Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Blaðsíða 14
14 20. júlí 2018FRÉTTIR
H
jónin Gerður Rún Ólafs-
dóttir og Matthías Örn
Friðriksson misstu fóstur
eftir þriggja mánaða með-
göngu. Það voru því mikil gleði-
tíðindi fjórum mánuðum seinna
þegar þau komust að því að Gerður
Rún var aftur barnshafandi. Dóttir
þeirra Líf kom í heiminn, en and-
aði ekki sjálf og komst aldrei til
meðvitundar þá fimm daga sem
hún lifði. Í minningu hennar ætla
þau að hlaupa í Reykjavíkurmara-
þoninu til styrktar Gleym-mér-
ei, sem er styrktarfélag til stuðn-
ings við foreldra sem missa barn á
meðgöngu og í/eftir fæðingu.
„Við kynntust árið 2005 á
menntaskólaárunum á Akureyri
þegar Matti hljóp á mig og gaf
mér vænt glóðarauga,“ segir Gerð-
ur. Tveimur mánuðum seinna
hittust þau í gegnum sameigin-
legan vin sem þau voru á rúntin-
um með og var þá rifjað upp
glóðaraugað fræga og eftir það var
ekki aftur snúið. Þau kláruðu stúd-
entspróf og háskólanám frá Akur-
eyri og fluttu síðan til Grindavík-
ur árið 2010. Gerður sem er 29 ára
er með BS-gráðu í hjúkrunarfræði
frá HA og ÍAK einkaþjálfarapróf
frá Keili. Hún starfar sem hjúkr-
unarfræðingur á Hjartadeild LSH,
hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, og
sem styrktarþjálfari. Matti sem
verður 32 ára í september er með
BS í viðskiptafræði frá HA og MCF-
-gráðu í fjármálum fyrirtækja frá
HR. Hann starfar á fjármálasviði
HS Orku. Matti hefur spilað fót-
bolta frá unga aldri og er enn að,
nú með Grindavík.
Alltaf ákveðin í að eiga börn
Eftir 10 ára samband giftu þau sig
sumarið 2016. Þau þekkja
bæði vel barnmargar fjöl-
skyldur þar sem Gerður
á fjórar systur og Matti
þrjú systkin. Barneignir
voru því alltaf stefnan, þó
að þau hafi aldrei ákveðið
barnafjöldann. „Það varð
svo skemmtilega allt óvart
eftir bókinni hjá okkur en
við kláruðum skólann,
ákváðum að gifta okkur,
kaupa hús og svo eignast
börn. Við vorum reynd-
ar alltaf mjög samstíga
með að klára háskólanám-
ið áður en við myndum
eignast börn,“ segir Matti.
„Gerður kláraði hjúkrunar-
fræðina 2016 og við gift-
um okkur um sumarið og
það átti því vel við að börn
væru velkomin eftir brúð-
kaup. Við urðum mjög óvænt ólétt
strax eftir brúðkaupið, en við vor-
um búin að ákveða að þetta tæki
nú oftast einhvern tíma.“
Þau misstu fóstrið eftir tæp-
lega þriggja mánaða meðgöngu
og segja það hafa verið mjög erfitt.
Líf, dóttir þeirra, var því mjög vel-
komin um fjórum mánuðum
seinna þegar Gerður komst að því
að hún var aftur ófrísk.
Ekkert á meðgöngu gaf til
kynna að Líf myndi ekki lifa
Meðgangan gekk vel og var Gerð-
ur mjög hraust alla meðgönguna.
Hún er með styrktarþjálfunar-
námskeið í Grindavík og þjálf-
aði kvöldið áður en fæðingin fór
af stað. „Að sjálfsögðu voru ein-
hverjir eðlilegir meðgöngukvill-
ar af og til en ekkert sem þurfti
að hafa áhyggjur af,“ segir Gerður.
„Fæðingin gekk mjög vel, ég
missti vatnið undir morgun á sett-
um degi, 26. janúar 2018, og var
komin í fína
sótt upp úr hádegi.“
Líf kom svo í heiminn
klukkan 17.44. Þegar hún
var lögð á bringuna á Gerði urðu
mikil læti á fæðingarstofunni því
hún andaði ekki sjálf. Því var skil-
ið strax á milli og endurlífgun
hafin. „Líf komst aldrei til með-
vitundar og var háð öndunarvél
þá daga sem hún lifði. Við feng-
um engin svör úr krufningunni.
Það sá þetta enginn fyrir mið-
að við hvað meðganga og fæðing
gekk vel og er búið að fara vand-
lega yfir fæðinguna sem gaf engin
rauð flögg um að þetta myndi fara
svona illa,“ segir Matti. „ Stundum
er móðir náttúra svo ótrúlega
grimm.
„Við erum mjög ánægð í dag
að hún hafi þó staldrað við hjá
okkur í fimm daga og það er gott
að vita að Líf hafi verið heilbrigð
og þetta hafi ekki verið erfðagalli
sem getur haft áhrif á næstu með-
göngu. Þessir dagar með henni
og fjölskyldu okkar voru ómetan-
legir. Það er mikill samgangur inn-
an fjölskyldunnar og við öll mjög
náin. Fjölskylda og vinir hafa
hjálpað okkur mikið í sorginni.“
Aðspurð segja þau að það hafi
orðið ungbarnadauði í stórfjöl-
skyldunni áður; andvana fæðing.
„Það eru yfir 30 ár síðan og það
er mjög mikill munur á úrvinnslu
sorgar þá og í dag. Sú fjölskylda á
til dæmis engar minningar um til-
vist barnsins. Við höfum hugsað
okkur að heiðra minningu Lífar en
þó ekkert ákveðið eins og er. Það er
ennþá svo stutt síðan hún fæddist
og við enn að vinna úr sorginni.
Hún snerti ótrúlega mörg hjörtu
sína stuttu ævi.“
Ljósmæður eru englar í
mannsmynd
„Við ákváðum að hlaupa í Reykja-
víkurmaraþoninu nóttina sem við
kvöddum Líf. Við vorum staðráð-
in í að láta eitthvað gott af okkur
leiða fyrir hana,“ segir Matti. Gerð-
ur mun hlaupa 10 kílómetra til
styrktar Gleym-mér-ei. Matti mun
einnig hlaupa ef fótboltinn leyf-
ir, en í það minnsta vera dyggur
stuðningsmaður á hliðarlínunni.
Þau segjast hafa vitað af
styrktarfélaginu, en ekkert kynnt
sér það nánar fyrr en núna. „Það
voru auðvitað ljósmæðurnar sem
kynntu félagið fyrir okkur, þvílíkir
fagmenn og englar sem þær eru.
Það er til skammar að það sé ekki
búið að semja við þær miðað við
þá miklu ábyrgð sem þær bera.
Við eigum svo dásamlega góða
reynslu af þessum fagmönnum.
Það voru þrjár sem sinntu okkur
mest á meðgöngunni og í fæðingu
Lífar. Þær heimsóttu okkur all-
ar heim til Grindavíkur nokkrum
dögum eftir þetta allt saman og
það segir okkur enginn að þær
hafi þá verið á launum. Að okkar
mati er þetta mjög mikilvæg þjón-
usta fyrir nýbakaðar mæður og
líka þær sem fara ekki með börn-
in sín heim. Ljósmæðurnar færðu
okkur minningarkassa frá Gleym-
-mér-ei sem gerði svo mikið fyrir
okkur á erfiðum tíma. Í honum
var að finna tvo „kanínubangsa“,
silfurarmband fyrir barnið og
móður, skraut til að grafa eitthvað
í tengt barninu, glæran poka til að
varðveita hárlokk, hluti til að varð-
veita handa- og fótaför, og aðr-
ar hagnýtar upplýsingar fyrir for-
eldra sem missa börn. Þetta eru
allt hlutir sem enginn spáir í þegar
tekið er til í töskuna fyrir fæðingar-
deildina. Einnig gaf félagið kæli-
vögguna sem Líf var í eftir andlát
hennar en það gerði okkur kleift
að hafa hana hjá okkur þangað til
við vorum tilbúin að kveðja hana.“
Gerður er vanur hlaupari og
hleypur í Reykjavíkurmaraþoninu
á hverju ári. „Ég jafnaði mig mjög
fljótt eftir fæðinguna og var fljótt
komin af stað aftur að hreyfa mig.
Ég er vön að hlaupa og æfa mik-
ið svo það hjálpaði til og ég var
fljót að ná fyrra þreki vegna þess.
Undir eðlilegum kringumstæð-
um með kornabarn hefði mér ekki
legið svona mikið á að koma mér
í form aftur eftir barnsburð.“ Matti
er alltaf í hlaupaformi út af fót-
boltanum: „Það er enn óvíst hvort
ég hlaupi út af honum, en ég verð
þá stuðningsmaður númer 1 á
hliðarlínunni.
Við settum okkur það markmið
að safna hálfri milljón og því hefur
nú þegar verið náð og þökkum við
öllum þeim sem styrkt hafa félag-
ið í gegnum okkur kærlega fyrir.“ n
Ný og enn betri
vefverslun
www.gaeludyr.is
Lifði í aðeins fimm daga
n Líf snerti ótrúlega mörg hjörtu á stuttri ævi n Foreldrarnir hlaupa fyrir Gleym-mér-ei
Gleym-mér-ei styrktarfélag var stofnað 2013. Félagið er til staðar fyrir þá sem verða fyrir
missi á meðgöngu eða stuttu eftir fæðingu þar sem lítil ljós eru varðveitt og lifa áfram
í minningu. GME er styrktarfélag með þann tilgang að halda utan um styrktarsjóð sem
notaður er til að styrkja ýmis málefni í tengslum við missi barns á meðgöngu og í/eftir
fæðingu.
Félagið er rekið áfram af hugsjón þeirra sem hafa gengið í gegnum að missa, til að vera
stuðningur við þá aðstandendur sem verða fyrir missi.
Upplýsingar um félagið má finna á gleymmerei-styrktarfelag.is
Gleym mér ei styrktarfélag hefur með ykkar styrk:
n Gert gagngerar endurbætur á duftreit fyrir fóstur sem staðsettur er í Fossvogskirkju-
garði.
n Gefið tvö rúm og náttborð til meðgöngu- og sængurlegudeildar Landspítalans.
n Haldið minningarstundir þann 15. október í sex ár víða um landið.
n Gefið yfir 120 minningarkassa fyrir foreldra til að taka með heim af fæðingardeildinni.
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
MYND: HEIÐBRÁ PHOTOGRAPHY