfan ref. Fór
afar vel með á þeim félögum
og bræddi myndbandið eflaust
ófá hjörtun. Refurinn heldur sig
til við Ferðaþjónustuna á Mjóeyri,
skammt frá Eskifirði, sem er lítið
fjölskyldufyrirtæki í eigu Sævars
Guðjónssonar og Berglindar Ingv-
arsdóttur. Þangað var yrðlingurinn
fluttur eftir að hafa fundist yfirgef-
inn í greni og unir hag sínum vel.
Það eru þó ekki allir ánægðir með
kynni sín af refnum.
„Við heimsóttum þennan stað
í byrjun ágúst á þessu ári. Það var
hræðileg reynsla því refurinn réðst
samstundis á sex ára son minn
þegar hann labbaði að honum.
Það var í raun heppni að ekki hafi
farið verr því ég náði að rífa barnið
upp af jörðinni og frá refnum. Son-
ur minn var var mjög hræddur og
brotinn eftir þessa reynslu,“ seg-
ir Freyja Ösp Burknadóttir í sam-
tali við DV. Að hennar mati er stór-
hættulegt að halda villt dýr með
þessum hætti og hvað þá að aug-
lýsa veru þeirra þannig að þau séu
sérstakt aðdráttarafl fyrir ferða-
menn.
Í samtali við DV staðfestir
annar eigandi Ferðaþjónustunnar,
Berglind Ingvarsdóttir, að umrætt
atvik hafi átt sér stað en að um ein-
angrað tilvik hafi verið að ræða.
„Við hörmum það mjög að þetta
hafi átt sér stað. Þetta er villt dýr
og við leggjum upp úr því að gestir
okkar séu meðvitaðir um það. Við
höfum fengið gríðarlegan fjölda af
ferðamönnum, íslenskum og er-
lendum, til okkar og þessi gæfi ref-
ur hefur slegið í gegn. Það hefur
ekki neitt annað tilvik átt sér stað,“
segir Berglind. Hún gerir ráð fyrir
því að eðli refsins muni segja til sín
og hann haldi brátt til fjalla. „Nátt-
úran er svo sterk í þessum dýrum.
Hann er byrjaður að láta til sig
hverfa í 1–2 daga og ég reikna með
því að fljótlega muni hann ekki
snúa aftur heim,“ segir Berglind.
Þóra Kristín
Ásgeirsdóttir
Ester Bíbí Ásgeirsdóttir