Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Page 24
24 UMRÆÐA 20. júlí 2018
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson
Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Þ
að er með miklum ólík-
indum að skipuleggjendur
hátíðarfundarins á Þing-
völlum hafi aldrei í ferlinu
spurt sig að því hvort þeir væru á
réttri leið á vegferð sinni að þess-
um merku tímamótum. Að það
væri bara frábær hugmynd að
eyða stórfé í risastórt svið og hljóð-
kerfi á Þingvöllum, bruna þangað
með elítuna í lögreglufylgd, fá um-
deildasta þingmann Norðurlanda
til þess að halda ávarp, bruna síð-
an aftur í bæinn og spara ekkert til
í að fóðra liðið og hella það blind-
fullt á Hótel Sögu. Til hamingju
með daginn ykkar, Íslendingar.
Að sjálfsögðu var síðan sam-
þykkt að hjóla í einhver duttlunga-
verkefni. Gefa út rándýra bók sem
lítil þörf er fyrir sem og að stofna
sjóð þar sem fimm flokksgæðingar
fá sæti í stjórn og fá eflaust ríku-
legar þóknanir fyrir að deila út
skattfé. Enn stækkar báknið jafnt
og þétt. Sjálfstæðismenn klappa
fyrir því á sinni vakt en segjast svo
vera á öndverðum meiði í næstu
kosningum. Það eina sem var þarft
að gera var að smíða nýtt hafrann-
sóknarskip. Við þurfum að vera
vel tækjum búin þegar kemur að
eftirliti og rannsóknum á undir-
stöðuatvinnuvegi þjóðarinnar
sem hefur skapað svo mörgum úr-
valsfjölskyldum ævintýraleg auð-
æfi. Miðað við þessar fáránlegu
aðstæður sem skipasmíðin var
samþykkt við þá er alveg hægt að
slá því föstu að smíði skipsins fer
að minnsta kosti þrefalt fram úr
kostnaðaráætlunum.
Firring hátíðarhaldanna í vik-
unni kristölluðust síðan í þeirri
staðreynd að skipuleggjendur
gerðu ráð fyrir því að þúsundir Ís-
lendinga myndu keyra til Þing-
valla og fylgjast með þessu lestar-
slysi í beinni. Líklega mætti enginn
Íslendingur sérstaklega til leiks en
vissulega vöppuðu einhverjir er-
lendir ferðamenn um þjóðgarðinn
og forvitnuðust um hvað væri í
gangi. Afgangurinn var lögreglu-
menn og fjölmiðlafólk.
Eins og vera ber eru skipuleggj-
endur í fullkominni afneitun og
munu seint viðurkenna hvurslags
niðurlægingu þeir buðu upp á fyr-
ir íslenska þjóð. Þar hefur forseti
Alþingis, Steingrímur J. Sigfússon,
farið fremstur í flokki og varið ras-
istann Piu Kjærsgaard í hvívetna.
Rökin eru þau að hún sé þjóð-
kjörin og að hún hafi komið til Ís-
lands í krafti embætti síns en ekki
sem einstaklingur. Með sömu rök-
um getur Steingrímur því réttlætt
að taka höfðinglega á móti úrvali
þjóðkjörinna drullusokka. Ekki er
ljóst hvort Erdogan eða Duterte
verði á undan að falla í hlýjan
austfirskan faðminn.
Víkur þá sögunni að pínlegri
stjórnarandstöðunni. Þar á bæ
flutu menn sofandi að feigðarósi
og höfðu enga skoðun á ruglinu
fyrr en því var skyndilega slegið
upp í fjölmiðlum. Dagskrá hátíðar-
innar er búin að vera í vinnslu lengi
og tilkynnt var þann 20. apríl að
Kjærsgaard myndi halda tölu við
hátíðarhöldin. Það er varla ósann-
gjarnt að fara fram á að þingmenn
fylgist með í vinnunni.
Viðbrögð stjórnarandstæðinga
komu síðan varla á óvart. Píratar
hafa sjaldan látið hjá líða að
stökkva á vænlegar Facebook-
-hneykslisöldur og skreyta sig
popúlískum fjöðrum. Þeir ollu
ekki vonbrigðum í þetta skiptið og
stigu fram með tilgerðarleg mót-
mæli á síðustu stundu. Heiðar-
legra hefði verið að stíga fram
og viðurkenna að enginn í þing-
flokknum hefði veitt því nokkra
athygli sem í vændum var og að
þingmenn flokksins skömmuðust
sín niður í tær fyrir að hafa ekki
hreyft neinum mótmælum í að-
draganda mótmælanna.
Sú ágæta kona Helga Vala
Helgadóttir hefur að sama skapi
gott auga fyrir dramatíkinni og lét
glepjast af fárviðrinu á Facebook.
Hún hefði betur límt á sig mót-
mælalímmiða frá VG-villikettin-
um, látið sig skjálfa af kuldahrolli
hinna réttlátu og tuldrað fyrir
munni sér orð sem sérhver íslensk
sjálfstæðishetja hefur eflaust þurft
að grípa til í áranna rás: „Fy for
fanden“. n
Leiðari
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
erlendir embættismenn sem Steingrímur mun taka fagnandi á næsta hátíðarfundi:
Robert Duterte
Allt að því handahófskenndar aftökur
undir stjórn Dutertes og fasískir
tilburðir hans eru vissulega umdeildir
en það má ekki gleyma því að hann er
þjóðkjörinn leiðtogi Filippseyja. Sam-
band þjóðanna verður sífellt nánara
enda koma 4,5% allra innflytjenda frá
Filippseyjum.
Viktor Orban
Hinn þjóðkjörni ungverski forsætisráð-
herra gæti farið ítarlega yfir áætlun
sína um að brytja niður lýðræði þjóðar
sinnar, skref fyrir skref.
Adolf Hitler
(með hjálp Þórhalls miðils). Hinn þjóð-
kjörni þýski leiðtogi dáðist að mörgu
hjá norrænu þjóðinni og þrátt fyrir
umdeildar skoðanir þá má ekki ekki
horfa á manninn, heldur embættið.
Adolf hefði eflaust haldið innblásna
ræðu um ágæti íslenskra aría.
Recep T. Erdogan
Tyrkneski forsetinn var nýlega endur-
kjörin með glæsilegum hætti eða með
97,7% atkvæða. Skoðanir hans og
gjörðir eru umdeildar en hann er fulltrúi
tyrknesku þjóðarinnar og samherji
Íslands í NATO.
Ég var til
í gamla daga
„Þessi skrítna ljósmynd sýn-
ir sóldýrkendur í Reykjavík
á góðviðrisdegi. Sumar-
ið 1960 var víst gott. Þetta
var fyrsta sumarið sem ég
lifði. Ekki man ég eftir því,
en það eru til ljósmyndir
af mér í vagni úti í garði í
góðu veðri. Svo það komu
greinilega dagar þegar ekki
rigndi.“
Þetta segir Egill Helgason
á síðu sinni Silfur Egils á
vef DV, þar sem lesa má frá-
sögnina í heild. Egill heldur
áfram:
„Þegar ég sé mynd eins og
þessa kemst ég að því að ég
var til í gamla daga. Arn-
arhóll virðist hafa verið
fjölfarnari staður á þessum
tíma en hann var síðarmeir.
Það er ekki að sjá neinn
trjágróður frekar en á
myndum frá Reykjavík
þessa tíma. […] Á þess-
um tíma stóð rónalífið
í Hafnarstræti í blóma.
Rónarnir héldu líka til á
Arnarhóli og áttu þar skjól.
Samt er óhætt að fullyrða
að fólkið á myndinni sé ekki
allt rónar.
Það er sól í dag. Svo rign-
ing á morgun (í dag), skilst
manni. En það er hægt að
ylja sér við þessa mynd.
Merkilegt samt hvað grasið
á hólnum virðist vera illa
farið og rytjulegt.“
Silfur Egils
í vikunni
Niðurlæging íslenskrar þjóðar
Arnarhóll