Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Side 29
VestfirðirHelgarblað 20. júlí 2018 KYNNINGARBLAÐ
CAFE DUNHAGI:
Gæðastund í húsi
minninganna
Þetta var byggt árið 1931, upphaflega til að hýsa krakka sem komu til að keppa á
sundmótum en sundlaugin hérna var
um tíma sú eina á svæðinu. Þetta þótti
vera geysilega mikil framkvæmd á
sínum tíma. Stórstúkan tók síðan við
hér og þetta var kallað Stúkuhúsið.
Árið 1970 var því síðan breytt í
samkomuhús, byggt var mikið svið
fyrir hljómsveitir og lagt dansgólf. Sagt
var að dansinn dunaði í Dunhaga,“
segir Dagný Alda Steinsdóttir, eigandi
veitingastaðarins Cafe Dunhagi sem
er í sögufrægu húsi á Sveinseyri, rétt
utan við þorpið á Tálknafirði.
Dagný opnaði veitingastaðinn árið
2012 en hún hefur endurnýjað húsið
mikið og er nú að endurbyggja salinn
á efri hæðinni í upprunalegri mynd
og útbúa þar aðstöðu fyrir fundi og
veislur. Nátthagi er opinn frá kl. 14 til
22 alla daga vikunnar og þar er lögð
sérstök áhersla á ferskt hráefni úr
héraðinu:
„Við erum hérna með
Tungusilunginn, afurð úr sjálfbærri
silungsrækt. Lambakjötið er úr
héraðinu og fólk kann vel að meta
að lambið fær að rölta um
mosann hérna allt í kring. Svo
leggjum við mikið upp úr
fjörugróðri, þurrkum og
djúpsteikjum beltisþara,
tínum hundasúrur og
rabarbaratertan hérna
er vinsæl en hér eru
rabarbaragarðar úti
um allt,“ segir Dagný.
Að sögn Dagnýjar
er Dunhagi
mjög heppilegur
áningarstaður þar
sem hann liggur mitt á
milli náttúruperlnanna
Dynjanda í norðri og
Látrabjargs í suðri. „Það er
líka mjög skjólsælt hérna og
stór og mikill skógur beint fyrir
ofan. Þá er tjaldstæðið hérna líka
framúrskarandi,“ segir Dagný.
Fyrir utan að fá dásamlegan mat
þá er líka fínt að stoppa á Dunhaga
fyrir bjór, kaffi og aðra létta hressingu.
Veitingasalirnir inni í húsinu taka um
50 manns og auk þess er nýr og fínn
pallur úti til að sitja á þegar vel viðrar.
„Fuglavarpið er beint fyrir framan
okkur hérna á pallinum. Hér eru
um 2.000 æðarkollur og kríuvarp
og hettumávar. Þetta eru hátt í 40
fuglategundir og það er ekki síst
fuglaáhugafólk sem sækir hingað,“
segir Dagný.
En fyrir suma er það húsið
sjálft, Dunhagi, sem hefur mesta
aðdráttaraflið. „Þetta hús tekur
ákaflega vel á móti manni. Gólfið
dúar undan fótunum og loftið
angar af minningum. Hér urðu mörg
hjónabönd til á dansleikjunum. Hingað
koma margir til að rifja upp gamlar
minningar og ég hef gert mér far um
skrásetja söguna í myndum sem prýða
veggina.“
Sjá nánar á Facebook-síðunni Cafe /
Restaurant Dunhagi.