Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Qupperneq 27
VestfirðirHelgarblað 20. júlí 2018 KYNNINGARBLAÐ Á Bíldudal reka hjónin Gísli Ægir Ágústsson og Anna Vilborg Rúnarsdóttir Vegamót, eina veitingastaðinn, búðina, kaffihúsið og barinn í bænum. „Og einu félagsmið- stöðina,“ segir Gísli, sem er fæddur og uppalinn á Bíldudal og þarf ekki að fara langt frá vinnustaðnum til að finna æskuheimilið. „Æskuheimilið er á Tjarnarbraut 1 og Vegamót eru á Tjarnarbraut 2. Mamma og pabbi búa hinum megin við götuna þannig að þetta er mjög hentugt. Ég er í um 50 metra fjarlægð frá æskuheim- ilinu. Við hjónin fluttum aftur vestur fyrir sjö árum, eftir að hafa búið í Reykjavík í sjö ár.“ Vegamót hafa verið í rekstri í nokkuð mörg ár, frændi Gísla rak Vegamót í 27 ár, síðan tóku þrjár konur í fjölskyldu Gísla við og ráku staðinn í fimm ár. „Þegar þær ákváðu að hætta rekstri og fara í önnur verkefni buðu þær okkur að kaupa reksturinn, þá sá ég að þarna var tækifæri sem býðst ekki á hverju ári,“ segir Gísli, en þau hjónin hafa rekið staðinn frá 1. september síðastliðnum. „Ég er mataráhugamaður og hef alltaf verið, ég er líka lífskúnster og hef verið í alls konar samfélagsstörf- um,“ segir Gísli. „Ég var einn af þeim sem stofnuðu Skrímslasetrið, hef verið veislustjóri á flestum skemmtunum hér á sunnanverðum Vestfjörðum og syng í hljómsveit.“ Vegamót býður upp á fjölmargar nýjungar „Vegamót er fallegt sambland af grilli og veitingastað, hér færðu alla flór- una,“ segir Gísli. „Fastur matseðill er í boði alla daga; hamborgarar, „fish & chips“ sem við höfum ítrekað fengið athugasemdir um að sé besta „fish & chips“ í heiminum. Í því er þorskur, sem kemur frá Patreksfirði. Við bjóðum líka upp á lax héðan úr firðinum. Yfir veturinn er ég með villibráðar- kvöld í október, en ég hafði séð um það fjögur ár á undan fyrir fyrri eigendur, jólahlaðborð, kræklingakvöld, kínverskt kvöld. Það eru sem sagt alls kyns matarviðburðir í boði yfir veturinn og stundum lifandi tónlist með, til dæmis trúbador oft um helgar. Þannig að það er alls konar í boði. Þegar við tókum við hér var Guð- mundur Liljendal kokkur á staðnum og hann kenndi mér ýmsa hluti í eldhús- inu, til dæmis sósugerð og fleira. Við gerum allar okkar sósur sjálf, eins og hamborgarasósurnar, þar bjóðum við upp á þrjár sósur: chilimajó, bearnaise og ferskt kryddjurtamauk, við bjóð- um ekki upp á þennan hefðbundna vegaborgara, heldur erum með 140 gramma kjöt í borgurunum. Við erum með chilimajó með frönskunum og við gerum umagisósu á „fish & chips“. Erlendir ferðamenn, auk heima- manna, heimsækja Vegamót á tímabil- inu frá maí til október, nóvember, en yfir veturinn eru gestir aðallega heima- menn og þeir sem koma á Bíldudal vegna Arnarlax og Ískalk. „Þá sé ég oft um kvöldmat fyrir starfsmenn og gesti þeirra að kvöldi til,“ segir Gísli. „Ég tek einnig að mér veisluþjónustu út fyrir Bíldudal og sá til dæmis um 250 manna árshátíð í vor á Patreksfirði fyrir fyrirtækin hérna á svæðinu. Svo til gamans má nefna að í vetur var ég með óveðursopnun. Ég á 30 ára gamla Lödu Sport og setti son minn í að sækja fólk sem treysti sér ekki til að ganga til okkar, og einnig að skutla því heim. Þetta heitir að sníða sér stakk eftir vexti og velvildin skilar sér alltaf til baka.“ Vegamót eru að Tjarnarbraut 2, Bíldudal. Síminn er 456-2232 og net- fangið er vegamotbildudal@gmail.com. Vegamót eru á Facebook: Vegamót Bíldudal. Opnunartími er kl. 10–22 yfir sum- arið og styttist svo yfir skammdegið þegar rólegra er. VEGAMÓT BÍLDUDAL Besta „fish & chips“ í heiminum að margra mati

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.