Fréttablaðið - 08.12.2018, Page 10

Fréttablaðið - 08.12.2018, Page 10
E N N E M M / S ÍA / N M 9 0 7 4 9 H y u n d a i i2 0 a lm e n n 5 x 2 0 n ó v Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 | www.hyundai.is Nýr og spennandi Hyundai i20. Sýndu skynsemi. Veldu nýjan i20. Við kynnum nýjan Hyundai i20 sem er enn betur útbúinn en eldri gerðir af i20. Nýr i20 er fáanlegur með sjálfvirkri neyðarhemlun, akreinavara og sjálfvirkri hækkun og lækkun aðalljósa. Inrréttingin hefur fengið nýtt og vandaðra yfirbragð, og í nýjum 7" snertiskjá er hægt að nýta sér fullkomnustu margmiðlunartækni á borð við Apple CarPlayTM og Android AutoTM. Verið velkomin að reynsluaka nýjum og glæsilegum Hyundai i20. Verð frá: 2.390.000 kr. OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16 Seðlabanki Íslands mun þurfa að grípa inn í gjaldeyrismarkaðinn til þess að sporna við veikingu krón- unnar þegar aflandskrónur taka að streyma úr landi. Þetta segir forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans. Ríkisstjórnin samþykkti í gær- morgun að leggja fram á Alþingi frumvarp fjármála- og efnahags- ráðherra um breytingar á lögum. Breytingarnar fela í sér að aflands- krónueigendur geti losað aflands- krónueignir sínar að fullu með því að skipta þeim í gjaldeyri á álands- markaði eða eiga þær sem fullgildar álandskrónur þegar um samfellt eignarhald frá því fyrir fjármagns- höft er að ræða. „Þetta eru risatíðindi enda eru aflandskrónurnar síðustu leifar fjármálahrunsins. Það er ljóst að þessar breytingar munu hafa nei- kvæð áhrif á gengi krónunnar ef Seðlabankinn gerir ekki neitt og við sáum að krónan veiktist strax í kjölfar þess að tilkynningin var gefin út,“ segir Daníel Svavarsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, í samtali við Frétta- blaðið. Heildarumfang aflandskróna er um 84 milljarðar króna. Seðla- bankinn hefur gefið út að hann sé vel í stakk búinn til að bregðast við skammtímasveiflum á gjaldeyris- markaði. Þar sem losunin tengist fortíðarvanda en ekki undirliggj- andi efnahagsaðstæðum geti verið meira tilefni til að draga úr áhrifum á gengi krónunnar en ella. „Samkvæmt upplýsingunum sem Seðlabankinn birtir kemur fram að aflandskrónurnar eigi að fara í gegnum gjaldeyrismarkað- inn sem er mjög þunnur. Það þarf ekki mikið til að hreyfa við gengi krónunnar. Ef Seðlabankinn myndi halda að sér höndum á meðan um 80 milljarðar af krónum streyma inn á markaðinn til að kaupa gjald- eyri þá er augljóst að krónan myndi að öðru óbreyttu taka umtalsverða dýfu. Seðlabankinn gefur í skyn að hann muni grípa inn í markaðinn ef miklar sveiflur verða á genginu en lofar engu,“ segir Daníel. Samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans veiktist raungengi krónunnar um fjögur prósent í nóvember og í samanburði við sama mánuð í fyrra nam veikingin 11,9 prósentum. „Það hefði kannski verið betra að flytja þetta frumvarp þegar krónan var í styrkingarfasa en ekki veikingarfasa,“ segir Daníel. Erlendir fjárfestar geti losað stöður Frumvarpið felur einnig í sér breyt- ingar sem eiga að auka sveigjanleika á formi bindingar reiðufjár vegna nýs innstreymis erlends gjaldeyris. Hingað til hefur þurft að uppfylla bindingarskyldu með því að leggja inn á bundinn reikning hjá inn- lánsstofnun en breytingarnar gera mögulegt að uppfylla bindingar- skyldu með endurhverfum við- skiptum með innstæðubréf Seðla- bankans. „Það hefur verið hindrun fyrir suma erlenda fjárfesta að koma með fjármagn til landsins vegna bindi- skyldunnar vegna þess að þeim er óheimilt að fjárfesta ef þeir geta ekki losað fjárfestinguna með skjótum hætti,“ segir Daníel. „Nú er verið að gefa fjárfestum tækifæri til að koma með fjármagn til landsins án þess að eiga kröfu á íslensku bankana og að geta losað stöður sínar áður en bindiskyldutíminn er að fullu útrunninn.“ thorsteinn@frettabladid.is Gengisfall ef Seðlabankinn grípur ekki inn í markaðinn Þórarinn G. Pétursson og Már Guðmundsson. Fréttablaðið/VilhElM Nýjar tölur um rekstur norska flugfélagsins Norwegian hafa valdið fjárfestum vonbrigðum en sætanýting Norwegian hefur ekki verið lægri í meira en fjögur ár. Bréf í norska flugfélaginu lækkuðu um 14,7 prósent í fyrradag eftir að tölurnar voru birtar. Farþegum fjölgaði um 26 pró- sent sem var undir væntingum um 34 prósenta fjölgun, að því er The Times greinir frá. Þá dróst sætanýt- ingin saman, sem er lykilmælikvarði í flugbransanum, niður í 78,8 pró- sent. Bjorn Kos forstjóri reyndi að slá á áhyggjur. „Nokkrar af sumarferðum félagsins hafa verið framlengdar fram í nóvember en það hefur haft áhrif á sætanýtingu, sagði hann. Tap á afleiðusamningnum um olíu átti einnig þátt í því að auka áhyggjur fjárfesta. Nýlegt verð- fall á olíu mun lækka eldsneytis- kostnaðinn sérfræðingar segja að Norwegian myndi tapa verulega á afleiðusamningnum sem félag- ið keypti þegar olíuverð stóð sem hæst. – tfh Vonbrigði með Norwegian Nýtt frumvarp gerir kleift að aflandskrónur streymi úr landi. Ef Seðla- bankinn grípur ekki inn í gjaldeyrismarkaðinn er ljóst að krónan mun veikjast að mati hag- fræðings hjá Lands- bankanum. Segir að frumvarpið hefði hentað betur í styrkingarfasa. tölur Norwegian valda áhyggjum. 8 . d e s e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r d A G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð 0 8 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 2 0 s _ P 1 1 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 A F -9 D 2 0 2 1 A F -9 B E 4 2 1 A F -9 A A 8 2 1 A F -9 9 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 0 s _ 7 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.