Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Page 48
48 LÍFSSTÍLL 20. júlí 2018 Jóhann keyrði aftan á bíl og tognaði á hálsi. Hann fékk 3,7 m.kr. í bætur. Lifðu lífinu - Við sækjum bæturnar. n Samhugur og samstaða er styrkur í sorginni n Minningarsjóður: „Ég á bara eitt líf“ n „Við verðum að læra að lifa með sorginni, hvernig sem við gerum það“ Einar Darri Óskarsson lést á heimili sínu þann 25. maí síðastliðinn aðeins 18 ára gamall. Foreldrar hans, systkin, vinir og stórfjölskylda ákváðu stuttu eftir andlát Einars að halda minningu hans á lofti með stofnun minningarsjóðs, þar sem drifkraftur- inn er kærleikur, samstaða og góðar minningar um ungan dreng sem fór allt of snemma. Ungan dreng sem lést af völdum lyfjaeitrunar vegna misnotkunar á lyfseðilsskyldum lyfjum. Misnotkun á slíkum lyfjum ágerðist á tveimur seinustu vikum lífs hans og gat hann falið það fyrir sínum nánustu og kom andlát hans öllum í opna skjöldu. B laðamaður DV settist niður með föður Einars Darra, Óskari Vídalín, og Anítu Rún, 21 árs, dóttur Óskars og systur Einars Darra, og ræddi við þau um Einar Darra, misnotk- unina á lyfseðilsskyldu lyfjunum, minningarsjóðinn og verkefnin sem eru fram undan og markmið- in sem þau vilja ná. „Við fjölskyldan ákváðum fljót- lega eftir að Einar deyr að stofna minningarsjóð, okkur langaði að halda minningunni um hann á lofti,“ segir Óskar. „Við gerðum okkur ekki grein fyrir hvert það myndi leiða okkur, en við vildum stofna sjóðinn. Við heyrðum líka mikið um andlát ungs fólks og vandamál tengd lyfjum eftir að hann dó, þannig að maður gerir sér grein fyrir hvað þetta er stórt og mikið vandamál, vandamál sem við höfðum enga hugmynd um áður en hann dó. Við feng- um upplýsingar um misnotk- un hans og fikt með lyf í gegnum farsímann hans þegar við skoðuð- um hann. Það kom okkur öllum í opna skjöldu og þar af leiðandi ákváðum við að einbeita okkur að forvörnum og beina athyglinni að unga fólkinu og leggja áherslu á lyfseðilsskyld lyf. Það er eitthvað sem maður hefur ekki heyrt mikið talað um. Síðan kom hugmyndin að armböndunum upp og þau hafa slegið í gegn.“ Minningarsjóðurinn tekur á móti frjálsum framlögum og eru þau meðal annars notuð til að fjármagna armböndin, sem eru kærleiksgjöf frá Minningarsjóði Einars Darra. „Við viljum þannig auðvelda útbreiðslu þeirra og höf- um hingað til ekki leitað eftir nein- um styrkjum frá yfirvöldum,“ seg- ir Óskar. „Við ákváðum að gefa arm- böndin og það er í anda Einars, hann var svo kærleiksríkur og vildi gefa af sér til allra,“ segir Aníta. „Hann fylgir okkur í þessu verkefni finnst okkur,“ bætir Óskar við. „Við ákváðum að vera áberandi, armböndin eru bleik, en bleik- ur var uppáhaldslitur Einars, við keyptum bleikar peysur og erum í þeim og erum mjög áberandi. Við erum búin að kynna verkefnið vel á Facebook-síðu minningarsjóðs- ins: af hverju við erum að gefa armböndin, hvert markmiðið er með þeim og opna umræðuna. Við höfum hringt í ansi marga aðila þar sem við erum að leita að sam- starfi eða öðru og mjög margir vita hver við erum, hafa kíkt á síðuna og fylgst með. Það kemur manni töluvert á óvart,“ segir Óskar. „Við erum líka á Instagram og þar eru ótrúlega margir að setja inn mynd af sér með armband. Mörg sem þakka okkur fyrir að gera þetta, því þau hafa ekki þor- að því sjálf. Það er heldur ekki auð- velt fyrir okkur að koma fram með þessa sögu, en við teljum að Einar vilji að það sé okkar verkefni,“ seg- ir Aníta. „Já, ég held að hann sé mjög stoltur af okkur,“ segir Óskar. Stefnan er næst tekin á Franska daga á Fáskrúðsfirði og Þjóðhátíð í Eyjum þar sem armböndum verð- ur dreift. Einnig er hægt að fá þau á fjölmörgum pósthúsum, þar sem hópurinn annaði ekki eftirspurn í persónulegum skilaboðum eftir armböndum. Minningarsjóðurinn gerði einnig myndband sem þegar þetta er skrifað hefur fengið 160 þúsund áhorf. „Við erum að nota alla miðla, við fáum hugmyndir og bara framkvæmum þær,“ segir Aníta. Heimasíða er í vinnslu og er hugmyndin sú að þar verði nokkur svæði, til dæmis eitt fyrir foreldra þar sem þeir geta farið og fengið viðeigandi fræðslu. „Það er mikil- vægt að foreldrar fái líka fræðslu. Okkur grunaði ekki að hann væri kominn í svona lyf,“ segir Aníta. Bleika hjörðin verður áberandi í Reykjavíkurmaraþoninu Reykjavíkurmaraþonið fer fram á Menningarnótt, þann 18. ágúst næstkomandi, og hefur minn- ingarsjóðurinn stofnað hóp sem heitir Bleika hjörðin. Um 70 manns hafa þegar skráð sig til leiks og má búast við að þeir verði fleiri, enda tæpur mánuður til stefnu. „ Flestir ætla að hlaupa 10 kílómetra, en eldra fólk eins og ömmurnar fara þrjá kílómetra,“ segir Aníta. Allir sem hlaupa fyrir minningarsjóðinn fá bleikan bol og allir styrkir fara inn á sjóðinn. „Við setjum mark- miðið á að ná tveimur milljónum, allur peningurinn fer í forvarnar- verkefni, við erum að vinna að fleiri verkefnum og erum bara rétt að byrja.“ Aðspurður hvort þau séu öll í formi fyrir hlaupið, brosir Óskar og svarar: „Mismiklu, við tökum ein- hverja spretti örugglega.“ Stefnan er þó sett á að vera saman í hlaupinu sem einn hópur, vera áberandi og vekja með því athygli á málefninu. HÁLF TAFLA SKILDI MILLI LÍFS OG DAUÐA EINARS DARRA Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is LJÓSMYNDIR: DV/HANNA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.