Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Blaðsíða 26
Vestfirðir Helgarblað 20.júlí 2018KYNNINGARBLAÐ
Veitingastaðurinn 380 Restaurant var opnaður í nýrri viðbyggingu við Hólabúð að
Reykhólum þann 14. júní síðastliðinn.
Eigendur eru hjónin Ása Fossdal og
Reynir Þór Róbertsson en þau reka
einnig verslunina Hólabúð í sama
húsnæði. Rekstur veitingastaðarins
hefur farið vel af stað og er hann
vinsæll bæði af heimamönnum og
innlendum sem erlendum ferða-
mönnum.
„Við gerum mikið út á mat úr hér-
aði og mun sú áhersla aukast mjög
með haustinu þar sem stefnt er á
ærkjöt og selkjöt (sem verður meira
á vorin). Áherslan verður alltaf á úr-
valshráefni og við vorum að taka inn
nýveidda bleikju hér frá Reykhólum.
Matseðillinn er dálítið breytilegur eftir
því hvaða ferska hráefni við fáum
hverju sinni,“ segir Reynir.
380 Restaurant dregur nafn sitt
af póstnúmerinu í Reykhólahreppi.
Staðurinn er opinn alla daga vikunn-
ar út sumarið. „Það er opið í kaffi á
morgnana um leið og verslunin er
opnuð klukkan 10.00 en svo byrjar
hádegishlaðborð klukkan 11.30 og
stendur til klukkan 13.30. Hádegis-
hlaðborðið er fjölbreytt og breytilegt
en það er alltaf kjötréttur, fiskréttur,
súpa, nýbakað brauð og salatbar.“
Staðurinn tekur að jafnaði 26
manns í sæti en hægt er að taka við
allt að 50 manna hópum ef hringt er
áður og bókað.
„Kvöldmatseðillinn er síðan í gildi
frá 16.00 til 21.00. Matseðillinn er
fjölbreyttur en líklega er Hólabúðar-
hamborgarinn vinsælastur að öðrum
réttum ólöstuðum. Hann hefur slegið
rækilega í gegn á TripAdvisor. Það
eru sósurnar sem gera hann svo sér-
stakan og eftirminnilegan en þetta
er eitthvað sem þú færð ekki annars
staðar,“ segir Reynir.
Að sögn Reynis er staðurinn vin-
sæll hjá fjölskyldufólki og krakkarnir
sækja mikið í fisk og franskar –„fish
and chips“. Síðan er hægt að taka
með alla rétti sem eru á matseðli og
eru margir sem nýta sér það, hringja
og panta og sækja síðan.
Pöntunarsíminn er 434-7890 en
nánari upplýsingar eru á Facebook-
síðunni Hólabúð Reykhólahreppi.
380 Restaurant er spennandi staður
sem ferðalangar á leið vestur um
land ættu endilega að hafa í huga.
Þess má geta að 380 Restaur-
ant hefur fengið frábæra dóma á
TripAdvisor og að jafnaði fengið fimm
stjörnur í einkunn. Bæði innlendir og
erlendir viðskiptavinir lofa matinn og
þjónustuna og margir hafa sérstakt
orð á því hvað Hólabúðarborgarinn
er frábær. Einn segir: „Besti borgari
sem ég hef bragðað. Góður matur og
virkilega huggulegur veitingastað-
ur. – Annar segir: „Þessi staður er
þess virði að stoppa á. Einn af þeim
bestu.“
380 RESTAURANT:
Splunkunýr og spennandi
veitingastaður á Reykhólum