Fréttablaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 18
Þýskaland Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hélt í gær sína síðustu ræðu sem formaður Kristilegra demókrata (CDU) eftir átján ára formannstíð. Ræðuna hélt Merkel á landsfundi flokksins þar sem nýr formaður verður valinn. Merkel lætur þó ekki af störfum sem kansl- ari fyrr en að kjörtímabilinu loknu, árið 2021 að öllu óbreyttu. Þá mun hún sigla upp að hlið Helmuts Kohl sem þaulsætnasti kanslari ríkisins. Þrjú bitust um að taka við af Merkel. Annegret Kramp-Karren- bauer bar sigur úr býtum. Hún fékk 45 prósent í fyrri lotu atkvæða- greiðslunnar í gær, vann þá seinni með 51,8 prósentum atkvæða, er rit- ari flokksins, kölluð „Mini-Merkel“ og afar náin kanslaranum. Næstvinsælastur var svo Fried rich Merz, athafnamaður sem var valda- mikill í flokknum um aldamótin en fjarlægðist hann þegar Merkel tók við völdum. Hann þykir íhaldssam- ari og hægrisinnaðri en Merkel og fékk 39,2 prósent í fyrri umferð í gær og 48,2 prósent í þeirri síðari. Heilbrigðisráðherrann Jens Spahn, ein vonarstjarna CDU, íhaldssamur, samkynhneigður og kaþólskur, fékk tæp sextán prósent og datt út í fyrstu umferð. Formaðurinn fráfarandi stiklaði á stóru í fortíð, nútíð og framtíð bæði CDU og Þýskalands í ræðu sinni. Hún minntist þess þegar hún tók við flokknum árið 2000 þegar CDU var í mikilli krísu vegna fjármögn- unarhneykslis. „Okkar CDU er allt annar flokkur en sá sem ég tók við árið 2000. Og það er gott. Við getum ekki haldið áfram að lifa í fortíðinni heldur þurfum við að horfa til framtíðar,“ sagði Merkel en Deutsche Welle sagði að túlka mætti þessi ummæli kanslarans sem skot á Fried rich Merz. Merkel sagði að með því að tryggja samstöðu innan flokksins gætu Kristilegir demókratar haldið sæti sínu sem stærsti flokkur Þýska- lands. Vert er að nefna að flokkurinn mælist í mikilli lægð í könnunum og hefur komið illa út úr ríkiskosning- um að undanförnu. Þá varði hún sitt umdeildasta stefnumál innan flokksins, jákvæða afstöðu til flóttafólks í neyð. Hún sagði Þýskaland hafa svarað „mik- illi mannúðarkrísu“ á réttan hátt en viðurkenndi vissulega að málið hefði valdið miklum illdeilum innan flokksins. Aukinheldur sagði hún að Þýska- land stæði frammi fyrir mörgum erf- iðum málum. Hún nefndi útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, loftslagsbreytingar og almenna samstöðu innan Evrópusambands- ins sem dæmi. „Þetta starf hefur fært mér ómælda gleði. Þetta hefur verið mér sannur heiður. Takk kærlega fyrir,“ sagði Angela Merkel svo að ræðu lokinni undir tíu mínútna stand- andi lófaklappi samflokksmanna sinna. thorgnyr@frettabladid.is Söguleg stund þegar Angela Merkel steig úr formannsstól Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hélt í gær sína síðustu ræðu sem formaður Kristilegra demókrata. Hún mun þó áfram sitja sem kanslari til loka kjörtímabils. Merkel sagði flokkinn hafa breyst mikið í átján ára formannstíð hennar og að næsta formanns biðu erfið verkefni. Annegret Kramp-Karrenbauer tekur við. Frakkland Gulu vestin, mótmæl- endurnir sem hafa undanfarnar helgar safnast saman og mótmælt ríkisstjórn Emmanuels Macron Frakklandsforseta, mæta aftur til leiks í París í dag. Um síðustu helgi breyttust mótmælin í óeirðir. Hundruð voru handtekin, á annað hundrað særðust og mikið eigna- tjón varð. Þótt Macron hafi orðið við upphaflegri kröfu Gulu vestanna, að hætta við skattahækkun á eldsneyti, hefur mótmælunum í dag ekki verið aflýst. Enda snúast þau í auknum mæli um stjórnarhætti Macrons og ríkisstjórnarinnar eins og þeir leggja sig. Mikill viðbúnaður er í höfuðborg- inni vegna mótmælanna. Edouard Philippe forsætisráðherra greindi frá því í gær að um 89.000 lögreglu- þjónar yrðu kallaðir út víðs vegar um Frakkland, þar af 8.000 í París, og að brynvarðir bílar yrðu notaðir í höfuðborginni. Þá hefur öryggis- myndavélum verið komið fyrir. Helstu kennileitum Parísar hefur verið lokað eða þau girt af. Þá hefur lögregla eindregið hvatt eig- endur verslana og veitingastaða við Champs-Elysees til þess að skella í lás. Knattspyrnuleikjum hefur auk- inheldur verið slegið á frest. Christophe Castaner, innan- ríkisráðherra Frakklands, sagði í gær að mótmælin hefðu getið af sér skrímsli. Hann varaði við því að öfgafólk gæti komið sér fyrir innan raða mótmælenda og valdið usla. „Ég hef enga samúð með þeim sem mis- nota örvæntingu þjóðarinnar,“ sagði Castaner við blaðamenn. – þea Mikill viðbúnaður fyrir mótmælin í dag Jemen Hútar, uppreisnarhreyfingin sem á í stríði við ríkisstjórn Abd Rabbuh Mansur al-Hadi, forseta Jemens, pyntar fanga sína. Þetta er fullyrt í umfjöllun AP sem byggir á rannsókn miðilsins í samstarfi við Pulitzer-stofnunina. Alls ræddi AP við 23 einstaklinga sem sögðust annaðhvort hafa sjálfir þurft að þola pyntingar Húta eða séð aðra verða fyrir þeim. Einnig var rætt við skyldmenni pyntaðra fanga, lögmenn, aðgerða- sinna og þrjá löggæslumenn á vegum Hadi-stjórnarinnar sem sögðust hafa séð merki um pyntingar. Samtök kvenkyns skyldmenna fanga Húta hafa á skrá rúmlega 18.000 einstaklinga sem Hútar hafa tekið fasta. Þar af er talið að um þús- und hafi verið pyntaðir í leynilegum fangelsum og að 126 hið minnsta hafi dáið vegna pyntinga Húta frá því þeir tóku yfir höfuðborgina San’a síðla árs 2014. Leiðtogar Húta hafa áður neitað því að þeir hafi beitt pyntingum. Samkvæmt umfjöllun AP vildi eng- inn þeirra svara fyrirspurnum mið- ilsins. Friðarviðræður á milli Húta og Hadi-stjórnarinnar fóru fram í Sví- þjóð í gær. Samkvæmt Reuters lögðu stjórnarliðar til að alþjóðaflugvöll- urinn í Sana, sem Hútar halda, yrði opnaður á ný gegn því að leyfi fengist til að skoða allar þær flugvélar sem fara um flugvöllinn. Á fimmtudag var samþykkt að frelsa þúsundir fanga. Martin Griffiths, sáttasemjari á vegum SÞ, sagði að viðræðurnar byrjuðu vel. – þea Hútar sakaðir um að beita fanga pyntingum Bandaríkin Heather Nauert, upp- lýsingafulltrúi utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna, verður skipuð nýr sendiherra ríkisins hjá Samein- uðu þjóðunum. Frá þessu greindu bandarískir miðlar í gær. Meðal annars Fox News, þar sem Nauert vann áður sem fréttakona. Bloomberg fjallaði ítarlega um Nauert í gær og sagði um óvenjulegt val að ræða. Hún hefði litla reynslu af störfum fyrir hið opinbera og utanríkismálum, var fyrst skipuð í starf á þeim vettvangi í apríl 2017 og þá sem upplýsingafulltrúi. Nauert mun fylla sætið sem Nikki Haley tilkynnti óvænt um í október að hún ætlaði að yfirgefa. Haley hafði gegnt stöðunni frá því Trump tók við embætti og sagðist ekki vera að hætta til þess að fara sjálf í forsetaframboð gegn Trump. Margir höfðu spáð slíku þar sem hún studdi Trump ekki í kosninga- baráttunni 2016. Haley sagðist taka ákvörðunina til þess að hleypa ein- hverjum nýjum að. – þea Nauert tekur við af Haley mJanmar Dómstóll í Mjanmar dæmdi þrjá aðgerðasinna í fang- elsi í gær fyrir að hafa smánað her- inn. Dómurinn þykir til marks um harðnandi aðgerðir stjórnvalda gegn tjáningarfrelsi og stjórnarand- stöðu. Þremenningarnir fengu hálfs árs fangelsisdóm. Mótmælendurnir, Lum Zawng, Nang Pu og Zau Jat, tóku þátt í mót- mælum í Kachin-ríki Mjanmar í apríl þar sem herinn hefur verið að berjast gegn sjálfstæðisher Kachin, samansettum úr hermönnum þjóð- flokka svæðisins. Alls hafa um 6.000 flúið heimili sín vegna átakanna. Doi Bu, lögmaður hinna dæmdu, sagði samkvæmt Reuters að mót- mælendurnir hefðu til að mynda sagt að herinn heimilaði fólki ekki að yfirgefa átakasvæðið og að her- inn hótaði fólki sem væri að hugsa um að flýja. Evrópusambandið fordæmdi dóminn í yfirlýsingu í gær og hvatti stjórnvöld til þess að endurmeta afstöðu sína. „Þessar fréttir eru áhyggjuefni fyrir almenna borgara í Mjanmar. Mótmæli í þágu friðar og fólks sem situr fast á átakasvæði ættu ekki að vera glæpur,“ sagði til að mynda í yfirlýsingunni. – þea Mótmælendur fangelsaðir Landsfundargestir risu á fætur í gær og klöppuðu fyrir Angelu Merkel, fráfarandi formanni. Nordicphotos/AFp Koma upp myndavél til að fylgjast með Gulu vestunum. Nordicphotos/AFp heather Nauert. Nordicphotos/AFp hermenn húta í höfuðborginni san’a í nóvember. Nordicphotos/AFp Þetta starf hefur fært mér ómælda gleði. Þetta hefur verið mér sannur heiður. Takk kærlega fyrir Angela Merkel, kanslari Þýskalands 8 . d e s e m B e r 2 0 1 8 l a U G a r d a G U r18 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 0 8 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 2 0 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 A F -7 0 B 0 2 1 A F -6 F 7 4 2 1 A F -6 E 3 8 2 1 A F -6 C F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 0 s _ 7 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.