Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Side 41
4120. júlí 2018 SAKAMÁL
Svartur sauður
Hver var síðan ástæðan fyrir
grimmilegum örlögum Denise?
Hana mátti rekja þónokkuð mörg
ár aftur í tímann, til hinnar sikil
eysku Pulizzifjölskyldu sem var
valdamikil í þorpinu Mazara del
Vallo. Þrátt fyrir allt og allt naut
fjölskyldan virðingar fyrir heilindi
meðlima hennar, en innan hennar
var þó einn svartur sauður. Það var
Danielo nokkur, alræmdur flagari
sem virtist, þrátt fyrir að vera
tveggja barna kvæntur faðir, hafa
það eina markmið að fleka allar
konur í þorpinu og víðar.
Skilnaður í Pulizzi-fjölskyldunni
Það var á allra vitorði að Danielo
átti alla sína hjúskapartíð hjákon
ur og svo fór á endanum að eigin
kona hans fékk sig fullsadda og hið
óhugsanlega gerðist; hún skildi
við hann. Þvílíkt og annað eins
hafði aldrei gerst innan vébanda
Pulizziættarinnar.
Ein hjákvenna Danielos var
Piera, móðir Denise, sem þá var
laus og liðug, eins og sagt er.
Fyrir einhverra hluta sakir lagði
Pulizzifjölskyldan sérstaklega
fæð á Piera, sem að þeirra mati
hafði kastað rýrð á virðingu fjöl
skyldunnar. Einkum lagðist mál
ið allt sérstaklega þungt á dóttur
Danielos, Jessicu, sem magnvana
og reið hafði fylgst með þróun
mála, þá á unglingsaldri.
Hleypur á snærið hjá Jessicu
Með tímanum fékk Danielo leiða
á Pieru og leitaði á önnur mið og
Piera varð ástfangin af Toni Tipito
ne. Þau gengu í hjónaband og
eignuðust Denise árið 2000.
Þann 1. september, 2004, þegar
kaupmenn voru að ganga frá
mörkuðum sínum í Mazara del
Vallo, hljóp á snærið hjá Jessicu,
sem þá var orðin 19 ára. Álengd
ar sá hún Denise litlu, greip hana
í snarhasti og rauk með hana að
heimili frænku sinnar. „Settu hana
í kjallarann,“ sagði hún við frænku
sína: „Nú launum við lambið gráa,
tíkinni sem fæddi hana í heiminn.“
Hægur dauðdagi
Eins undarlegt og það kann að
virðast virtist enginn úr Pulizzi
fjölskyldunni andsnúinn þessum
gjörningi. Denise var fleygt niður
í kjallarann og skellt í lás. Hægur
dauðdagi yrði verðið sem stúlkan
yrði greiða fyrir gjörðir móður
sinnar.
Á meðan leitað var dyrum og
dyngjum að Denise veslaðist hún
upp, of magnvana vegna lyfjagjaf
ar til að gráta og lengstum í lyfja
móki. Eftir eins og hálfs árs prís
und í dimmum kjallaranum dó
Denise eftir að hafa fengið of stór
an lyfjaskammt með matnum.
Gamall vinur til bjargar
„Hvað er nú til ráða,“ spurði
frænka Jessicu. Enginn átti svar
við þeirri spurningu og horuðu
líki Denise var komið fyrir í frysti.
Kallað var til fjölskyldufundar og
einhver hafði á orði að gömlum
fjölskylduvini, Giuseppe Dassaro,
hefði nýlega verið sleppt úr fang
elsi: „Fáum hann til að hjálpa okk
ur.“
Giuseppe hafði 20 árum fyrr
verið fengið fangelsisdóm fyrir
morð og nýlega fengið reynslu
lausn. Málið var útskýrt fyrir hon
um og honum lofuð umbun sem
hann gat ekki hafnað.
Sektarkennd og svefnleysi
Giuseppe setti líkið í farangur
geymslu bíls síns, en meira að
segja hann þurfti að velta fyrir
sér þeim möguleikum sem voru í
stöðunni. Því fékk hann leyfi til að
geyma líkið í kæliherbergi hjá vini
sínum sem var slátrari.
Næsta dag leigði Giuseppe bát
og sigldi út á Miðjarðarhafið með
lík Denise í farteskinu og fékk hún
vota gröf.
Þarna hefði málinu senni
lega lokið ef sjáldgæft samvisku
bit hefði ekki gert vart við sig hjá
Giuseppe. Sektarkenndin svipti
hann svefni og að endingu fór
hann til lögreglunnar og sagði alla
sólarsöguna.
Við rannsókn málsins þaðan í
frá vaknaði spurning sem senni
lega verður aldrei svarað; var Den
ise í raun dóttir Danielos? n geirsgötu 8 / s. 553 1500
Sumartilboð
Sægreifans
Humarsúpa, brauð &
ískaldur gull á 2.000 kr
22. maí, 2009, fékk Norð-maðurinn Varg Vikernes, einnig nefndur Greifinn,
reynslulausn. Hann var dæmdur til 21
árs fangelsisvistar árið 1994 eftir að
hafa verið sakfelldur fyrir að hafa myrt
Øystein Aarseth í ágúst árið 1993. Øystein
og Varg höfðu spilað í sömu hljómsveit,
Mayhem, sem spilaði svartmálmstónlist.
Varg, var þekktur fyrir hægriöfgaskoðanir
sínar, hafði árið 1992 sagt eld að nokkrum
kirkjum í Noregi, þar á meðal stafkirkjunni
í Fantoft, en það er önnur saga. Enn er allt
á huldu um ástæður morðsins, en leiddar
hafa verið að því líkur að valdabarátta
innan hljómsveitarinnar hafi verið orsökin.
DAUÐI DENISE„Denise litla var að
mestu leyti sof-
andi í prísund sinni og
þær stundir sem hún var
vakandi sá hún ekki lif-
andi sálu.
Móðir og dóttir Denise
hvarf af yfirborði
jarðar dag einn í sept-
ember 2004.