Fréttablaðið - 08.12.2018, Síða 75

Fréttablaðið - 08.12.2018, Síða 75
Þorbjörg Hafsteinsdóttir nær­ ingarþerapisti notar Probi Mage LP299V® mjólkursýrugerla fyrir sig og sína og hefur fjölmargar góðar reynslusögur frá fólki sem hefur notað vöruna. „Hér höfum við vöru sem gerðar hafa verið fjölmargar rannsóknir á. Rannsóknirnar spanna rúma tvo áratugi og sýna fram á gagnsemi gegn iðraólgu auk þess að styrkja varnir líkamans. Iðraólga getur verið virkilega hvim­ leitt vandamál og leggst misjafnlega á fólk. Sumir eiga það til að stíflast og þjást af hægðatregðu til lengri eða skemmri tíma á meðan aðrir upplifa lausar hægðir og jafnvel niðurgang og ólgu sem stundum gerir ekki boð á undan sér. Oftar en ekki fylgja alls kyns önnur ónot með sem sum okkar hafa átt við að stríða í áraraðir og líta jafnvel á sem eðlilegt ástand. Vindgangur er enn ein birtingarmynd þess að kannski sé ekki allt eins og best verður á kosið í meltingarveginum okkar og getur verið til marks um ójafn­ vægi í þarmaflórunni en þá kemur þessi magnaði mjólkursýrugerill að góðum notum,“ segir Þorbjörg. „Sjálf hef ég ekki fundið betri vöru en Probi Mage LP299V® í öll þau ár sem ég hef starfað sem næringarþerapisti, hvorki hér heima né erlendis, enda þekki ég vel hversu mikilvægt er að hlúa að meltingunni og þarma flórunni fyrir heilsuna. Probi Mage LP299V® hefur sannreynda virkni sem ég ráðlegg jafnt karlmönnum og konum sem vilja bæta meltinguna og styrkja ónæmiskerfið að taka þá. Ég nefni karlmennina sérstaklega því þeir eru ófáir sem ég þekki til sem hafa notað Probi Mage hylkin og hreinlega geta ekki án þeirra verið. Fjölmargar konur sem til mín leita lýsa einnig virkilega jákvæðri reynslu af notkun Probi Mage LP299V® og líðanin er allt önnur og betri.“ Probi Mage LP299V® er fæðu­ bótar efni og er eina varan á Íslandi sem inniheldur mjólkursýrugerilinn Lactobacillus plantarum LP299v (LP299V®). Varan hefur verið sölu­ hæst í sínum flokki í Svíþjóð og fengið frábærar móttökur á Íslandi. Neysla fæðubótarefna kemur þó ekki í stað fjölbreyttrar fæðu. Hippókrates sagði á sínum tíma: „Allir sjúkdómar hefjast í meltingarvegi,“ og þó svo hann hafi ef til vill ekki fengið þann hljómgrunn sem hann vonaðist eftir þá er margt sem bendir til þess að hann hafi haft á réttu að standa hvað þetta varðar, að einhverju leyti í það minnsta. Þeir sem eiga við tilfall­ andi eða langvarandi óþægindi tengd meltingu að etja þekkja vel hversu mikil áhrif það getur haft á daglegt líf og að sama skapi hversu mikill léttir það er þegar komist er fyrir slíkt ástand. Hvað er mjólkursýrugerill? FAO/WHO (Alþjóðaheilbrigðis­ stofnunin) samþykkti árið 2002 að skilgreina mjólkursýrugerla (e. probiotics) sem „lifandi vist­ kerfi sem, miðað við að gefið sé í nægjanlegu magni, hefur heilsu­ bætandi áhrif á þann sem neytir“. Vistkerfi líkamans er bæði flókið og fjölbreytilegt og þarma­ flóran magnað fyrirbæri. Lacto­ bacillus gerlategundin tilheyrir hópi mjólkursýrugerla sem eiga það sameiginlegt að geta fram­ leitt mjólkursýru. Gerlarnir eru mikilvægur hluti af örlífverum þarmanna en eru aftur á móti ekki allir eins. Til að mynda bindast þeir ólíkum viðtökum í þörm­ unum sem leiðir til ólíkra áhrifa á ónæmiskerfið, næringarupptöku, þarmaflóruna o.s.frv. og virkni þeirra getur verið býsna ólík, jafn­ vel innan tegundarinnar. Lacto­ bacillus plantarum 299v tilheyrir þessum gerlahópi og býr yfir einkar áhugaverðum eiginleikum. Hann hefur sýnt sig virka vel gegn iðraólgu og hefur jákvæð áhrif á varnir líkamans. Merkileg uppgötvun Um miðjan áttunda áratuginn komust vísindamenn við Háskóla­ sjúkrahúsið í Lundi í Svíþjóð að því að algengt var að finna mjólkursýrugerilinn Lactobacillus plant­ arum í heilbrigðum þörmum, en hann var mun sjaldnar að finna í sjúkum þörmum. Þetta kallaði á frekari rannsóknir og leiddi til uppgötvunar á mjólkursýrugerl­ inum Lactobacillus plantarum 299v, sem sýndi sig vera sérlega efnilegur sem hugsan­ legt meðferðarform þar sem hann var einkar harðger og lifði af bæði gall­ og magasýrur og ekki síst vegna þess að það var að finna í meltingar­ veginum öllum, allt frá munnholi og niður í ristil. Þessar merku niðurstöður leiddu til stofnunar fyrirtækis­ ins Probi AB í Svíþjóð árið 1991. Eru allir mjólkur- sýrugerlar eins? Mjólkursýrugerlar eru eins ólíkir og þeir eru margir og með mis­ munandi virkni. Til að undirstrika fjölbreytileika og ólíka virkni mis­ munandi mjólkursýrugerla hefur stundum verið gripið til sam­ líkingarinnar um að Labrador­ hundur og Chihuahua­hundur séu jú báðir af hundakyni en þó alls ekki eins, ekki frekar en að reiðhjól og Rolls Royce séu eins, þó sannarlega megi kalla hvort tveggja farartæki. Vöndum valið! Það er ráð að vanda valið þegar velja á mjólkursýrugerla og kynna sér hverjir eiginleikar þeirra eru og hvort eða hvernig hefur verið sýnt fram á virkni þeirra. Þá er sérstaklega mikilvægt að velja mjólkursýrugerla sem vitað er að lifa af ferðalagið í gegnum meltingarveginn eins og á við um mólkursýrugerillinn Lactobacillus plantarum LP299v (LP299V®) í Probi Mage LP299V®. Og það allra mikilvægasta: Einnig skyldi skoða hvort vara sem inniheldur tiltekna gerla innihaldi þá í því magni sem gagnast neytandanum og tryggir tilætlaða virkni. Hvert hylki af Probi Mage LP299V® inniheldur að minnsta kosti 10 milljarða gerla (CFU) á fyrningardagsetn­ ingu og dagskammtur er 1 hylki á dag. Þetta er sami skammtur (sem er lykilatriði) og hefur meðal annars sýnt sig í fjölmörgum rannsóknum hafa sérstaklega góða eiginleika gegn því sem stundum er nefnt iðraólga einu orði. Með iðraólgu er aðallega átt við einkenni eins og: • uppþembu • vindgang • niðurgang • hægðatregðu. Fæst í apótekum, heilsuverslunum, Fjarðarkaup, Hagkaup og Mela- búðinni. Hvers vegna eru allir að tala um þarmaflóruna? Áhugi og þekking vísindasamfélagsins á þarmaflórunni hefur aukist mjög frá því sem áður var, ekki síst vegna þess að sýnt þykir að heilbrigði þarmaflórunnar getur skipt miklu máli fyrir heilsu fólks, jafnt líkamlega sem andlega. Þorbjörg Hafsteinsdóttir mælir með Probi Mage LP299V®. Þorbjörg Hafsteinsdóttir mælir með Probi Mage LP299V® mjólkursýrugerlum fyrir fólk á öllum aldri. Iðraólga er ekki eðlilegt ástand til langs tíma FÓLK KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 8 . D E S E M B E R 2 0 1 8 0 8 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 2 0 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 A F -C 4 A 0 2 1 A F -C 3 6 4 2 1 A F -C 2 2 8 2 1 A F -C 0 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 2 0 s _ 7 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.