Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Síða 40
40 20. júlí 2018
M
iðvikudagurinn 1. sept-
ember, 2004, var örlaga-
ríkur dagur fyrir Pipitone-
-fjölskylduna í sikileyska
þorpinu Mazara del Vallo, eink-
um og sérílagi Denise, dóttur
Pipitone- hjónanna.
Daginn þennan hvarf Denise,
sem flesta daga hafði sett svip sinn
á nágrenni heimilis síns, af yfir-
borði jarðar.
Foreldrar Denise, Piera og Toni,
voru eðlilega slegin þegar dóttir
þeirra skilaði sér ekki heim. Þau
spurðu nágranna og vini og leit-
uðu í nærliggjandi götum en án
árangurs og að lokum höfðu þau
samband við lögregluna.
Árangurslaus leit og vonleysi
Engum kom til hugar að hvarf
Denise mætti rekja til illvirkis;
slíkt átti sér einfaldlega stað, hugs-
uðu allir, í því nána samfélagi sem
fólk bjó í, þar sem fjölskyldu- vina-
bönd voru svo sterk að þau voru
nánast óslítanleg.
Hvað sem þeim vangaveltum
leið bar leit lögreglu engan ár-
angur og þegar rökkva tók var fólk
sammála um það eitt að Denise
væri horfin og án nokkurs vafa í
mikilli hættu.
En þessi dagur var aðeins sá
fyrsti og dagarnir urðu að vikum,
vikurnar að mánuðum og jafn-
vel þeir bjartsýnustu gáfu upp alla
von um að hnátan kæmi í leitirnar.
Biðlað til mannræningja
Eðli málsins samkvæmt velti fólk
vöngum um hvarf Denise og fór
ekki hjá því að Cosa Nostra, mafí-
an á Sikiley, væri nefnd til sögunn-
ar enda kastaði hún skugga sínum
víða í sikileysku samfélagi.
Huggunarorðum rigndi yfir
Pipitone-hjónin og þau komu
fram í sjónvarpi, tárvot og biðl-
uðu til þeirra, eða þess, sem bar
ábyrgð á hvarfi dóttur þeirra að
skila henni, fara ekki illa með hana
eða í það minnsta fá henni í hend-
ur leikfang sem hún gæti huggað
sig við.
Prísund í kjallara
Lögreglan fékk fjölda ábendinga
um að Denise hefði sést hér og þar,
nánast alls staðar á Ítalíu, og fylgdi
hverri vísbendingu eftir. Eftir hálft
ár var lögreglan orðin vonlítil um
að Denise fyndist á lífi, enda hafði
reynslan sýnt að líkur á slíku væru
hverfandi eftir tvo sólarhringa frá
hvarfi.
Það sem enginn vissi þá var að
Denise var á lífi og yrði það enn
um sinn. Það sem meira var, var að
Denise var í aðeins um hundrað
metra fjarlægð frá heimili sínu við
götuna Via La Bruna, í glæsilegri
villu. Ekki er þó öll sagan sögð
því Denise var haldið fanginni í
kjallara villunnar.
Í lyfjamóki
Segir sagan að fjölskyldan í vill-
unni hafi safnast saman við skjá-
inn í hvert skipti sem foreldrar
Denise birtust þar til að biðja
dóttur sinni griða. Hver veit nema
sú fjölskylda hafi þá leitt hugann
að litlu stúlkunni sem dó, hægt og
rólega, í kjallaranum.
Síðar kom í ljós að hár Denise
hafði verið litað þannig að erfiðara
yrði að þekkja hana ef svo ólíklega
vildi til að hún slyppi. Henni var
haldið sljórri og rænulítilli með
því að setja lyf í fæðu hennar. Den-
ise litla var að mestu leyti sofandi í
prísund sinni og þær stundir sem
hún var vakandi sá hún ekki lif-
andi sálu.
6 mánuðir voru liðnir af meðgöngu bandarísku konunnar Nadiyuh Venable þegar hún lét til skarar
skríða gegn keppinaut sínum um ástir
kærasta síns. Keppinauturinn var Sha-Ron
Moens, barnsmóðir kærastans. Hann hafði
ákveðið að taka saman við Sha-Ron aftur.
Þann 15. maí, 2010, hittust þær, Nadiyah og
Sha-Ron, og lauk samskiptum þeirra með
því að sú fyrrnefnda skvetti bleikiefni í augu
þeirrar síðarnefndu og stakk hana síðan 30
sinnum með hníf. Þetta gerði Nadiyah fyrir
framan þriggja og sex ára syni Sha-Ron.
Nadiyah fékk 55 ára fangelsisdóm fyrir
vikið.SAKAMÁL
SAKAMÁL
RÁIN
Hafnargata 19a
Keflavík
S. 421 4601
FERSK OG FALLEG
ÞJÓNUSTAR
ÞIG Í MAT OG
DRYKK
DAUÐI DENISE
n Fortíð Pieru varð henni dýrkeypt n Dóttir hennar greiddi gjaldið„Settu hana í kjall-
arann,“ sagði hún
við frænku sína: „Nú
launum við lambið gráa,
tíkinni sem fæddi hana í
heiminn.“
Fékk sam-
viskubit
Giuseppe
Dassaro
gat ekki
lifað með
vitneskju
sinni og
verknaði.