Fréttablaðið - 08.12.2018, Side 67
Mennta- og menningarmálaráðuneyti
Styrkir úr Sprotasjóði
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir
umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn-
og framhaldsskóla vegna skólaársins 2019-2020.
Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar
í skólastarfi.
Í 4 gr. reglugerðar nr. 242/2009 um Sprotasjóð leik-,
grunn- og framhaldsskóla segir:
Leikskólastjórar, skólastjórar eða skólameistarar
fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara
geta sent inn umsókn. Aðrir aðilar en skólar geta sótt
um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim til
fellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn.
Áherslusvið sjóðsins verða að þessu sinni:
• Efling íslenskrar tungu - verkefnin styrki tungu-
málið, efli orðaforða og hugtakaskilning.
• Lærdómssamfélag í samvinnu innan eða milli kerfa
- verkefnin fylgi eftir úttekt á Menntun fyrir alla.
• Færni til framtíðar - verkefnin efli samskiptahæfni,
skapandi hugsun, list-, verk- og tækniþekkingu.
Umsóknir sem falla utan ofannefndra áherslusviða fá
sérstaka umfjöllun í ljósi áhrifa verkefna á menntun
og skólastarf. Við mat á umsóknum verður skoðað
hvernig verkefnin falla að hlutverki Sprotasjóðs
ásamt því að markmið verkefnis séu skýrt fram sett,
að verkefnisstjórn sé vel skilgreind, að raunhæfar
kostnaðar-, verk- og tímaáætlanir séu lagðar fram og
að framlag samstarfsaðila sé tryggt og vel skilgreint.
Stjórn Sprotasjóðs gengur út frá að í þeim verkefnum
sem hljóti styrk beinist áhersla að þátttöku nemenda.
Samstarf milli skóla og stofnana styrkir umsóknir. Til
greina kemur að styrkja verkefni til tveggja ára. Þeim
umsóknum skal fylgja fjárhagsáætlun fyrir hvort
skólaár.
Fyrir skólaárið 2019 - 2020 verða til úthlutunar allt að
59 milljónum kr.
Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um styrki
skulu vera á rafrænu formi. Sækja þarf um aðgang
að umsóknavef Sprotasjóðs, www.sprotasjodur.is.
Þar má einnig finna frekari upplýsingar um áherslu-
svið og úthlutunarreglur sjóðsins. Nánari upplýsingar
um Sprotasjóð veitir Sigrún Vésteinsdóttir hjá Rann-
sókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri í
síma 460-8904 eða í tölvupósti á sv@unak.is.
Tekið verður á móti umsóknum frá 10. desember til
1. febrúar 2019.
Innkaupadeild
ÚTBOÐ
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Víkingur - Gervigrasvöllur, keppnislýsing,
útboð nr. 14375.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Verslunar eða skrifstofuhúsnæði til leigu
Til leigu gott skrifstofu / verslunarhúsnæði á jarðhæð á
frábærum rótgrónum stað við Bæjarhraun 24, örstutt frá
Fjarðarkaup og helsta verslunar og atvinnuhúsakjarna
bæjarins, mikið auglýsingagildi og góð aðkoma samtalls
263 fm, möguleiki að fá 200 fm sambyggt lagerhúsnæði til
viðbótar. Uppl. í síma 893 3347.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti
Tilnefning í Æskulýðsráð
Mennta- og menningarmálaráðuneyti leitar hér með
eftir tilnefningum æskulýðsfélaga og æskulýðs-
samtaka um fulltrúa í Æskulýðsráð fyrir tímabilið
2019-2020 sbr. reglugerð nr. 1088/2007 um skipan
fulltrúa í Æskulýðsráð. Tilnefna skal konu og karl til
setu í Æskulýðsráði til tveggja ára. Í til nefningunni
skal koma fram vilji tilnefndra einstaklinga til að
taka að sér setu í Æskulýðsráði. Með tilnefningu
skal fylgja yfirlit yfir reynslu og þekkingu til nefndra
á starfi æskulýðsfélaga eða æskulýðs samtaka og
yfirlýsing um að viðkomandi uppfylli ákvæði 10. gr.
æskulýðslaga nr. 70/2007.
Ráðuneytið hefur hafið undirbúning að stefnu í
æskulýðsmálum sem verður unnin í samstarfi við
Æskulýðsráð á tímabilinu.
Tilnefningar þurfa að berast mennta- og menningar-
málaráðuneyti Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík, bréf-
lega í síðasta lagi miðvikudaginn 19. desember 2018.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt að vinna
deiliskipulag fyrir Vesturlandsveg innan
Mosfellsbæjar, frá Skarhólabraut að Reykjavegi.
Mosfellsbær auglýsir hér með til kynningar
vinnslutillögu deiliskipulags Vesturlandsvegar.
Vinnslutillaga og drög að umhverfisskýrslu eru kynnt
fyrir íbúum og öðrum hagsmunaaðilum áður en
bæjarstjórn tekur ákvörðun um að auglýsa tillögu að
nýju deiliskipulagi.
Vinnslutillagan nær til Vesturlandsvegar og veg-
helgunarsvæðis frá gatnamótum við Skarhólabraut
að gatnamótum við Reykjaveg. Lengd skipulags-
svæðis er tæplega 2,5 km.
Megin viðfangsefni vinnslutillögunnar er
afmörkun nýrrar legu Vesturlandsvegar með tvær
akreinar í hvora átt með miðdeili og núverandi
tengingar. Einnig afmörkun undirganga og brúa,
veghelgunarsvæði fyrir möguleg mislæg
gatnamót og göngu- og hjólastíga með fram
Vesturlandsvegi.
Skipulagsgögn:
• Greinagerð vinnslutillögu
• Uppdráttur vinnslutillögu
Vinnslutillaga og drög að umhverfisskýrslu munu
liggja frammi í þjónustuveri Mosfellsbæjar á 2. hæð
Þverholts 2, 270 Mosfellsbæ og á heimasíðu bæjarins
á slóðinni:
mosfellsbaer.is/skipulagsauglysingar
Athugasemdir og ábendingar varðandi vinnslutillögu
skulu berast skriflega og má skila þeim til
skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270
Mosfellsbæ, eða í tölvupósti til undirritaðs. Æskilegt er
að þær berist fyrir 22. desember 2018.
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
olafurm@mos.is
Pverholti 2 • 270 Mosfellsbaar
Sfmi 525 6700 • mos@mos.is • www.mos.is
Kynning á vinnslutillögu:
Deiliskipulag Vesturlandsvegar, frá
Skarhólabraut að Reykjavegi, í Mosfellsbæ.
_______________________________________________
Vesturás 28
110 REYKJAVÍK
Raðhús innarlega í rólegri botnlangagötu
með sex svefnherbergjum og möguleika
á aukaíbúð. Innbyggður 20,4 fm bílskúr,
timburverönd og stórt bílaplan með
snjóbræðslu. Nýlega málað að utan og
ástand eignar almennt gott.
STÆRÐ: 235,4 fm
RAÐHÚS HERB: 9
79.900.000
OPIÐ HÚS 8. des 14:00 – 14:30
Heyrumst
Stefán Jarl Martin
Löggiltur leigumiðlari
Sölufulltrúi
892 9966
stefan@fastlind.is
Heyrumst
Helga Pálsdóttir
Löggiltur fasteignasali
822 2123
helga@fastlind.is
TIL LEIGU GRANDINN EYJARSLÓÐ 9
Upplýsingar gefur Ólafur í síma 892 5064
130m2 efri hæð sem
er salur án milliveggja.
Mjög gott útsýni til
norðausturs.
135m2 neðri hæð
sem er salur án
milliveggja.
Frábært útsýni til
norðausturs.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 21 L AU G A R DAG U R 8 . D E S E M B E R 2 0 1 8
0
8
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
A
F
-F
A
F
0
2
1
A
F
-F
9
B
4
2
1
A
F
-F
8
7
8
2
1
A
F
-F
7
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
0
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K