Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Side 31
VestfirðirHelgarblað 20. júlí 2018 KYNNINGARBLAÐ
STEINSHÚS
Gæðastund í húsi skáldsins
Nauteyri er innst í Ísafjarðardjúpi, á Langadalsströnd. Þegar
keyrt er að sunnan og búið að
aka í gegnum Hólmavík og yfir
Steingrímsfjarðarheiði, er komið
að Steinshúsi skömmu eftir fyrstu
beygju til hægri af þjóðveginum.
Í Steinshúsi getur að líta sýningu
um skáldið Stein Steinar í máli og
myndum og í sama húsnæði er
rekið kaffihús og veitingasala þar
sem opið er frá kl. 10 til 22 alla
daga vikunnar fram til 27. ágúst.
Kaffið á þessum merkilega
stað er mjög rómað og þykir
einstakt: „Hér köllum við þetta
kaffi náðarjurt. Þú þarft eiginlega
bara að koma og bragða það,
en þetta kaffi hefur fengið alveg
svakalega hástemmdar umsagnir.
Við blöndum saman tveimur
baunategundum sem eru malaðar
og útkoman er ótrúleg,“ segir
Sigurður Sigurðsson, veitingamaður
í Steinshúsi. Auk þess er boðið
upp á vöfflur með rjóma og kökur,
þar á meðal jarðarberja- og
súkkulaðisjarmörinn „Steinarr“.
Enn fremur er íslenska kjötsúpan
í Steinshúsi afar vinsæl hjá
ferðahópum.
Þegar að er gáð eru margar
góðar ástæður til að gera stans
hjá Steinshúsi þegar ekið er
um héraðið, fyrir utan afar
merkilega sýningu og fádæma
gott kaffi í sveitasælunni: „Fólk
getur setið hér á veröndinni
og fylgst með hvölunum í
Djúpinu leika sér á meðan
það drekkur kaffið, og svo
stingur haförn sér niður
eftir æti. Ferðalangar eru
ekki síst hrifnir af þessu
svæði, þeir halda örlítið
lengra og fara inn í Kaldalón,
þar sem Drangajökull skríður
fram,“ segir Sigurður.
Í Steinshúsi eru stundum
haldnir tónleikar og skáld stíga
gjarnan á svið og lesa upp
eftirlætisljóð sín eftir Stein og
eigin verk. Dagskráin er auglýst
á Facebook-síðu staðarins,
Steinshús.
Spennandi gistikostur
Sýningin um Stein Steinar og
veitingasalan eru í sama húsi en
við hliðina er íbúð til gistingar. Þar
er gistipláss fyrir fjórar manneskjur,
baðherbergi, eldhús og þvottahús.
Einnig fylgir heitur pottur íbúðinni
og þá má geta þess að stutt er í
náttúrulaugar. Þá er góð aðstaða
fyrir hjól- og fellihýsi og tjöld. Þetta
er því fyrirtaksstaður til að eiga
stutt frí í kyrrð og einstakri fegurð
vestfirskrar náttúru.
Upplýsingar um gistingu og
bókanir fást í síma 898-9300. Sjá
nánar um Steinshús á vefsíðunni
steinnsteinarr.is.