Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Síða 2
2 20. júlí 2018FRÉTTIR
Á þessum degi,
20. júlí
356 f.Kr. – Alexander
mikli, konungur Makedóníu
síðar meir, fæðist.
911 – Rollo,
nefndur Göngu-
Hrólfur í íslenskum fræðum,
hefur umsátur um frönsku
borgina Chartres. And-
stæðingur Rollos, nefndur
Karl einfaldi, reyndist ofjarl
hans og þurfti Rollo frá að
hverfa ásamt her sínum.
1848 – Fyrstu kvenréttindaráðstefnu
sem haldin var lýkur í Seneca Falls í
New York-ríki. Ráðstefnan stóð yfir í
tvo daga.
1944 – Adolf
Hitler sleppur
með skrekkinn
þegar reynt er
að ráða hann
af dögum.
Claus von
Stauffenberg
greifi fór fyrir tilræðismönnunum og
þurfti hvorki hann né félagar hans að
kemba hærurnar.
1969 – Áhöfn Apollo 11. tekst að lenda,
fyrstum manna, á tunglinu. Geim-
fararnir Neil Armstrong og Buzz Aldrin
tóku fyrstu skrefin á tunglinu.
Viltu kaupa fasteign
á spáni ?
masainternational.is / S. 555 0366 - Jón Bjarni & Jónas
Masa international
býður þér í skoðunarferð til
Costa blanCa í júní & júlí á
29.900 kr.
þar seM drauMaeignina þína gæti
Verið að finna
Síðustu orðin
„Ég hefði aldrei átt að
skipta út skota fyrir
martini.“
– Leikarinn Humphrey Bogart (25.
desember 1899–14. janúar 1957)
Þ
ann 8. júní síðastliðinn
reyndi óprúttinn einstak-
lingur að kveikja í bæna-
húsi Votta Jehóva á Íslandi.
Brunnu nokkrir stólar áður en
lögregla náði að slökkva eldinn.
Bjarni Jónsson, forstöðumaður
Votta Jehóva á Íslandi, segir í sam-
tali við DV að einn karlmaður hafi
verið handtekinn vegna brunans.
Hann vill þó ekki gefa upp hvort sá
maður tengist trúfélaginu.
Bjarni segir að Vottar Jehóva
hafi ákveðinn grun um hver stóð
að baki íkveikjunni. „Það var brot-
in rúða og kveikt í fyrir innan. Þetta
var eitthvert efni sem var kveikt í og
svo fleygt inn. Það brunnu tvö sæti
en svo fór reykskynjari strax í gang.
Lögreglan kom síðan aðvífandi og
slökkti eldinn með dufttæki. Atvik-
ið var tekið upp á öryggismynda-
vél og er núna í höndum lögreglu.“
Vitið þið hvað viðkomandi gekk
til?
„Nei, þeir hafa ekkert fengið
upp úr honum ennþá.“
Svo þið vitið ekki hvort þetta
beindist að ykkur af trúarlegum
ástæðum?
„Þetta er bara lögreglumál. Ger-
andinn var með hettu yfir hausn-
um. Þeir hafa, ekki mér vitanlega,
gefið út neina ákæru.“
Var þetta einhver sem þið
þekktuð?
„Af myndbandsupptökum töld-
um við okkur vita hver þetta er, af
öllum tilburðum hans og svoleið-
is, þótt hann hafi verið með hettu
yfir hausnum. En það er ekki neitt
sem virðist nægja lögreglunni.
Hann var handtekinn þarna fljót-
lega eftir þetta og mér skilst að
hann hafi engu svarað. Honum var
síðan sleppt lausum. Við viljum
ekki gefa upp opinberlega hver var
þarna að öllum líkindum að verki.
Lögreglan telur sig ekki hafa ör-
uggar heimildir á þessari stundu.“
Facebook-síðan Heart of
Jehovah’s Witnesses greindi frá
íkveikjunni á dögunum og hlaut sú
færsla talsverða athygli, á sjöunda
hundrað deildu henni svo nokk-
uð sé nefnt. Í athugasemdum við
þá færslu eru flestir á því máli að
Jehovah muni koma söfnuðinum
til bjargar. Sumir eru þó þeirrar
skoðunar að myrkrahöfðinginn
sjálfur hafi átt aðild að málinu.
„Púkar,“ segir Diana nokkur. Janis
Clark segir: „Satan, þú getur ekki
stöðvað Jehovah. Hann er sterkur
og er á höttunum eftir þér og þín-
um púkum. Jehovah nær til alls
heimsins.“
Bjarni gefur hins vegar lítið fyrir
þessar skýringar. „Nei, ég tek ekki
undir það. Þetta er ekkert slíkt. Ef
einhver drepur mann eða lemur,
þá er það ekki verk djöfulsins.
Fólk ber ábyrgð á sínum gjörðum,“
segir Bjarni.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Vottar Jehóva verða fyrir barðinu
á skemmdarvörgum. Í september
2014 greindi Morgunblaðið frá því
að reglulega hefðu verið unnin
skemmdarverk á áðurnefndu hús-
næði Votta Jehóva í Hraunbæ.
Aðal lega hafi grjóti verið kastað í
rúður í skjóli nætur og náðust ger-
endurnir aldrei.
Í kjölfarið sendu forsvarsmenn
safnaðarins inn fyrirspurn til
Reykjavíkurborgar um hvort girða
mætti húsnæðið af til þess að
koma í veg fyrir frekari skemmdar-
verk. Borgaryfirvöld féllust ekki á
þessar metnaðarfullu hugmyndir
en þess í stað kom söfnuður-
inn fyrir umfangsmiklu eftirlits-
myndavélakerfi. n
Kveikt í bænahúsi
Votta í Reykjavík:
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
„SATAN, ÞÚ GETUR EKKI
STÖÐVAÐ JEHOVAH“
Samkomuhús Votta Jehóva í Árbæ.
Bjarni Jónsson
Sumir vottar
telja að Satan
geti ómögulega
stöðvað Jehova.