Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Síða 26
Vestfirðir Helgarblað 20.júlí 2018KYNNINGARBLAÐ Veitingastaðurinn 380 Restaurant var opnaður í nýrri viðbyggingu við Hólabúð að Reykhólum þann 14. júní síðastliðinn. Eigendur eru hjónin Ása Fossdal og Reynir Þór Róbertsson en þau reka einnig verslunina Hólabúð í sama húsnæði. Rekstur veitingastaðarins hefur farið vel af stað og er hann vinsæll bæði af heimamönnum og innlendum sem erlendum ferða- mönnum. „Við gerum mikið út á mat úr hér- aði og mun sú áhersla aukast mjög með haustinu þar sem stefnt er á ærkjöt og selkjöt (sem verður meira á vorin). Áherslan verður alltaf á úr- valshráefni og við vorum að taka inn nýveidda bleikju hér frá Reykhólum. Matseðillinn er dálítið breytilegur eftir því hvaða ferska hráefni við fáum hverju sinni,“ segir Reynir. 380 Restaurant dregur nafn sitt af póstnúmerinu í Reykhólahreppi. Staðurinn er opinn alla daga vikunn- ar út sumarið. „Það er opið í kaffi á morgnana um leið og verslunin er opnuð klukkan 10.00 en svo byrjar hádegishlaðborð klukkan 11.30 og stendur til klukkan 13.30. Hádegis- hlaðborðið er fjölbreytt og breytilegt en það er alltaf kjötréttur, fiskréttur, súpa, nýbakað brauð og salatbar.“ Staðurinn tekur að jafnaði 26 manns í sæti en hægt er að taka við allt að 50 manna hópum ef hringt er áður og bókað. „Kvöldmatseðillinn er síðan í gildi frá 16.00 til 21.00. Matseðillinn er fjölbreyttur en líklega er Hólabúðar- hamborgarinn vinsælastur að öðrum réttum ólöstuðum. Hann hefur slegið rækilega í gegn á TripAdvisor. Það eru sósurnar sem gera hann svo sér- stakan og eftirminnilegan en þetta er eitthvað sem þú færð ekki annars staðar,“ segir Reynir. Að sögn Reynis er staðurinn vin- sæll hjá fjölskyldufólki og krakkarnir sækja mikið í fisk og franskar –„fish and chips“. Síðan er hægt að taka með alla rétti sem eru á matseðli og eru margir sem nýta sér það, hringja og panta og sækja síðan. Pöntunarsíminn er 434-7890 en nánari upplýsingar eru á Facebook- síðunni Hólabúð Reykhólahreppi. 380 Restaurant er spennandi staður sem ferðalangar á leið vestur um land ættu endilega að hafa í huga. Þess má geta að 380 Restaur- ant hefur fengið frábæra dóma á TripAdvisor og að jafnaði fengið fimm stjörnur í einkunn. Bæði innlendir og erlendir viðskiptavinir lofa matinn og þjónustuna og margir hafa sérstakt orð á því hvað Hólabúðarborgarinn er frábær. Einn segir: „Besti borgari sem ég hef bragðað. Góður matur og virkilega huggulegur veitingastað- ur. – Annar segir: „Þessi staður er þess virði að stoppa á. Einn af þeim bestu.“ 380 RESTAURANT: Splunkunýr og spennandi veitingastaður á Reykhólum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.