Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Blaðsíða 30
Veitingar og rómantík 7. september 2018KYNNINGARBLAÐ Rauða serían eignast fjölmargar nýja lesendur með raf- og hljóðbókum Áratugum saman hafa lands-menn átt góðar stundir með bókunum úr Rauðu seríunni sem seldar eru í kiljum víðs vegar um landið. Sögurnar eru í senn spennandi, rómantískar og dálítið erótískar. Rósa Vestfjörð Guðmunds- dóttir stofnaði útgáfuna árið 1985 og ekkert lát er á starfseminni núna 30 árum síðar. Ásútgáfan er í takt við tímann og núna eru bækurnar í Rauðu seríunni komnar í rafbækur og hljóðbækur. „Þarna er kominn stór nýr lesenda- og hlustendahópur. Þetta er frá- bært fyrir þá sem eiga erfitt með að nálgast kiljurnar eða vilja lesa bækur í símanum sínum, iPadinum eða t.d. hlusta á ferðalögum,“ segir Rósa. Vefsíðan er ein af stærstu raf- bókabúðum á Íslandi. Þar er hægt að velja úr 637 titlum og 27 hljóðbókum. Í hverjum mánuði koma inn 6 nýir titlar af rafbókum en hljóðbækurnar koma óreglulega. Nýlega bættist ný hljóðbók við safnið. Rafbækurnar eru mjög góðar fyrir þá sem sjá illa eða eiga erfitt með að lesa bækurn- ar. Óhætt er að segja að lands- menn hafa tekið bókunum í þessum nýju formum vel og hefur Rósa átt margar ánægjustundir við að miðla þeim til lesenda: „Mér fannst mjög skemmtilegt þegar 15 ára drengur hringdi í mig og skráði ömmu sína í áskrift hjá mér að rafbókunum. Hann var að kenna ömmu sinni á iPadinn og hvern- ig hún gæti lesið rafbækurnar. Ég sendi henni rafbækurnar ópakkaðar í tölvupósti. Fjölskyldan hafði ákveðið að gefa ömmu iPad í jólagjöf því hún hafði alltaf lesið bækurnar mínar en sá ekki lengur til að lesa þær. Ég er með 10 manns sem ég sendi rafbækurnar þannig, sex titla hverjum, eða óþjappaðar sem Word-skjöl. Þá þurfa þeir bara að opna póstinn og geta lesið beint, þurfa ekki að hala bókunum niður af netinu. Fyrir nokkrum árum datt mér í hug að bjóða kaupendum að rafbók- um að kaupa Ódýra netpakkann eins og hægt er að kaupa í búðum. Hann sló strax í gegn en hann er með 10% afslætti ef keyptir eru allir sex titlarnir saman í pakka á netinu.“ Á Facebook-síðunni Rauða serían getur fólk sent inn skilaboð og þar birtast tilkynningar þegar nýjar raf- eða hljóðbækur koma á netið. Vefsíða útgáfunnar er asutgafan.is. Detox-heilsufrí í Póllandi og á Íslandi Detox-heilsufrí eru fyrirbyggj-andi heilsudagar þar sem hvíld, fræðsla, hreyfing, mataræði og gleði eru í öndvegi. „Það er ekki í boði að gefast upp gegn lífsstílssjúkdómum,“ segir Jónína Ben, sem hefur boðið upp á heilsumeðferðina síðan árið 2003. Þúsundir Íslendinga hafa farið í þessa heilsumeðferð og gert hana að lífsstíl sínum og mæta á hverju ári. Fólk finnur að meðferðin virkar, fólk sem lætur ekki úrtöluraddir villa sér sýn á nýjum leiðum til bættrar heilsu. „Fólk getur valið um meðferðar- úrræði og við mælum getu hvers og eins til þess að nýta sér kenningar pólska læknisins sem unnið hefur við þessi úrræði í tugi ára,“ segir Jónína og bendir á að engir tveir séu eins. Afeitrun eða detox hefur náð síauknum vinsældum víða um heim, það að fasta á ávöxtum og græn- meti gerir að verkum að líkaminn leitar jafnvægis eða núllstillir sig. Flestir upplifa nýja orku og nýja líðan. Margir losna við verki og komast í betra form. „Við vinnum með læknum og öðr- um sérfræðingum en fyrst og fremst miðlum við af þekkingu og reynslu og látum matinn vera lyfin okkar enda er góður matur læknandi.“ Boðið er upp á meðferðirnar í Póllandi, en flogið er til Gdansk með beinu flugi wizzair.com. Árið 2019 mun einnig verða boðið upp á með- ferðirnar á Íslandi. Nánari upplýsingar má fá í síma 822-4844, á netföngunum anna. detoxiceland@gmail.com og jonina- ben@joninaben.is. Einnig má finna upplýsingar á Facebook: Detox Jón- ína Ben.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.