Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Blaðsíða 42
42 7. september 2018
A
ldraðar, einstæðar konur
voru fórnarlömb Frakkans
Yvans Keller. Í húmi næt-
ur lét hann til skarar skríða
og þá helst þegar rigndi. Þegar
hann hafði fundið inngönguleið í
hús kvennanna hófst hann handa,
hægt og hljótt.
Yfirleitt nýtti hann sér opnan-
lega glugga og aldrei beitti hann
ruddalegum aðferðum á borð við
að brjóta rúður eða þvinga upp
glugga eða hurðir. Yvan hreinlega
skrúfaði lausa gluggarammana
og gerði það svo fagmannlega, að
ekki var á sjá eina einustu rispu
eða annað sem bent gæti til inn-
brots.
Kæfðar í svefni
Eftir að inn var komið lá leið Yvans
að svefnherberginu. Hann hafði
unnið heimavinnu sína og vissi
sem var að öldruð kona var eini
íbúi hússins. Hljóðlaust fór Yvan
inn í svefnherbergið, tók þar púða
eða teppi og lagði yfir vit gömlu
konunnar, sem svaf svefni hinna
réttlátu, og kæfði hana.
Að þessu loknu hófst hann
handa við að finna fjármuni í
íbúðinni.
Lagaði til eftir sig
Kerfisbundið fór Yvan yfir íbúðina
og var enginn staður undanskil-
inn, hvort sem það var í kjallara
eða á háalofti. Þegar hann taldi
sig hafa komist yfir allt það fé sem
væri að finna fór hann aftur inn í
svefnherbergi.
Þar lagaði hann til, slétti sængina
og gekk úr skugga um að hvergi
væri að sjá krumpu eða brot sem
vakið gæti grunsemdir um glæp.
Hann fór út sömu leið og hann kom
inn, skildi þar við allt eins og hann
kom að því. Hann jafnvel strauk af
glugganum áður en hann hvarf út í
nóttina með ránsfeng sinn.
Þrjú fórnarlömb við sömu götu
Þegar komið var að konunni
látinni í rúmi sínu var það úr-
skurður læknis að hún hefði lát-
ist af eðlilegum orsökum, ekki léki
nokkur vafi á því.
Yvan fór í það minnsta inn í
átta hús með fyrrgreindum hætti
og sömu afleiðingum. Í öll skipt-
in varð niðurstaða læknis á sama
veg. Merkilegt nokk þá voru þrjú
fórnar lamba Yvans konur sem
bjuggu í innan við 100 metra fjar-
lægð hver frá annarri, við sömu
götu í þorpi sem aðeins taldi 1.000
íbúa.
Hvað sem niðurstöðu læknis
leið varðandi dánarorsök þá vakti
það undrun ættingja kvennanna
að ekkert fé væri að finna á heim-
ilum þeirra.
Yvan handtekinn
Umrædd þrjú morð voru framin
árið 1994 í Alsace í Frakklandi og
þá áttu eftir að líða tólf ár áður en
upp komst um Yvan og ljósi varp-
að á illvirki hans.
Þannig var mál með vexti að
Yvan hafði verið svonefndur ný-
aldarferðalangur og samferða-
menn hans fengu veður af því
sem hann aðhafðist í skjóli nætur.
Í september árið 2006 höfðu þeir
samband við lögregluna og Yvan
var handtekinn í borginni Mul-
house í Austur-Frakklandi. Þar
viðurkenndi hann að hann væri
hljóðláti morðinginn.
Grunaður um tugi morða
Sagðist Yvan vera innbrotsþjófur
að atvinnu og að hann hefði myrt
átta konur, sem hann mundi eftir.
Lögreglan vildi reyndar bendla
hann við ívið fleiri morð, um það
bil 30 talsins, sem framin höfðu
verið í Alsace í Frakklandi, Sviss og
Þýskalandi.
Til þess kom þó ekki, einfald-
lega vegna þess að 26. september,
fjórum dögum eftir að hann var
handtekinn, hengdi Yvan sig í
fangaklefa sínum. Við sjálfsvígið
notaði hann skóreimar. Áður hafði
Yvan þó lýst fyrir lögreglunni að-
ferðum sínum við innbrotin og
með hvaða hætti hann hafði sent
fórnarlömb sín yfir móðuna miklu.
11. júní, 1981, myrti Japaninn Issei Sagawa hollenskan námsmann, Renée Hartevelt. Renée var bekkjarsystir Issei í Sorbonne-háskól-anum í París. Issei hafði boðið Renée til kvöldverðar og hún hafði
þekkst boðið. Ekki grunaði hana að hún sjálf væri á matseðlinum. Issei skaut
Renée til bana og hófst síðan handa við matseld. Áður hafði hann þó misnotað
líkið kynferðislega. Issei var úrskurðaður geðveikur og var vistaður á geðsjúkra-
húsi. Í ágúst 1986 skráði hann sig sjálfur út af stofnuninni og hefur verið frjáls
maður síðan.SAKAMÁL
Hvítlauksolía
& Chilisulta
NÝTT FRÁ
VILKO &
PRIMA
VARKÁRI VÁGESTURINN
n Yvan Keller var snyrtimennskan uppmáluð n Engin verksummerki var að sjá á vettvangi glæpa hans n Lögregla fékk fjölda ábendinga
„Við þurfum að skoða dauða
allra kvenna yfir 70 ára aldri,
síðastliðin 15 ár.
Rue Basse Þrjár aldraðar
konur voru myrtar heima hjá
sér við þessa götu.