Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Qupperneq 22
22 20. júlí 2018FRÉTTIR - ERLENT
F
átæktarmörk hafa lengi
verið pólitískt þrætuepli í
Danmörku og óhætt að segja
að fylkingarnar á þingi séu
algjörlega á öndverðum meiði
hvað varðar þessi mörk. Borgara-
flokkarnir (hægrimenn) eru al-
farið á móti þeim en vinstrimenn
vilja hafa ákveðin fátæktarmörk
til viðmiðunar. Vinstristjórn Helle
Thorning-Schmidt lagði grunninn
að fátæktarmörkum með því að
koma á laggirnar hópi sérfræðinga
sem áttu að finna út hver mörkin
væru í eitt skipti fyrir öll. Niður-
staðan lá fyrir í júní 2013 og opin-
bert fátæktarviðmið var orðið að
veruleika. Línan var dregin við að
einhleypur einstaklingur sem hefði
minna en 103.000 danskar krónur
í ráðstöfunartekjur, eftir skatt, á ári
væri fátækur. Þessi upphæð á að
duga fyrir húsnæðiskostnaði, vatni,
hita, rafmagni, tryggingum, sam-
göngum, mat og öðru sem til fell-
ur. Viðmiðið átti ekki við náms-
menn og fólk sem á miklar eignir.
Þá þurfti fólk að hafa verið undir
þessum ráðstöfunartekjumörkum
þrjú ár í röð til að teljast fátækt.
Niðurstaðan varð að árið 2013 féllu
42.200 manns í þann hóp sem tald-
ist fátækur. Í framhaldinu átti síð-
an að fylgjast með þróuninni, rýna
í niðurstöðurnar og meta til hvaða
pólitísku aðgerða væri hægt að
grípa. Karen Hækkerup (Jafnaðar-
mannaflokknum), félagsmálaráð-
herra, sagði þá að málið snerist ekki
endilega um að finna einhverja tölu
um hversu margir væru fátækir,
heldur að komast að orsökum þess
að fólk endar í fátækt, af hverju
það festist í fátækt og hvernig væri
hægt að þróa félagsmálastefnu sem
hjálpaði fólki út úr þeim aðstæðum.
Strokleðrið dregið upp
Ekki leið á löngu þar til fátæktar-
viðmiðin voru beinlínis þurrkuð
út. Það gerðist þegar borgara-
legu flokkarnir komust til valda
árið 2015 en þeir líta á þessi við-
mið sem algjöra markleysu. Karen
Ellemann, félagsmálaráðherra
frá Venstre, sagði þá að ekki væri
hægt að nota þessi viðmið til neins.
Ríkis stjórnin sætti harðri gagnrýni
fyrir þetta þar sem hún hafði áður
sett þak á hversu mikla fjárhagsað-
stoð atvinnulausir gætu fengið frá
hinu opinbera og lækkað fjárhags-
legan stuðning við innflytjendur.
Gagnrýnendur sögðu að afnám fá-
tæktarviðmiðanna hafi verið loka-
hnykkurinn á verkinu því nú væri
ekki lengur hægt að fylgjast með
afleiðingum þessara aðgerða ríkis-
stjórnarinnar.
Ný fátæktarmörk
Nýlega fékk Danska hagstofan það
verkefni frá fjármálaráðuneytinu að
fylgjast með hvernig Dönum gengi
að uppfylla heimsmarkmið Sam-
einuðu þjóðanna en Danir taka
þátt í því verkefni. Um 169 mark-
mið er að ræða og ná þau allt frá
fátækt til friðar. Eitt markmiðanna
er að fækka fólki á öllum aldri sem
býr við fátækt um helming fyrir
árið 2030. Hagstofan ætlar að fylgj-
ast með þremur atriðum sem geta
gefið góða mynd af stöðunni. Þessi
atriði eru hversu margir hafa lágar
tekjur, hversu margir telja að þeir
séu í erfiðri fjárhagslegri stöðu og
hversu margir eru undir nýju fá-
tæktarmörkunum og tilheyra því
þeim hópi sem telst mjög fátækur.
Hagstofan ákvað að nýju fátæktar-
mörkin skyldu vera 117.000
danskar krónur á ári fyrir ein-
hleypan einstakling, það svarar til
tæplega tveggja milljóna íslenskra
króna. Það eru 9.800 danskar
krónur, eða rúmlega 160 þúsund
íslenskar krónur, í ráðstöfunar-
tekjur á mánuði. Nú varð einnig
sú breyting að aðeins er miðað við
eitt ár en ekki þrjú samfelld eins og
áður. Þetta hefur í för með sér að
hópur mjög fátækra er mun stærri
en hann var þegar gamla viðmið-
ið var við lýði áður en núverandi
ríkis stjórn afnam það. Árið 2016
voru um 50.000 manns í þessum
hópi, nú eru þeir 226.500.
Þetta leggst vægast sagt illa
borgaralegu flokkana og þá sem
fylgja þeim að málum. Hjá frjáls-
lyndu hugveitunni Cepos skilja
menn ekki að óháð ríkisstofn-
un skuli geta sett þessi viðmið og
benda á að aðferðafræðin sé gagn-
rýnisverð. Til dæmis hverfi um 55
prósent fólks úr fátæktarhópn-
um eftir um eitt ár vegna breyttra
aðstæðna þess. Þá sé hagstofan
að skilgreina hugtak sem sé mjög
umdeilt og háð huglægu pólitísku
mati.
Niels Ploug, deildarstjóri hjá
hagstofunni, segir að tvær ástæð-
ur liggi að baki nýju fátæktarmörk-
unum og uppbyggingu þeirra.
Önnur sé þau gögn sem er til að
dreifa, þau nái ekki nógu langt aft-
ur til að hægt sé að vinna úr gögn-
um þriggja ára. Hin ástæðan sé að
nýjar greiningar á dönskum gögn-
um bendi til að það að lenda undir
fátæktarmörkum í eitt ár geti haft
langtímaafleiðingar og þá sérstak-
lega fyrir börn. Í samtali við Jót-
landspóstinn sagði hann að við-
miðið væri byggt á útreikningum
hagstofunnar og væri ekki nýtt
opin bert viðmið heldur byggt á út-
reikningum frá gamla viðmiðinu
sem hafi verið faglega unnið og
sérfræðingar hafi mælt með því.
Eins illa og Cepos tekur nýja
viðmiðinu þá tekur Atvinnumála-
ráð verkalýðshreyfingarinnar því
fagnandi og segir að hingað til hafi
umræðan um fátækt alltaf endað
með að rætt væri um hvernig eigi
að mæla vandann í stað þess að
ræða hvernig sé hægt að takast á
við hann.
Mismikil ánægja með viðmiðin
Talsmaður jafnaðarmanna í fé-
lagslegum málefnum fagnar nýja
viðmiðinu og vill beina sjónum
að því að aðstoða börn sem eru í
fátæktarhópnum en þau hafi far-
ið illa út úr þakinu sem var sett á
fjárhagslega aðstoð við atvinnu-
lausa. Talsmaður Liberal Alliance
(Bandalag frjálslyndra) er hins
vegar ekki ánægður með nýja við-
miðið og segir slæmt að viðmiðið
brengli umræðuna og það komi
niður á þeim sem helst þarfnist
aðstoðar. Karen Ellemann, þing-
flokksformaður Venstre og fyrrver-
andi félagsmálaráðherra, segir að
viðmiðið sé misvísandi og bendir
á að fátækt erfist á milli kynslóða
þar sem börn þeirra sem njóta
opinberrar fjárhagsaðstoðar endi
oft sjálf á bótum. Besta leiðin út
úr þessu sé því að tryggja að for-
eldrarnir komist inn á vinnumark-
aðinn.
Að öðru leyti hafa ráðherrar
og talsmenn ríkisstjórnarinnar
ekki viljað tjá sig mikið um mál-
ið en samkvæmt fréttum danskra
fjölmiðla er bullandi óánægja á
hægri vængnum með nýja við-
miðið. Það má hugsanlega rekja til
stefnu ríkisstjórnarinnar sem hef-
ur eins og fyrr segir töluvert snúist
um að draga úr bótum til atvinnu-
lausra og innflytjenda. Þetta segja
vinstrimenn að hafi verið gert til
að hægt væri að draga úr álögum
á fyrirtæki og efnafólk en þó hefur
ríkisstjórninni ekki tekist að koma
öllum markmiðum sínum á þeim
vettvangi áleiðis þar sem Danski
þjóðarflokkurinn, sem tryggir
minnihlutastjórninni meirihluta
á þingi, hefur ekki ljáð máls á
skattalækkunum til hátekjufólks.
Þjóðarflokkurinn sækir mikinn
stuðning til fólks úr neðri stéttum
þjóð félagsins og það lítur ekki vel
út fyrir hann ef hann samþykkir
skattalækkanir á þá sem hafa það
best í þjóðfélaginu. n
NÝ FÁTÆKTARVIÐMIÐ VALDA
PÓLITÍSKRI ÓLGU Í DANMÖRKU
n Hægrimenn öskureiðir en vinstrimenn ánægðir
n Tæplega 300 þúsund manns teljast fátækir í Danmörku
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is