Fréttablaðið - 08.12.2018, Qupperneq 28
Hún er mjög opin og staðföst, hún þorir að fara út fyrir „unglingakass-ann“ segir Hjördís Guðmundsdóttir,
móðir hinnar fimmtán ára gömlu,
Elízu Gígju sem ferðaðist nýverið
til Úganda á vegum Sameinuðu
þjóðanna.
„Við vorum uppi í sumarbústað og
mamma minntist á þetta verkefni.
Að það væri verið að leita að unglingi
fæddum 2003 sem væri tilbúinn að
fara út og taka þátt í heimildarþátta-
röð um heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna. Mér fannst þetta spenn-
andi,“ segir Elíza Gígja og segist hafa
ákveðið að sækja um. Hún sendi
inn myndband með kynningu á sér
og svo annað með frásögn frá degi
í lífi sínu. Eftir það var hún boðuð í
viðtal.
„Ég vissi auðvitað strax að hún
væri algjörlega týpa í þetta. En á
sama tíma er það áskorun. Elíza
Gígja er eins og flestir unglingar en
hún er samt mjög sterk og tilbúin að
standa með sjálfri sér,“ segir Hjördís
sem segist hafa hvatt hana áfram til
þess að líta á ferlið sem undirbúning
undir það að fara seinna á ævinni í
atvinnuviðtal.“
„Nokkrum dögum eftir viðtalið
þá fékk mamma símtal um að ég
hefði verið valin. Ég fékk ekki að
vita neitt. Hún sagði pabba og litlu
systur minni fréttirnar. Ég fór á fót-
boltaæfingu. Eftir leikinn þá var
systir mín að keppa á sama velli og ég
var á hliðarlínunni og horfði á hana
með vinkonum mínum. Þær allar
sem sátu með mér vissu þetta. Svo
birtist bara Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra á völlinn og tilkynnti
að ég hefði verið valin til að fara til
Úganda,“ segir Elíza Gígja frá.
Elíza Gígja fékk myndavél og fékk
það verkefni að taka upp myndskeið
úr eigin lífi. „Ég var alltaf með þessa
myndavél og reyndi að taka upp öll
kvöld,“ segir hún.
Hún og mamma hennar ferðuðust
til Úganda í september. „Þetta var
langt ferðalag, það tók rúma þrjátíu
tíma. Við stoppuðum í París. Fórum
þaðan til Úganda og enduðum í
litlum bæ, Muvo,“ segir Elíza Gígja.
Elíza Gígja kynntist stelpu á svip-
uðum aldri og hún sjálf. „Hún heitir
Friður og við fengum að sjá hvernig
lífi hún lifir og heimsóttum skólann
hennar. Hún býr við mikla fátækt,“
segir Hjördís.
„Það sem maður hefur áður séð
á skjánum var nú bara beint fyrir
framan mig. Í þetta þorp var kom-
inn vatnspóstur sem hefur breytt lífi
fólks. Sérstaklega stelpna. Nú tekur
það ekki jafn langan tíma að sækja
vatn þannig að þær komast frekar í
skólann,“ segir Elíza Gígja.
„Svo fórum við til Kampala, sem
er höfuðborgin og þar kynntist ég
annarri stelpu vel. Aðstæður hennar
voru betri en Friðar en á okkar mæli-
kvarða öðruvísi. Hún átti sjónvarp og
rúm og allt sem hún þurfti en þetta
var allt gamalt og lúið,“ segir hún.
„Hennar líf var mjög frábrugðið
mínu. Hún bjó á heimavist og hitti
fjölskyldu sína aðeins á sunnudög-
um. Hún og vinkonur hennar máttu
ekki spila fótbolta í skólanum. Þær
spiluðu í staðinn eins konar net-
bolta. Íþrótt sem er líkari körfu-
bolta,“ segir Elíza Gígja.
„Símar eru líka illa séðir í skól-
anum og á heimavistinni. Ef krakkar
nást með síma á skólalóðinni þá er
hann bara tekinn og mölvaður fyrir
framan þau. Það yrði allt snarvit-
laust ef það væri gert á Íslandi,“ segir
hún.
Út úr „unglingakassanum“
Hjördís og Elíza Gígja, fimmtán ára, sem er er ánægð með ferðalagið til Úganda. Fréttablaðið/StEFán
Með ungu
fólki í Kamp
ala í Úganda.
Hjördís hjálpar til við við að bera vatn í Muvo.
Elíza Gígja Ómars-
dóttir er fimmtán
ára gömul og fór fyrr
í vetur til Úganda
til að varpa ljósi á
heimsmarkmið Sam-
einuðu þjóðanna.
Hún segir að þrátt fyrir boð og
bönn sé líf unglinga í Kampala í
Úganda ekki mjög frábrugðið lífi
íslenskra unglinga.
„Þær stelpur sem ég kynntist í
Kampala hittast líka, fá sér eitthvað
að borða og hanga. En þær fara ekki
að versla, heldur skoða og láta sig
dreyma um hluti. En líf Friðar er
verulega frábrugðið því sem við
eigum að venjast. Hún býr við raun-
verulegan skort og hefur ekki sömu
tækifæri og við.“
kristjanabjorg@frettabladid.is
Meira um ævintýri Elízu í Úganda
á +Plús síðu Fréttablaðsins.
Fréttablaðið +Plús er eingöngu
í Fréttablaðsappinu eða í
PDFútgáfu blaðsins sem er
aðgengileg á frettabladid.is.
+PlÚS
Ljóðasafn Ólafs
Hundrað ár eru
frá fæðingu
Ólafs Jóhanns
Sigurðssonar.
Ljóðasafn hans
er komið út
og allir sem
unna íslenskum
skáldskap þurfa
að eignast það.
Vésteinn Ólafs-
son skrifar ítar-
legan formála.
Mowgli í leikstjórn Andy Serkis
Ævintýrið um Mowgli í leikstjórn Andy Serkis hefur
verið tekið til sýninga á Netflix. Serkis þykir einstaklega
fær um að vekja til lífsins furðurverur á skjánum með
aðstoð tækninnar, eins og sjá mátti í Lord of the Rings
og Planet of the Apes.
Grænkerakrásir Guðrúnar Sóleyjar
Ótal rannsóknir sýna
fram á jákvæð áhrif
af neyslu græn-
metis á heilsuna. Í
nýrri matreiðslubók
fjölmiðlakonunnar
Guðrúnar Sóleyjar
Gestsdóttur er ekki
boðuð meinlæta-
stefna eða megrun
heldur byggir hún á
mannúð. Þar er að
finna fjölda girnilegra
rétta. Við mælum
sérstaklega með
uppskrift að buffaló
blómkálsvængjum.
Ungfrú Ísland
Ný skáldsaga Auðar
Övu fékk nærri fullt
hús í dómi gagnrýn-
anda Fréttablaðsins.
„Frábær skáldsaga,
full af dýpt og ríkum
mannskilningi. Verk
sem mun lifa.“
Home Alone í Bíói Paradís
Það er alveg
upplagt
að keyra
jólastemn-
inguna í
gang með
því að skella
sér með
börnunum
á jóla-
partísýningu á hinni sígildu
gamanmynd Home Alone í
Bíói Paradís í dag. Fáar myndir
eru jafn vel til þess fallnar að
vekja jólabarnið í hjartanu.
Tvær sýningar eru í boði,
klukkan 15 og 20.
8 . d e s e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r d A G U r28 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
helgin
0
8
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
A
F
-9
3
4
0
2
1
A
F
-9
2
0
4
2
1
A
F
-9
0
C
8
2
1
A
F
-8
F
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
0
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K