Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2018, Blaðsíða 14
14 7. september 2018FRÉTTIR EIGUM MARGA LITI Á LAGER Nánari upplýsingar á mt.is og í s: 580 4500 HANNAÐ FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR ÁLKLÆÐNINGAR & UNDIRKERFI Þrír rússneskir blaðamenn myrtir í Afríku S nemma morguns dag einn í lok júlí fundust lík þriggja rússneskra blaðamanna í um 200 kílómetra fjarlægð frá Bangui, höfuðborg Mið-Afríku- lýðveldisins. Þeir höfðu allir verið skotnir. Embættismaður á vegum Sameinuðu þjóðanna sagði að mennirnir hefðu verið myrtir af meðlimum eins ótal margra hópa uppreisnarmanna í landinu. Fljótlega var ljóst að hvorki yfir- völd í Mið-Afríkulýðveldinu né rússneska sendiráðið vissu um veru blaðamannanna í landinu. Morðin hafa vakið upp spurningar um hvort rússneskir málalið- ar séu að störfum í Afríku. Blaða- mennirnir þrír, sem allir voru þaulreyndir, sjálfstætt starfandi blaðamenn, höfðu farið til Mið- Afríkulýðveldisins til að kafa ofan í hernaðarumsvif Rússa þar. Þetta voru þeir Orkhan Dzhemal stríðs- fréttamaður, Alexander Rastoguev rannsóknarblaðamaður og Kiril Radchenko myndatökumaður. Allt bendir til að hernaðarumsvif Rússa í þessu sárfátæka ríki séu miklu meiri en almenningur veit. Málið hefur vakið athygli víða um heim og hefur valdið því að um- heimurinn veltir fyrir sér hversu mikil hernaðarumsvif Rússa séu á svæðinu. Náin tengsl við Pútín Þremenningarnir höfðu fengið veður af fyrirtæki sem er í eigu rússneskra kaupsýslumanna sem tengjast Vladimír Pútín Rúss- landsforseta nánum böndum. Auk þess tengjast þessir kaupsýslu- menn leynilegum her rússneskra málaliða sem er þekktur undir nafninu Wagner-hópurinn. Þetta fyrirtæki er nýbyrjað að stunda námuvinnslu í Mið-Aríkulýð- veldinu. Blaðamennirnir ætluðu að fara að gullnámu á yfirráðasvæði eins uppreisnarhópsins og rann- saka tengsl Rússa og áhrif þeirra. Þessu skýrði Mikhail Khodorkov- sky, stofnandi The Centre for In- vestigation í Moskvu, frá eftir að fréttist af morðunum. Hann sagði að þremenningarnir hafi starfað með fleirum að rannsókn á mál- inu og hafi hún að hluta snúið að rússneskum leigumorðingjum. Khodorkovsky var eitt sinn rík- asti maður Rússlands. Í dag er hann þekktastur fyrir að vera einn mesti gagnrýnandi landsins á stjórn Pútíns. Maria Zakharova, talskona rússneska utanríkisráðuneytisins, var fljót að bregðast við fréttum af málinu og sagði að málið sem blaðamennirnir voru að rannsaka hefði ekki verið „neitt merkilegt“. Hún vísaði einnig til nýlegs samn- ings Rússlands og Mið-Afríkulýð- veldisins um hernaðarsamstarf ríkjanna. Mikil leynd Margir telja það opinbert leyndar- mál að rússneskir málaliðar séu að störfum í Afríku en ekki er vit- að hversu margir þeir eru eða hvað þeir eru að gera. Financial Times hefur eftir Lewis Mudge, sem sér- hæfir sig í rannsóknum á afrísk- um málefnum fyrir mannréttinda- samtökin Human Rights Watch, að fólk í Mið-Afríkulýðveldinu segi að liðsmenn Wagner séu þar að störfum. Á undanförnum árum hefur komið fram í dagsljósið að rússneskir málaliðar hafa starf- að með mikilli leynd í Úkraínu og í Sýrlandi en eins og í Mið-Afríku- lýðveldinu hvílir mikil leynd yfir verkefnum þeirra og þeirri stað- reynd að þeir séu til staðar. Hvað varðar samstarfssamning Rúss- lands og Mið-Afríkulýðveldisins þá felst í honum að Rússar sendi fimm hernaðarráðgjafa og 170 al- menna ráðgjafa til Bangui. Rúss- ar vinna að þjálfun hers landsins í dag og öryggissveita Faustin Tou- adera forseta. Svo vill til að nán- ustu öryggisráðgjafar forsetans eru Rússar. Rússar selja einnig vopn til landsins og aðstoða við rekstur æfingabúða í borginni Sibut en rússnesku blaðamennirnir þrír heimsóttu borgina einmitt á ferð sinni um landið. Í lok ágúst skrif- aði varnarmálaráðherra Rúss- lands undir nýjan samstarfs- samning við starfsbróður sinn frá Mið-Afríkulýðveldinu um enn frekari samvinnu ríkjanna tveggja. Innihald samningsins hefur ekki verið opinberað en franska dag- blaðið Le Monde segir að eftir því sem Sergej Sjojgu, varnarmálaráð- herra Rússlands, hafi upplýst þá sé markmið samningsins að styrkja tengsl ríkjanna í varnarmálum. Hann er sagður hafa sagt að Mið- Afríkulýðveldið væri áhugaverður samstarfsaðili í Afríku. Áratuga langt borgarastríð Borgarastríð hefur staðið yfir í Mið-Afríkulýðveldinu áratugum saman en ótal hópar uppreisnar- manna berjast gegn stjórnvöldum og hver öðrum. Engin framþró- un er í landinu vegna átakanna og fjárfestar halda sig víðs fjarri þessu stríðshrjáða ríki þrátt fyrir að þar sé mikið af gulli, demöntum og úrani enda er staða öryggismála í landinu vægast sagt slæm. Thierry Vircoulon, sérfræðingur í málefn- um Mið-Afríku hjá International Crisis Group, sagði í samtali við Financial Times að Rússar væru að styrkja stöðu sína í Afríku og Mið- -Afríkulýðveldið sé ein af leiðun- um inn í álfuna. Ríkisstjórn lands- ins sé veikburða og því auðvelt að eiga við hana. Sama dag og Rússar skrifuðu undir nýja samninginn við Mið- Afríkulýðveldið skrifuðu þeir und- ir samstarfssamning um hernað- armál við stjórnvöld í Búrkína Fasó. Áður höfðu þeir gert við- líka samninga við Eþíópíu, Gíneu, Lýðstjórnarlýðveldið Kongó og Mósambík. Þá selja Rússar vopn til Nígeríu og Angóla og koma að námuvinnslu þar. Rússar hafa ekki farið leynt með áhuga sinn á að seilast til áhrifa í Afríku en Pútín og aðrir embættismenn í Rúss- landi þegja hins vegar þunnu hljóði um leynileg störf rússneskra málaliða í álfunni og önnur umsvif sem þola illa dagsljósið. n Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Faustin Touadera, forseti Mið Afríku Lýðveldisins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.