Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Page 35
FÓLK - VIÐTAL 3520. júlí 2018
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR
& UNDIRKERFI
hætta og fara bara að reykja og
drekka í staðinn. Ég held að það
hafi verið einhvers konar uppreisn
fólgin í þessu líka. Ég hafði alltaf
verið til fyrirmyndar og hlýtt öllum
reglum, en ég fann einhverja þörf
til að brjótast út úr því boxi,“ segir
Bibbi.
Hann flutti suður, fékk vinnu
í Bónus og milli þess sem hann
reykti og drakk þá sinnti hann
ástríðu sinni, tónlistinni.
„Ég er alinn upp við
hljóðfæraleik og tónlist. Pabbi
var náttúrlega tónlistarkennari
og í æsku minni var ég alltaf
umkringdur hljóðfærum og að
sjálfsögðu gat pabbi spilað á þau
öll. Ég fékk að fikta og leika mér
með hljóðfærin eins og ég vildi
en tónlistinni var aldrei haldið að
mér sem einhverri kvöð. Ég lærði
á píanó og á blokkflautu, en það
var alltaf á mínum forsendum og
skemmtilegt eftir því,“ segir Bibbi.
Heimsfrægir á Húsavík og Hellu
Tónlistin hafði því alltaf verið
nærri hjarta hans, en um tíma
var það svo eðlilegur hluti af
hversdagslífinu að hann spáði
ekki einu sinni í að leggja hana
fyrir sig. „Það var aldrei pressa um
það frá foreldrunum. Skilaboðin
voru mun frekar þau að ég ætti
í guðanna bænum ekki að vera
tónlistarsnillingur. Þetta var
bara eðlilegur hlutur að fikta við
hljóðfæri. Það var ekki fyrr en á
unglingsárunum sem ég fór að
átta mig á því að það kunnu ekki
endilega allir á gítar,“ segir Bibbi
og hlær.
Hann telur að þetta frelsi hafi
mögulega gert að verkum að hann
fetaði síðar slóð tónlistarsköpunar
með rokkhljómsveitum frekar
en að læra og mennta sig í
listgreininni. „Ég og Baldur bróðir
fetuðum þessa óskynsamlegu
braut, en Helga systir mín fór
þveröfuga leið. Hún er sprenglærð
í tónsmíðum og er að gera
ofboðslega flotta hluti á þeim
vettvangi,“ segir Bibbi.
Á táningsaldri var fyrsta
hljómsveitin stofnuð og fékk
hún nafnið Honzby. „Við
hlustuðum mikið á Metallica
og Iron Maiden en það var ekki
séns að við gætum spilað slíka
tónlist þannig að við spiluðum
svokallað vankunnáttupönk,“
segir Bibbi. Næst var það „death-
metal“-hljómsveitin Torture og
síðan hljómsveitin Innvortis. „Við
kepptum í Músíktilraunum 1997
og gáfum út plötu ári síðar. Sú
plata gerði okkur heimsfræga á
Húsavík og síðar heyrði ég að við
hefðum líka orðið heimsfrægir
á Hellu. Það hefur sennilega
einhver töffari í einhverjum bekk
sagt að Innvortis væri geggjað
band og þar með var það gengið í
gegn,“ segir Bibbi og hlær.
Kærastan svipti sig lífi
Um svipað leyti gekk hann í gegn-
um hrikalega reynslu sem setti svip
sinn á líf hans lengi á eftir. Kærasta
hans, Anna María, svipti sig lífi á
gamlárskvöld 1999. „Við byrjuðum
saman árið 1997. Hún átti dóttur
fyrir, fósturdóttur mína, sem var
ársgömul þegar við kynntumst. Það
var búið að vera smá drama í gangi
og við hættum saman á annan í jól-
um. Anna María sviptir sig síðan lífi
nokkrum dögum síðar,“ segir Bibbi.
Eðlilega var um gríðarlegt áfall
að ræða sem hann var lengi að
vinna úr. „Þetta var hræðilegur
tími. Ég hef alltaf átt ofboðslega gott
fólk í kringum mig sem hélt utan
um mig á þessum tíma, en foreldr-
ar, fjölskylda og vinir Önnu Maríu
reyndust mér líka ofboðslega vel.
Það vottaði aldrei á neinni ásökun í
minn garð heldur var tekið á þessu
af yfirvegun og skynsemi,“ segir
Bibbi.
Hann segist hafa frestað því lengi
að takast á við vandamálin sem
fylgdu í kjölfarið. „Mér var otað í átt
að sálfræðingum og geðlæknum en
þeir sem ég hitti náðu ekki til mín.
Ég nennti ekki að standa í þessu og
er svo góður í kjaftinum að ég bull-
aði mig út úr þessu. Mér fannst mér
ekki líða illa og ég var viss um að ég
væri ekki þunglyndur. Þegar ég horfi
til baka þá var það kannski ekki al-
veg svo einfalt. Ég átti það til að loka
mig af og mæta ekki í vinnuna. Lá
bara heima og spilaði Playstation
eins og það væri töff. Ég drakk mik-
ið á þessum tíma en aldrei þó illa.
Ég gerði aldrei neitt af mér og fékk
eiginlega aldrei móral eða kvíða
eftir fyllerí. Þetta er samt kannski
það alkóhólískasta sem hægt er að
segja,“ segir Bibbi kíminn.
Hitti frábæran sálfræðing
Hann hafi loks farið í tíma til
Trausta Valssonar sálfræðings.
„Ég sagði honum alla sólarsöguna
og það fyrsta sem hann sagði við
mig var að þetta væri allt mér að
kenna. Ég horfði bara undrandi
á hann og hugsaði: „Hvaða
snillingur er þetta?“. Ég gekk til
hans í mörg ár, miklu lengur en
ég í raun þurfti. Hann opnaði
augu mín fyrir því hvernig góðir
sálfræðingar og geðlæknar geta
bjargað mannslífum. Hann
hjálpaði mér líka mikið við að
finna mína fjöl í lífinu. Ég fæ
svona 300 hugmyndir á dag en svo
talar maður margar þeirra niður
og framkvæmir ekkert. Það gilti til
dæmis um þann draum að stofna
þungarokkhljómsveit. Ég var viss
um að enginn mundi enginn
nenna að hlusta á þungarokk.
Trausti sagði mér að vera ekki
með neinn aumingjaskap heldur
gera eitthvað í málunum. Það var
það sem ég gerði,“ segir Bibbi.
Fyrst var þó komið að Ljótu
hálfvitunum sem spruttu upp úr
jarðvegi áhugamannaleikhúsa.
„Eftir aldamótin fór ég í nám
í rafeindavirkjun og átti bara
eina önn eftir þegar ég ákvað að
hætta. Ég var þá kominn inn í
áhugamannaleikfélagið Hugleik
og þar kynnist ég Agga, Togga
og Sævari sem voru að skrifa
leikrit á fullu, meðal annars
fyrir Þjóðleikhúsið. Við fengum
síðan boð um að skrifa efni fyrir
Stundina okkar.“
Bibbi hafði mesta ánægju af
því að skrifa texta og semja tónlist
fyrir verkin. Hann prófaði að stíga
á svið en það var bara í eitt skipti.
„Mér fannst það hundleiðinlegt
og ákvað því að gera það ekki
aftur,“ segir hann.
Ljótu hálfvitarnir slá í gegn
Að hans sögn var mikið félagslíf í
kringum áhugamannaleikhúsið
sem hann heillaðist algjörlega
af. „Það var mikið um partí og í
þeim var spilað og sungið, oftar
en ekki eitthvað sem einhver í
hópnum hafði samið. Þetta voru
eflaust skrítnar samkomur fyrir
þá sem ekki þekktu til hópsins.
Toggi, Ármann og Sævar höfðu
stofnað Ljótu hálfvitana mörgum
árum fyrr en það varð ekkert
mikið meira úr því þá. Síðan fékk
Ármann í raun þessa hugmynd að
búa til hljómsveit til þess að halda
utan um og spila öll þessi lög sem
meðlimirnir voru búnir að semja
í kringum leikhúsið og einnig
þau sem voru niðri í skúffum.
Hugmyndin var að útsetja þau á
fyndinn hátt og sjá hvað gerðist.
Það er síðan kýlt á það undir nafni
Ljótu hálfvitanna,“ segir Bibbi.
Bandinu var strax tekið opnum
örmum. „Við unnum fljótlega
Sjómannalagakeppni og þá
þurftum við allt í einu að gefa út
plötu í hvelli. Það var ekki mikið
mál enda var nóg efni til. Hlutirnir
gerðust hratt og við spiluðum
síðan eins og óðir menn um tíma.“
„Ljótu hálfvitarnir eru
skólabókardæmi um hvernig á
að reka alheiminn“
Meðlimir Ljótu hálfvitanna voru
níu talsins í upphafi og enn hefur
enginn ákveðið að segja það gott
og kveðja hljómsveitina. „Þetta
er ofboðslega skemmtilegur
félagsskapur. Það er alveg
stórkostlegt þegar við hittumst allir
og spilum. Þetta er margbrotinn
hópur, húrrandi fyllibyttur, óvirkir
alkar og prestur. Við reynum
að skemmta okkur vel og taka
hlutina mátulega alvarlega. Ljótu
hálfvitarnir eru skólabókardæmi
um hvernig á að reka alheiminn,“
segir Bibbi.
Þrátt fyrir að vera með mörg járn
í eldinum ákvað Bibbi síðan að búa
til eina risastóra járnstöng í viðbót
og fleygja henni í troðið eldstæðið.
„Þá voru Ljótu hálfvitarnir búnir
að spila gríðarlega mikið og aldrei
þessu vant vorum við alveg að fara
að drepa hver annan. Við tókum
því pásu og þá fór ég að hugsa um
gamlan draum um að stofna alvöru
þungarokkhljómsveit,“ segir Bibbi.
Þegar hann hafi farið að hugsa
hverjir gætu verið í slíkri hljómsveit
með sér þá áttaði sig á því að hann
þekkti alla þá sem gætu skipað slíkt
band. „Ég settist því niður og sendi
tölvupóst á strákana þar sem ég
útlistaði hugmyndina. Í þessum
fyrsta pósti er lagalistinn fyrir
fyrstu plötuna. Það tóku allir vel í
hugmyndina og fljótlega hittumst
við og byrjuðum að kasta á milli
okkar hugmyndum,“ segir Bibbi.
Skálmöld var fædd.
Böbbi tók yfirdrátt og Bibbi
veðsetti íbúðina
„Þetta sprakk út á ótrúlega skömm-
um tíma. Við bjuggum til tvö demó
og röltum með þau á milli útvarps-
stöðva. Við vorum ekki bjartsýnir
á að fá spilun en það gekk þó eftir
og skömmu síðar hljómuðu lögin
okkar úti um allt. Það kom okkur í
raun mjög á óvart, sumir meðlim-
ir voru orðnir fjölskyldufeður og við
vissum eiginlega ekki í hvorn fótinn
ætti að stíga, hvort að við ættum að
hamra járnið þegar það væri heitt
eða ekki,“ segir Bibbi.
Þeir hafi síðan ákveðið að taka
upp fyrstu plötu hljómsveitarinn-
ar, Baldur. „Við vildum gera það al-
mennilega. Böbbi tók yfirdrátt upp
á nokkrar milljónir og ég veðsetti
íbúðina,“ segir Bibbi. Þegar afurðin
var að mestu leyti tilbúin þá athug-
uðu þeir með útgáfu hér á landi.
„Sena hafnaði okkur og þá
„Þetta var hræði-
legur tími. Ég hef
alltaf átt ofboðslega gott
fólk í kringum mig sem
hélt utan um mig á þess-
um tíma, en foreldrar,
fjölskylda og vinir Önnu
Maríu reyndust mér líka
ofboðslega vel. Það vott-
aði aldrei á neinni ásök-
un í minn garð heldur var
tekið á þessu af yfirvegun
og skynsemi.