Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2018, Blaðsíða 6
6 31. ágúst 2018FRÉTTIR
Loftsteinninn Bennu getur rekist á jörðina
O
SIRIS-Rex, geimfar
bandarísku geimferða-
stofnunarinnar NASA,
er nú í órafjarlægð frá
jörðinni eftir tveggja ára ferða-
lag um himingeiminn. Geimfar-
inu var skotið á loft 8. september
2016. Verkefni geimfarsins er að
rannsaka loftsteininn Bennu, en
hann er einn af þeim loftstein-
um sem vitað er að geti hugsan-
lega rekist á jörðina.
Braut loftsteinsins Bennu
liggur framhjá jörðinni sjötta
hvert ár þegar hann er á hringferð
sinni um sólina. Vísindamenn
telja hugsanlegt að hann lendi í
árekstri við jörðina á tímabilinu
frá 2175 til 2199. Hann er ekki
svo stór að árekstur mundi eyða
öllu lífi á jörðinni en það mun
ekki fara framhjá neinum ef til
þess kemur.
Þann 17. ágúst tók geimfarið
fyrstu myndina af loftsteininum.
Hann er þó ekki mjög greinileg-
ur á henni enda var geimfarið í
2,3 milljóna kílómetra fjarlægð
þegar myndin var tekin. Ferða-
lag geimfarsins í heildina er öllu
lengra eða um 1,8 milljarðar
kílómetra.
Geimfarið á að gera meira
en taka myndir. Áætlað er að
það lendi á Bennu 3. desember
næstkomandi. Þá verða tekin
sýni úr loftsteininum og verða
þau flutt til jarðarinnar til rann-
sóknar. Einnig mun geimfarið
mæla stærð Bennu, hreyfingar
hans og hitastig.
Bennu samanstendur af
óvenjulega miklu kolefni og því
er hægt að fræðast mikið um
hvernig hann og sólkerfið urðu
til. Geimfarið er væntanlegt aft-
ur til jarðar 2023. n
Breska ríkisstjórnin hyggst banna sölu á
orkudrykkjum til barna og ungmenna
B
reska ríkisstjórnin hyggst
banna sölu á orkudrykkj-
um til barna og ung-
menna. Á Bretlandseyjum
drekka tvö af hverjum þremur
börnum og unglingum á aldr-
inum 10 til 17 ára orkudrykki og
segir ríkisstjórnin að henni beri
skylda til að grípa til aðgerða.
Málið er nú í undirbúningsferli
en reiknað er með að sala á orku-
drykkjum verði bönnuð til barna
undir 16 ára eða 18 ára aldri. Ekki
hefur enn verið ákveðið hvort
verður ofan á. Bannið verður
hluti af baráttu ríkisstjórnarinnar
gegn offitu meðal barna.
Það er ekki aðeins sykurinn
í orkudrykkjunum sem veldur
áhyggjum heldur einnig hið
mikla koffínmagn. Þetta veldur
ákveðnum heilsufarsvandamál-
um hjá börnum og ungmennum.
Má þar nefna svefnleysi, maga-
verki, höfuðverki og ofvirkni af
völdum koffíns. Í einni 250 milli-
lítra dós af orkudrykk getur verið
jafn mikið koffín og í þremur dós-
um af hefðbundnum kóladrykk.
Vitað er að tvö af hverjum
þremur börnum á aldrinum
10 til 17 ára drekka orkudrykki
og það gerir fjórðungur barna
á aldrinum 6 til 9 ára. Það ýtir
undir neysluna að sumar tegund-
ir eru seldar á sem svarar til 50 ís-
lenskra króna.
Sky skýrir frá þessu. n
Skelfing í SandgerðiÞetta gerist í litlu bæjarfélagi og það berst að sjálfsögðu hratt út um hverja er að ræða.
Dóttir mín var reglulega í
heimsókn á þessu heimili og
fékk stundum að gista. Það sama
hafa önnur börn gert. Ég fékk
nánast taugaáfall þegar ég fékk
upplýsingar um hvaða fólk væri
um að ræða,“ segir móðir ungrar
stúlku í Sandgerði. Hún segir
að íbúar séu skelfingu lostnir
vegna frétta þess efnis að par í
bænum væri grunað um að hafa
misnotað tvö börn kynferðislega.
Hin meintu brot voru gróf og
ítrekuð. Börnin tengjast parinu
fjölskylduböndum. Samkvæmt
fréttum RÚV hefur parið játað að
hafa brotið gegn öðru barninu.
Um er að ræða karlmann
á sextugsaldri og konu á
fertugsaldri. Þau voru handtekin
þann 11. júlí og úrskurðuð
í gæsluvarðhald. Konunni
var sleppt eftir tveggja vikna
gæsluvarðhald en karlmaðurinn
er enn í haldi lögreglu.
Gæsluvarðhaldsúrskurður hans
var nýlega framlengdur til 18.
september.
Parið fluttist til Sandgerði fyrir
tæpu ári ásamt börnum sínum.
Lítið fór fyrir parinu en börn
þess eignuðust fljótlega vini í
gegnum skólastarfið. „Dóttir
mín vingaðist við dóttur þeirra
og fór síðan að venja komur
sínar á heimili þeirra. Mér finnst
einkennilegt að lögreglan hafi
strax útilokað að þau hafi brotið
á öðrum börnum en sínum
eigin. Ég veit fyrir víst að enginn
hefur haft samband við foreldra
þeirra barna sem vöndu komur
sínar á heimilið. Það eru
rúmar sex vikur síðan þau voru
handtekin og því hefði maður
ætlað að barnaverndaryfirvöld
eða lögregla hefðu átt að kalla
vini eða vinkonur í viðtöl eða
halda foreldrum upplýstum.
Ég veit til þess að foreldrar hafi
sjálfir farið með börn sín í viðtöl
hjá fagaðilum til þess að fá úr því
skorið hvort eitthvað hafi gerst.
Óvissan er virkilega óþægileg,“
segir móðirin. n
„Ég fékk
nánast
taugaáfall þegar
ég fékk upplýs-
ingar um hvaða
fólk væri um að
ræða