Fréttablaðið - 12.01.2019, Blaðsíða 22
Lausn á myndagátu Fréttablaðsins
Hamborgarhryggur er enn vinsælastur á jólaborði landans þó grænkerum fjölgi
skart – borðin svigna undan góðum mat – en það er ekki svo hjá öllum hér.
Kristmundur Bjarna-son á Sjávarborg varð hundrað ára þann 10. janúar síðastliðinn. Af því tilefni gefur Sögufélag Skagfirð-
inga út bernskuminningar hans, Í
barnsminni.
Útgáfu hátíð verður hald in í
Safna hús inu á Sauðár króki í dag kl.
16. Kristmundur dvelur á Dvalar-
heimilinu á Sauðárkróki og verður
ekki viðstaddur útgáfuhófið.
Í bókinni dregur Kristmundur
upp lifandi myndir af uppvexti
sínum. Sr. Tryggvi H. Kvaran, prestur
á Mælifelli, og Anna Gr. Kvaran tóku
hann barnungan í fóstur og ólu upp
með dætrum sínum tveimur, Hjör-
dísi og Jónínu.
Kristmundur skrifar
um togstreituna sem
ríkti í samskiptum hans
við foreldra sína og
rifjar upp uppátæki og
örlagasögur. Frásögnin
varpar ljósi á uppvöxt
ungmenna á þessum
tíma og um hundrað
myndir prýða bókina.
Það er óvanalegt að
hægt sé að myndskreyta
bók um þennan tíma
svo vel. Margar ljós-
myndanna voru teknar
af S.L. Tuxen, dönskum
ví s i n d a m a n n i s e m
dvaldist á Mælifelli í
nokkrum rannsóknar-
ferðum en hann og
Kristmundur urðu vinir.
Sölvi Sveinsson segir
Kristmund skrifa af hlýju í garð
þeirra sem ólu hann upp og ljós-
myndirnar sýni sveitarbraginn.
„Margar ljósmyndanna í bókinni
tók Tuxen af því sem honum þótti
sérstakt. Af þessum gömlu bæjum,
af fólkinu og vinnubrögðum þess.
Kristmundur átti þessar myndir og
segir í lok bókarinnar frá kynnum
sínum af Tuxen,“ segir Sölvi.
„Kristmundur veiktist illilega
þegar hann var ungur og missti
verulega mikla heyrn. Það háði
honum alla tíð. En hann er marg-
slungin manneskja sem sagði allt-
af það sem honum bjó í brjósti,“
segir Hjalti Pálsson sem kynntist
honum þegar hann var ungur sagn-
fræðinemi. „Á lokaári mínu í sagn-
fræði þá kom ég á safnið til að tala
við hann. Það barst í tal að ég vissi
ekki hvað ég ætlaði að taka til loka-
prófs. Kristmundur var með efni
í handraðanum sem hann sagðist
ekki hafa tíma til að sinna og lét
mig hafa það. Lét mig líka fá allar
heimildir sem voru til um efnið á
safninu. Prófessorinn minn þurfti
ekki að hafa fyrir því að sinna mér
neitt, slapp mjög vel við það. Þessi
kynni okkar urðu til þess að honum
fannst ég geta dugað til að verða
bókavörður á safninu. Hann taldi
sig bera ábyrgð á mér og lagði
stranglega fyrir mig að ef ég væri
að skrifa eitthvað þá ætti ég að sýna
sér það. Hann tók mig á hné sér í
óeiginlegri merkingu, benti mér á
alls konar orðaklúður og setninga-
skipun. En það varð mér til gagns
og það var hlýja undir skrápnum,“
segir Hjalti.
Sölvi tekur undir með Hjalta.
„Kristmundur hrósaði ef honum
fannst vel gert en var ómyrkur í máli
ef svo var ekki. Ég get tekið undir
það sem Hjalti segir, það má segja
að hann hafi flengt mann. Maður
fékk stílana alla rauða til baka og
svo þegar maður fór að bera sig
aumlega þá fann hann það til sem
þó var vel gert. En þetta var hollt
þeim sem ætlaði sér að gefa eitthvað
út á prenti.
Það eru til margar sögur af
honum. Hann var trúnaðarmaður
landsprófsnefndar í áratug og leysti
kennara af í yfirsetu í landsprófi.
Þegar Kristmundur leysti af þá
fórum við að hvíslast á því hann
heyrði ekkert. Hvað heitir Japans-
keisari? spurði ég félaga minn, hann
Snorra Björn, sem sat fyrir aftan mig
og svaraði stundarhátt: Hirohito!
Allir nemendur í landsprófi heyrðu
þetta einnig og því voru nemendur
á Sauðárkróki óvenju fróðir um Jap-
anskeisara það árið,“ segir Sölvi frá.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Orðinn hundrað
ára og gefur út bók
Kristmundur Bjarnason á Sjávarborg varð hundrað ára 10. janúar
síðastliðinn og gefur út bernskuminningar sínar, Í barnsminni. Hjalti
Pálsson og Sölvi Sveinsson segja frá bókinni og sögur af Kristmundi.
Kristmundur tekur við fyrsta eintakinu af nýju
bókinni sinni. Með á myndinni er Hjalti Pálsson.
Nafn Arnheiðar Eyþórsdóttur var dregið úr réttum lausnum jólamyndagát-
unnar og fær hún í vinning gjafakort í Bónus að upphæð 20.000 krónur.
Rifja upp
alvöru baráttu
Kjarabaráttan er og
verður fyrirferðar-
mikil í janúar og á
komandi ári. Til að
setja sig í gírinn má
því rifja upp kjörin
við Axlarfjörð og
þroskasögu Sölku
Völku, Arnalds, Sigur-
línu og Steinþórs.
Áfram Ísland!
Stórmót í hand-
bolta er árlegur
viðburður. Ísland
lék sinn fyrsta leik
í gær gegn Króatíu
og Spánverjum á
morgun. RÚV hefur
sýningarréttinn að
mótinu og ætlar að
vera með HM-stofu
bæði fyrir og eftir
leik. Það þarf ekkert
mikið meira í janúar.
Sumarfrí í janúar
Helgin byrjaði
á að ég
horfði á
strákana
mína í
Körfubolta-
kvöldi þar sem
ég er í sumarfríi.
Restin fer í að huga að
nýfæddri dóttur og unn-
ustu heima í slökun.
Garðar Örn Arnarsson,
framleiðandi á Stöð 2 Sport
Lotta og stuð í
Tjarnarbíói
Leikhópurinn
Lotta sýnir
Rauðhettu í
Tjarnarbíói um
helgina. Bæði
klukkan 13 og
15. Leikhópurinn
verður í Tjarnarbíói
út janúar áður en
hann fer út á land
til að sýna á yfir 20
stöðum.
1 2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN
1
2
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
0
2
-4
C
3
0
2
2
0
2
-4
A
F
4
2
2
0
2
-4
9
B
8
2
2
0
2
-4
8
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
1
2
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K