Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Side 36
36 FÓLK - VIÐTAL 20. júlí 2018
Við erum flutt á Malarhöfða 2
110 Reykjavík, 2. hæð
Fataviðgerðir & fatabreytingar
ákváðum við að leita til færeysku
útgáfunnar Tutl. Kristian, eigandi
útgáfunnar, er mikill hugsjóna-
maður og gefur eiginlega allt efni
út sem lagt er fyrir hann. Tutl gaf
plötuna út og gamall samstarfs-
maður Kristians vinnur hjá hinu
þekkta austurríska útgáfufyrirtæki
Napalm Records. Við fengum síð-
an samning hjá því og í kjölfarið
tóku við umfangsmikil ferðalög
um alla Evrópu,“ segir Bibbi.
Allir fá sitt rými á
tónleikaferðalögum
Hlutirnir höfðu gerst hratt og það
reyndi og reynir enn á að fara í
langa tónleikatúra. „Þetta hentar
mönnum misvel. Í seinni tíð erum
við orðnir mjög góðir í að gefa öll-
um það rými sem þeir vilja. Sumir
vilja vera fullir flest kvöld á með-
an aðrir vilja bara fara í koju og
þá er það bara ekkert mál. Svo
breytast aðstæður, ég átti ekki
börn þegar þetta ævintýri byrjaði
en núna er ég tveggja barna fað-
ir og þá reyna þessi ferðalög enn
meira á. Túrarnir geta verið mjög
langir og ótrúlega lýjandi en þetta
er bara svo ofboðslega gaman að
það er þess virði. Við lækkum yf-
irleitt í launum við að taka okk-
ur frí frá störfum okkar og túra en
fólkið sem maður hittir og upp-
lifunin við að spila á mismunandi
stöðum gerir þetta þess virði. Það
er engu líkt að standa á sviði með
Skálmöld. Mér líður alltaf eins og
ég sé með herfylkingu á bak við
mig,“ segir Bibbi.
Fram undan er fimmta plata
sveitarinnar sem kemur út í
haust auk þess sem miðar á tón-
leika Skálmaldar og Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands í ágúst hafa
selst eins og heitar lummur.
Það er því engin þreyta komin í
mannskapinn né hugmyndir um
draga saman seglin. „Það hefur
aldrei verið rætt um að hætta, en
við höfum þurft að setjast niður
og ákveða hvað við viljum spila
mikið. Við erum ekki enn orðn-
ir það þekktir að við getum lif-
að á þessu. Við komum venju-
lega blankari heim úr túrum
en þegar við lögðum af stað. En
launin hækka alltaf með hverjum
túr og tónleikastaðirnir verða sí-
fellt stærri og flottari. Það er líka
mikill tónlistarlegur metnað-
ur í hljómsveitinni og við erum
sannfærðir um að við séum með
frábæra plötu í höndunum,“ segir
Bibbi.
Var að drepast á harkinu
Í mörg ár freistaði Bibbi þess að
lifa á tónlist en fyrir sex árum
ákvað hann að sækja um fasta
vinnu hjá auglýsingastofunni
Pipar/TBWA. „Ég var búinn að
ákveða að ég væri svo mikill
listamaður að það ætti ekki við
mig að vinna fasta vinnu. Þvílíkt
og annað eins kjaftæði. Ég var
að drepast á þessu harki. Ég var
alltaf blankur og þurfti að taka
að mér öll möguleg verkefni til
þess að ná endum saman. Ég veit
ekki hvað varð til þess að ég opn-
aði augun og sótti um fasta vinnu
hjá Pipar, sem ég síðan fékk.
Ég mætti svo bara beint á fund
með Valla Sport og Sigga Hlö að
skipuleggja eitthvað og hugsaði
um stund hvað í ósköpunum ég
væri búin að koma mér út í,“ seg-
ir Bibbi og hlær.
Þær pælingar voru þó óþarf-
ar því fljótlega kom í ljós að þetta
var mikið gæfuspor. „Þetta er
besta vinna í heimi og með besta
fólki í heimi. Þar sem ég starfa á
Íslandi þá fæ ég að snerta á eig-
inlega öllu en aðallega starfa ég
þó við hugmynda- og textasmíð-
ar. Það hentar mér afar vel,“ seg-
ir Bibbi.
Hundleiðinlegt að skrifa
skáldsögu
Fyrir nokkrum árum gaf Bibbi út
skáldsöguna Geril auk þess sem
hann hefur vakið mikla athygli
fyrir hispurslausa pistla sína sem
birst hafa á Stundinni. „Ég fékk
þá flugu í höfðuð að skrifa skáld-
sögu og gerði það en komst að
því í miðju ferli að mér finnst það
hundleiðinlegt. Ég hef hins vegar
gaman af því að stuða aðeins
fólk með pistlum mínum,“ segir
Bibbi. Meðal annars hefur hann
skrifað pistla með umdeildum
fyrirsögnum á borð við „Barnið
mitt er bjáni“ og „Konan mín er
leiðinleg“.
„Ég hef bara gaman af að stuða
fólk ef það er einhver tilgangur
með því. Ég hef gaman af því að
rífa kjaft og síðan er ég líka bara
ofboðslega athyglissjúkur. Ég hef
líka mjög gaman af því að reyna
að vera fyndinn,“ segir Bibbi og
hlær.
Gekk of langt gegn Mörtu
Smörtu
Hann segist þó stundum hafa
gengið of langt og nefnir sem
dæmi reiðipistil sem hann skrif-
aði um Mörtu Maríu Jóns-
dóttur, betur þekkta sem Marta
á Smartlandi. „Hún skrifaði eitt-
hvað á Smartland og ég reiddist
og hakkaði hana í mig í pistli.
Þarna réðst ég á hana persónu-
lega í stað þess að vera málefna-
legur og ég dauðsé eftir þessu.
Ég hegðaði mér eins og fífl. Valli
Sport kallaði mig á fund og las
pistilinn fyrir mig og ég sökk nið-
ur í sætið. Ég reyndi að malda í
móinn en áttaði mig undir niðri
á því að ég hafði hegðað mér eins
og fífl. Ég eyddi því pistlinum, hr-
ingdi í Mörtu Maríu og bað hana
afsökunar. Hún tók því afskap-
lega vel enda er hún ótrúlega
vinaleg og fín þó að við deilum
kannski ekki sömu lífsviðhorf-
um. Þetta var mjög lærdómsríkt,“
segir Bibbi. n
„Ég var einhvern
veginn búinn að
fá þá flugu í höfuðið að
ég gæti ekki lært. Þetta
hafði alltaf verið svo auð-
velt, en skyndilega rakst
ég á vegg og þurfti að
taka upp bækurnar og
byrja að leggja hart að
mér. Ég var ekki tilbúinn
til þess og ákvað því að
hætta og fara bara að
reykja og drekka í stað-
inn.