Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Page 38
38 20. júlí 2018
ALLT FYRIR
FUNDARHERBERGIÐ
Þráðlaust
sýningartjald
Þráðlaus
búnaður
Hágæða öruggur
fjarfundabúnaður
DALVEGI 16B / S. 510 0500
FRÉTTIR - ERLENT
Hagstæðustu gleðistundirnar í miðborginni
n Ódýrasti bjórinn á Uppsölum - Bar & Café n Hægt að drekka bjór á afslætti til kl. 01 á Ölsmiðjunni
Þ
að er varla til sú krá eða
veitingastaður á höfuð-
borgarsvæðinu sem býður
ekki upp á „happy hour“,
gleðistundir þar sem ýmsir drykk-
ir, þó oftast bjór, eru á verulegum
afslætti. Í landi þar sem erlendir
ferðamenn kveinka sér iðulega út
af háu verði þá eru gleðistundirn-
ar orðnar ansi mikilvægur þáttur í
að lokka viðskiptavini inn á stað-
ina. Það er líka staðreynd að veigar
á hagstæðu verði bragðast betur.
Það er ljóst að Samkeppnis-
eftirlitið þarf ekki að skoða hvort
samráð sé í gangi á markaðnum
fyrir gleðistundirnar því þær eru
mjög mismunandi. Ódýrasti bjór-
inn er á 450 krónur en sá dýrasti er
á „tilboði“ á 1.000 krónur. Þá byrja
sumar gleðistundir klukkan 15.00
en rýmsti opnunartíminn er frá
klukkan 16.00 til klukkan eitt eftir
miðnætti.
Hér má sjá hagstæðustu gleði-
stundirnar. Þeim er raðað eftir
verði á drykk guðanna, bjór.
1 Uppsalir – Bar & Café. Aðal-stræti 12. Tveir fyrir einn á öll-
um bjór, kokteilum og léttvíni.
Ódýrasti bjórinn kostar 450 krón-
ur á krana. Opnunartíminn er þó
ekki mjög rúmur, eða frá klukkan
17–19.
2 Iða Zimsen. Vesturgata 2a. Aðeins tilboð á Egils Gull sem
kostar 495 krónur. Gleðstundin
hefst klukkan 19.00 dag hvern og
stendur til 22.00.
3 B5. Bankastræti 5. Skemmti-staðurinn vinsæli í Banka-
strætinu er afar rausnarlegur
varðandi tímann sem gleðistund-
in varir á hverjum degi. Tilboðið
tekur gildir klukkan 18.00 og því
lýkur klukkan 23.00. Boðið er upp
á tvo drykki á verði eins og þar er
Tuborg á dælu hagstæðastur, eða
500 krónur glasið. Gleðin hefst
klukkan 18.00 dag hvern, og varir
til klukkan 23.00.
4 Slippbarinn. Mýrargata 2. Í boði eru tvær tegundir, Vík-
ing Classic og Egils Gull á 500
krónur en að auki kostar glasið af
húsvíni, rautt og hvítt, 750 krónur.
Þá er einnig tilboð af völdum kok-
teilum. Slippbarinn hefur gleðina
snemma eða klukkan 15.00 dag
hvern en henni lýkur klukkan
18.00.
5 Skuggi Bar. Hverfisgata 103. Þessi nýlegi bar á samnefndu
hóteli býður upp á gleðistundir
dag hvern frá klukkan 17–19. Allt
áfengi á krana er á 2 fyrir 1-tilboði
sem og rauðvín og hvítvín hússins.
Ódýrasti bjórinn kostar því 500
krónur glasið.
6 Kaffibrennslan. Laugavegur 21. Þetta notalega kaffihús býð-
ur upp á prýðilegar gleðstund-
ir. Bjórinn kostar 550 krónur og
rauðvín og hvítvín hússins er á
750 krónur. Á hverjum degi milli
klukkan 16–20.
7 Geiri Smart. Hverfisgata 30. Icelandair-hótelin láta ekki sitt
eftir liggja í baráttunni um þyrsta
ferðalanga. Gleðistundirnar eru
frá klukkan 16–18 dag hvern og
kostar bjórinn 550 krónur. Þá er
50% afsláttur af húsvíni og valdir
kokteilar á tilboði.
8 Hótel Natura. Nauthólsvegur 52. Sama fyrirkomulag og hjá
Geira Smart en ekki var minnst á
kokteilana þegar DV hringdi til að
fá upplýsingar. Þar af leiðandi er
Geiri sæti ofar.
9 Ölsmiðjan. Lækjargata 10. Hér kostar bjórinn 590 krón-
ur sem er fínt verð. Hins vegar er
tilboðstíminn til mikillar fyrir-
myndar eða frá klukkan 16–01 dag
hvern.
10 Kofinn. Laugavegur 2. Tveir fyrir einn af bjór sem þýðir að
ódýrasti slíki bjórinn á krana, Vík-
ing Lager, kostar 595 krónur. Gleði-
stundirnir vara frá klukkan 16–19
dag hvern nema á miðvikudögum
en þá gildir tilboðið til kukkan 21.
Ódýra bjórröltið:
Túrinn hefst á slaginu klukkan
15.00 á Slippbarnum við Mýrar-
götu. Þar er setið að sumbli til
klukkan 17 og kostar glasið 500
krónur. Þá er förinni heitið á Upp-
sali við Aðalstræti enda ódýrasti
bjórinn í bænum, 450 krónur, þar
í boði frá 17–19 dag hvern. Um
leið og bjallan glymur er kjag-
að örstuttan spöl yfir á Vestur-
götu þar sem bjórinn kostar að-
eins 495 krónur. Um leið og þeirri
gleði lýkur er gengið upp Banka-
strætið þar sem bjórinn kostar
500 krónur á B5 til klukkan 23.00
hvert kvöld. Síðan er best að rúlla
sér niður á Lækjargötu þar sem
bjórinn kostar aðeins 590 krónur
á Ölsmiðjunni til klukkan eitt að
nóttu. n
5. Skuggi Bar við Hverfisgötu lætur til
sín taka á gleðistundamarkaðnum.
10. Kofinn við Laugaveg býður ölglasið á rétt undir 600 krónum.
6. Kaffibrennslan. Býð-
ur ekki bara upp á gott
kaffi heldur líka hag-
stæðar gleðistundir.
Byrjað á Slippbarnum
kl. 15.00
Uppsalir kl. 17.00
Iða Zimsen
kl. 19.00
B5 til
kl. 23.00
Ölsmiðjan til
kl. 01.00
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is