Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Síða 18
18 MENNING 20. júlí 2018
SÍMI SEM ÞÚ GETUR
TREYST Á
DUAL 12 MP MYNDAVÉL
NOKIA
7 PLUS
K
vikmyndatónskáld er
hvort tveggja tónskáld og
að hluta til kvikmynda
gerðarmaður. Það er auð
vitað ástæða fyrir því að flestar
kvikmyndir eru með tónlist, enda
er þetta nokkurn veginn eins og
þriðja víddin á verkinu sem þú
skynjar á tilfinningasviðinu en tek
ur kannski ekki eftir.“
Svo mælir tónlistarmaðurinn og
Akureyringurinn Atli Örvarsson,
en hann hefur í áraraðir sameinað
tvö af stærri áhugasviðum sínum
og átt farsælan feril sem eitt
afkastamesta kvikmyndatónskáld
Íslands.
Atli lék með mörg um hljóm
sveit um á sín um tíma, fyrst í
Stuðkomp aní inu með bróður sín
um Karli, síðan lá leiðin í Tod
mobile í stutt an tíma, þá Sál ina
hans Jóns míns og loks SS Sól. Atli
var byrjaður í námi þegar hann
lék með SS Sól en hann nam tón
smíðar í Berk lee Col l e ge of Music í
Bost on í Banda ríkj un um og kynnt
ist þar nýjum geira innan tónlist
arinnar sem hann heillaðist af.
Segir Atli að þessi kúrs í skólanum
hafi komið út frá hálfgerðri köllun
í tengslum við þá kúnst að tengja
saman músík og mynd.
Sagði skilið við lífið í Los Angeles
Atli hefur farið um víðan völl og
samið tónlist fyrir kvikmyndir á
borð við meðal annars Vantage
Point og Hansel, Gretel: Witch
Hunters, The Hitman‘s Body
guard sem og hinar íslensku kvik
myndir Hrútar og Fyrir framan
annað fólk. Einnig hefur hann
unnið að tónlist fyrir fjöldamarga
þætti; svo sem Law & Order og
Chicago Fire.
Eftir margra ára búsetu í Los
Angeles ákvað Atli að láta gott
heita og flytja aftur með fjölskyldu
sinni á heimaslóðirnar á Akureyri,
sem hann segir að gæti vart ver
ið meiri andstæða við lífið í stór
borginni vestanhafs. „Það hafa
allir staðir sína kosti og galla og
kostirnir hér á Akureyri skáka
öllu,“ segir Atli.
Anna Örvarsson, eiginkona
Atla, hefur áður opnað sig um
ástæðu þess að fjölskyldan ákvað
að segja skilið við borg englanna.
Í viðtali við Akureyri Vikublað rifj
aði hún upp röð erfiðra atvika
sem breyttu öllu. Hið fyrsta var
árið 2002 þegar skólabróðir föður
hennar réðst vopnaður inn í
Virginia Techskólann og hóf skot
hríð á allt og alla.
Fimm árum síðar réðst nem
andi inn í háskóla og myrti 32
manneskjur í skólanum áður en
hann svipti sig lífi. Bróðir Önnu
var nýútskrifaður úr skólanum
en árásin var framin í deildinni
sem hann stundaði nám í. Þriðja
árásin varð árið 2011 en þá skaut
bróðir fyrrverandi barnapíu þeirra
hjóna kærustu sína áður en hann
framdi sjálfsvíg. Í júní 2013 þótti
nóg komið en þá ók Anna inn í
miðja skotárás og segir í viðtalinu
að hún hafði aldrei séð jafnmargar
hræddar löggur.
„Við viljum ala börnin upp á
stað þar sem fólk reynir að gera
hið rétta, er heiðarlegt og gott. Við
viljum ekki að börnunum líði eins
og gestum þegar þau koma hing
að. Við viljum að Ísland sé „heima“
fyrir þau, staðurinn sem þau geta
alltaf komið aftur til, staðurinn
þar sem þau geta verið frjáls,“ seg
ir hún í viðtalinu. Þar tekur hún
einnig fram að önnur ástæða þess
að fjölskyldan ákvað að flytja til
Íslands hafi verið sú að börnin
gætu þá verið nær fjölskyldunni.
Seldu þau 420 fermetra villuna í
Mar Vistahverfinu í vestur hluta
Los Angeles á rúmar 400 milljón
ir íslenskra króna og héldu heim á
leið. Þrátt fyrir að Atli hafi flutt til
Íslands hefur hann ekki sagt skilið
við upptökuver sitt í Los Angeles.
Þar hefur hann aðstöðu hjá fyrir
tækinu Remote Control Product
ions en það er í eigu hins marg
verðlaunaða Hans Zimmer sem
Atli hefur lengi unnið með. „Það
er í rauninni hægt að semja tónlist
hvar sem er. Með tilkomu netsins
hefur allt orðið auðveldara í gegn
um árin. Ef þú ert með nógu góða
nettengingu, þá getur þú verið
hvar sem er á hnettinum,“ segir
Atli.
Kómedían erfiðust
Að sögn tónlistarmannsins fer
því fjarri að starfið sé hefðbundið
„níutilfimm starf“ og það á sér
staklega við um þær aðstæður
sem hann starfar við í dag. „Ég er
á heldur skrítnum stað, því sam
starfsfólk mitt vinnur í Los Ang
eles og tímamismunurinn er
ÆTLAR AÐ LEGGJA
SÓLÓFERILINN FYRIR SIG
n Kann betur við rólegheitin á Akureyri en hasarinn í Los Angeles
Atli Örvarsson tekur nýjum kafla fagnandi
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
Atli Örvarsson, tónskáld.