Fréttablaðið - 12.01.2019, Blaðsíða 55
kaffitar.is
Við leitum að áhugasömum og lífsglöðum
kaffiunnanda í starf verslunarstjóra á kaffihús
okkar í Kringlunni. Verslunarstjóri er ábyrgur
fyrir öllum daglegum rekstri kaffihússins og
starfsmönnum þess.
Leitað er að einstaklingi með brennandi
áhuga á kaffi, er sjálfstæður í vinnubrögðum,
hugmyndaríkur og lipur í samskiptum.
Sambærileg starfsreynsla er skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 25. janúar 2019.
Vinsamlegast leggið inn umsókn og ferilskrá
á heimasíðu Kaffitárs www.kaffitar.is - störf
í boði. Frekari upplýsingar veitir Marta Rut,
marta@kaffitar.is.
Verslunarstjóri
Kringlunni
Ístak - Bugðufljóti 19 - 270 Mosfellsbær - Sími 530 2700 - www.istak.is
Starf á rafmagnsverkstæði
Ístak óskar eftir að ráða starfsmann á rafmagnsverkstæði
Ístaks við Bugðufljót í Mosfellsbæ. Helstu verkefni snúa að
viðgerðum á rafmagnsverkfærum.
Hæfniskröfur:
• Viðeigandi menntun, t.d. í rafvirkjun eða rafvélavirkjun
• Reynsla af viðgerðum á ýmiss konar rafmagnsverkfærum
• Góð samskiptahæfni og geta til að sýna frumkvæði
Vélvirki / bifvélavirki
Ístak óskar eftir að ráða starfsmann til að sinna viðgerðum á
vinnuvélum á vel búnu verkstæði Ístaks við Bugðufljót í
Mosfellsbæ.
Hæfniskröfur:
• Sveinspróf í vélvirkjun eða bifvélavirkjun
• Reynsla af vinnuvélaviðgerðum
• Geta til að vinna sjálfstætt og hæfni til að vinna í teymi
• Meirapróf og/eða vinnuvélaréttindi eru kostur
Sumarstörf 2019
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um sumarstörf fyrir sumarið
2019. Við leitum að metnaðarfullu sumarstarfsfólki sem vill
öðlast reynslu úr byggingariðnaði. Eftirfarandi eru sérstaklega
hvattir til að sækja um:
• Nemar í verkfræði eða tæknifræði
• Iðnnemar
Ístak býður starfsfólki upp á:
• Áhugaverð og síbreytileg verkefni
• Samkeppnishæf laun
• Góðan aðbúnað á vinnustað og öruggt vinnuumhverfi
• Reynslumikla og trausta stjórnendur
Ístak er leiðandi fyrirtæki á íslenskum verktakamarkaði. Ístak var stofnað árið 1970 og
annast ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stóriðjuverk, jarðvinnuverk, hafnarframkvæmdir,
vega- og brúagerð auk flugvalla, enn fremur húsbyggingar fyrir opinberar stofnanir, sveitar-
félög, fyrirtæki og einstaklinga. Ístak er dótturfélag Aarsleff Group sem er leiðandi verktaki
með yfir 4.500 starfsmenn í ýmsum heimsálfum.
VILTU STARFA HJÁ FRAMSÆKNU VERKTAKAFYRIRTÆKI?
Sótt er um störfin á https://www.istak.is/starfsumsokn/ - Nánari upplýsingar veitir mannauðsdeild Ístaks í síma 5302700.
Á Seltjarnarnesi búa um 4500 manns. Lögð er áhersla á að tryggja íbúum góða alhliða þjónustu.
Félagsþjónusta Seltjarnarnesbæjar óskar eftir að ráða
yfirþroskaþjálfa eða deildarstjóra til starfa á Sæbraut sem er
íbúðakjarni fyrir fatlað fólk á aldrinum 25 til 40 ára
Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi og er vaktavinna hluti af vinnuskipulagi.
Verkefni og ábyrgð:
• Stjórnun og umsjón með framkvæmd þjónustu
• Samstarf við forstöðumann um faglega ábyrgð
• Ráðgjöf til starfsmanna ásamt forstöðumanni
• Þátttaka í þverfaglegu samstarfi
• Samstarf og samráð við íbúa og aðstandendur
• Þátttaka í þróunarstarfi og uppbyggingu þjónustu
Menntun og hæfniskröfur:
• Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði félags- heilbrigðis- og/eða menntavísinda
• Þekking og reynsla af þjónustu við fólk með flóknar fatlanir og hegðunarfrávik
• Stjórnunarreynsla æskileg en ekki skilyrði
• Samviskusemi, gagnrýnin hugsun og frumkvæði
• Góð samskiptafærni, skipulagsfærni og sveigjanleiki
• Geta til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga.
Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Seltjarnarnesbæ þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga af sakaskrá.
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf.
Nánari upplýsingar um störfin gefur Aníta Ösp Gunnlaugsdóttir forstöðumaður í síma 867 5178
anita.o.gunnlaugsdottir@seltjarnarnes.is eða Ásrún Jónsdóttir deildarstjóri stuðningsþjónustu
í síma 869 0775 asrun.jonsdottir@seltjarnarnes.is
Umsóknarfrestur er til 27. janúar næstkomandi.
Sótt er um störfin á vef Seltjarnarnesbæjar,
www.seltjarnarnes.is - Störf í boði.
Yfirþroskaþjálfi eða deildarstjóri óskast
seltjarnarnes.is
1
2
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
0
2
-7
3
B
0
2
2
0
2
-7
2
7
4
2
2
0
2
-7
1
3
8
2
2
0
2
-6
F
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K