Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Qupperneq 16
16 20. júlí 2018FRÉTTIR
eldbakaðar
eðal pizzur
sími 577 3333
www.castello.is
Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði
Boltinn í beinni
á castello
K
osningar um forseta ASÍ
munu fram í október á
43. þingi ASÍ og taka um
280 manns þátt í þeirri
kosningu. Er þessum 280 fulltrúum
dreift á verkalýðsfélög eftir fjölda
félaga í hverju félagi fyrir sig.
Baráttan er formlega hafin þar sem
Sverrir Mar, framkvæmdastjóri
Starfsgreinafélags AFLs, hefur
tilkynnt framboð sitt til forseta ASÍ
og er sá eini sem hefur tilkynnt
framboð sitt. Gylfi Ásbjörnsson
hefur setið sem forseti ASÍ
síðan 2008. Eftir að Ragnar Þór
Ingólfsson sigraði í kosningum
um formann VR og Sólveig Anna
Jónsdóttir sigraði í kosningum
um formann Eflingar, veiktist
staða Gylfa gífurlega innan ASÍ,
sérstaklega eftir að Ragnar Þór,
formaður VR, lýsti yfir vantrausti á
störf Gylfa.
Gylfi tilkynnti svo þann
20. júní síðastliðinn að hann
hygðist ekki bjóða sig fram aftur
til áframhaldandi setu sem
forseti ASÍ eftir 10 ára starf hjá
sambandinu. Sama dag tilkynnti
Sverrir Mar um framboð sitt. Þegar
Gylfi tilkynnti þetta sagði hann:
„Í þeim deil um virðist því miður
sem per sóna mín, í stað skoðana
minna, sé orðin aðal atriði og þá á
kostnað mál efna legr ar umræðu.“
Stéttarfélagið greiðir
auglýsingar um greinarskrif
Sverris á Facebook
Í samtali við DV sagði Sverrir að
það væri ekkert athugavert við það
að fjármunir félaga í AFLi væru
notaðir til að auglýsa greinarskrif
hans á Facebook-síðu AFLs. „Þetta
fer bara eftir því hvernig þú orðar
hlutina. Ég orða það þannig að við
erum í átaki í samfélagsmiðlum
og við plöggum hlutum sem við
höldum að veki athygli.“ Sagði
Sverrir Mar einnig að stjórn AFLs
styddi framboð hans til forseta
ASÍ. Stjórn AFLs hittist á fundi og
birti niðurstöðu sína á heimasíðu
sinni. Á heimasíðunni segir:
„Niðurstaða fundarins var að nú
þegar ljóst er að sitjandi forseti
hyggst ekki gefa kost á sér – mun
AFL starfsgreinafélag stíga fram og
bjóðast til að axla ábyrgðina.“
Að sögn Sverris hefur AFL greitt
um 20 þúsund krónur í að auglýsa
greinarskrif hans á sérstakri
Facebook-síðu félagsins, eftir að
hann opinberlega tilkynnti um
framboð sitt til forseta ASÍ.
Að sögn Halldórs Grönvold,
aðstoðarframkvæmdastjóra og
deildarstjóra félagsmáladeildar
ASÍ, í samtali við DV, eru engar
reglur til staðar hjá ASÍ vegna
kostunar á kosningabaráttu
frambjóðenda í forsetaframboði
ASÍ. „Það eru bara engar
reglur til um það á vettvangi
Alþýðusambandsins,“ segir
Halldór aðspurður hvort
formaður einhvers stéttarfélags
gæti notað fjármuni félagsins
til að styðja við sína eigin
kosningabaráttu og jafnvel
fjármagnað kosningabaráttu sína:
„Ég myndi áætla að það væri
frekar mál verkalýðsfélagsins en
ekki ASÍ. Ég veit ekki alveg hvar sú
kostnaðarsama kosningabarátta
ætti að fara fram.“ n
STÉTTARFÉLAG BORGAR
FYRIR AUGLÝSINGAR
FRAMBJÓÐANDA TIL ASÍ
Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
bjartmar@dv.is „Þetta fer bara eftir
því hvernig þú
orðar hlutina.
Ég orða það
þannig að við
erum í átaki í
samfélagsmiðlum
og við plöggum
hlutum sem við
höldum að veki
athygli
n Sverrir Mar segir ekkert athugavert við að AFL greiði kostnað við að auglýsa greinarskrif hans
Sverrir Mar Albertsson, fram-
kvæmdastjóri AFLs
starfsgreinafélags.