Fréttablaðið - 12.01.2019, Blaðsíða 12
Nánari upplýsingar og skráning á gallup.is/vidburdir/umhverfisradstefna
18. janúar 2019, 09.00-11.15, Harpa, Norðurljós
Umhverfisráðstefna
Ávarp umhverfis- og auðlindaráðherra
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
Kynning á niðurstöðum Umhverfiskönnunar Gallup 2018
Ólafur Elínarson, sviðsstjóri markaðsrannsókna hjá Gallup á Íslandi
Hvernig sjáum við framtíðina?
Örerindi frá samstarfsaðilum og Höllu Hrund Logadóttur frá Arctic Initiative
Ráðstefnustjóri: Arna Frímannsdóttir, sérfræðingur á greiningarsviði Gallup á Íslandi
Dagskrá
Sýndarveruleiki í bíla
Bifreiðarisinn Audi kynnti Holoride
til leiks. Það er tækni sem miðar að
því að færa sýndarveruleikann
í baksæti allra bifreiða. Notkun
sýndarveruleikagleraugna á síður
að valda bílveiki en skjáir.
Snjallklósett
Hið gamalgróna fyrirtæki Kohler
sýndi ráðstefnugestum Kohler Numi
2.0. Nýtt snjallklósett. Sumir myndu
segja snjallvæðingu komna út fyrir
öll velsæmismörk en klósettið er
útbúið hreinsunar- og þurrkunar-
búnaði sem lagar sig að notand-
anum, hituðu sæti og meira að segja
stafræna aðstoðarmanninum Alexa.
Það allra
áhugaverðasta
frá CES 2019
Stærstu neytendatæknisýningu heims lauk í gær.
Hún fer fram árlega í Las Vegas. Áframhaldandi
snjallvæðing heimilisins, hleðslutækni og sjón-
vörp voru á meðal þess sem stóð upp úr í ár.
TÆKNI
Ekki kjöt
Það var ýmislegt fleira til sýnis en
snjalltæki, gler og málmur. Im-
possible Foods kynnti Impossible
Burger 2.0 á CES sem er uppfærð
útgáfa af vegan-hamborgaranum
Impossible Burger. Borgarinn virð-
ist hafa platað marga ráðstefnugesti
og þykir bæði afar bragðgóður og
nauðalíkur hefðbundnu, umhverfis-
spillandi nautakjöti. „Þrátt fyrir að
vera gerður úr plöntupróteinum
lítur hann út, bragðast, eldast og
er með sömu áferð og nautakjöts-
borgari. Kolefnisfótsporið er hins
vegar mun minna,“ sagði blaða-
maður Engadget.
Myndavélasleðar
Snjallsímaframleiðendur keppast
við að ná sem mestum hluta fram-
hliðarinnar undir skjá. Á síðustu
misserum hafa framleiðendur
komið framhliðarmyndavélum
og skynjurum fyrir í hökum (e.
notches) á skjánum en nýlega hafa
kínverskir framleiðendur sett
eins konar sleða á síma
sína. Þá getur nær öll fram-
hliðin farið undir skjá og
myndavélinni er svo bara
rennt upp þegar þörf er á.
Honor kynnti einn slíkan á
CES, Magic 2.
MicroLED í stað OLED
Samsung, leiðandi afl í
skjátækni, kynnti risa-
vaxið 75 tommu sjón-
varp sem styðst ekki
við hina vinsælu OLED-
tækni heldur MicroLED.
Samkvæmt The Verge er
útlit fyrir að MicroLED sé
framtíðin. Það bjóði upp
á jafngóð eða betri mynd-
gæði en OLED og sé ekki hrjáð
sömu göllum. Þá kynnti Sam-
sung einnig einingasjónvarp, sem
hægt er að stækka eða minnka, með
sömu skjátækni.
Þýðingarmaskína Google
Google kynnti nýja viðbót við staf-
ræna aðstoðarmanninn Google Ass-
istant. Með hjálp Google Translate
getur aðstoðarmaðurinn nú þýtt
samtöl á mismunandi tungumálum
Hér sést OLED-sjónvarpið frá LG á leið úr kassanum. NORDICPHOTOS/GETTY
Það er nákvæmlega
ekkert kjöt á þessu
grilli. MYND/IMPOS-
SIBLE FOODS
Svona gæti gangandi bíll
Hyundai litið út.
Snjallkisuklósett
Ef lesendum þykir það fara yfir strikið
að framleiða snjallklósett ættu þeir
að hætta að lesa hér. Fyrir hina, þá
gæti verið gaman að vita að Purr-
Song kynnti nýtt snjallkattaklósett
er kallast LavvieBot. Það hreinsar
katta sandinn sjálft og eyðir lykt, gerir
greinarmun á milli katta og tengist
veraldarvefnum.
Mun smærra tölvuhleðslutæki
Hleðslutæki fyrir fartölvur eru oftast
nær stór og klunnaleg og það getur
verið leiðinlegt að pakka þeim niður í
fartölvutöskuna. Anker sýndi Power-
Port Atom PD 1. Það er nýtt USB-C
fartölvuhleðslutæki, sem virkar með
fjölmörgum fartölvum eins og til
dæmis nýju MacBook Air-tölvunum,
og er álíka stórt og snjallsímahleðslu-
tæki.
í rauntíma. Þýðingin er hins vegar
ekki fullkomin en eins og margir
ættu að þekkja tekur Google Trans-
late þó stöðugum framförum.
Gönguþjarkur
Samsung sýndi prufuútgáfur af
vörum úr nýrri línu sem kallast
GEMS og er hönnuð til þess að
aðstoða fólk við að ganga. GEMS-H
er flaggskipið í línunni og er eigin-
legur gönguþjarkur sem á að auð-
velda fólki að ganga um 23 prósent.
Aðstoðarvélmenni
Samsung, sem kemur
merkilega oft fyrir á þess-
ari einu síðu, sýndi einnig
aðstoðarvélmennið Bot
Care. Það er hvítt og krútt-
legt og getur fylgst með
svefni, mælt púls og jafnvel
hringt í neyðarlínuna eða
fjölskylduna þegar það
skynjar að þú hafir dottið
svo fátt eitt sé nefnt.
Gangandi bíll
Hyundai reynir að
finna upp hjólið á
nýjan leik, eða kannski
bara alls ekki, og kynnti
hugmynd að nýjum bíl
er kallast Elevate. Bíllinn
er hugsaður fyrir erfitt færi og
er með risavaxnar lappir líkt
og padda auk hefðbundinna dekkja.
Sjálfhlaðandi úr
Mörg nenna ekki að fá sér snjallúr
því þau vilja ekki þurfa að hlaða
enn eina græjuna. Heilsusnjallúrið
Matrix Powerwatch 2 er hugsað
sem svar við því ákalli og fullyrða
framleiðendur að það gangi fyrir
sólarorku og hita.
Þráðlaust hleðsluhulstur
Eigendur iPhone-síma sem ekki
fengu AirPods eða önnur þráðlaus
heyrnartól í jólagjöf þurfa enn að
pirra sig á því að geta ekki bæði
hlaðið símann og hlustað á tónlist
á sama tíma. Þessu ætlar Mophie
að breyta og kynnti hleðsluhulstur
fyrir iPhone X, XS Max, XS og XR
sem hleður símann með þráðlausri
hleðslutækni.
Upprúllað sjónvarp
Tæknirisinn LG sýndi glæsilegt
OLED-sjónvarp sem ætti að kæta
þau sem aðhyllast mínímalískan
lífsstíl. Auk mikilla myndgæða er
hægt að rúlla skjá LG OLED TV R
sjónvarpsins saman í snyrtilegan,
svartan kassa þegar notkun er hætt.
Þannig er eiginlega hægt að fela
sjónvarpið.
Snjallkisuklósettið frá
PurrSoft hreinsar sig sjálft,
gerir greinarmun á milli
katta og er tengt veraldar-
vefnum.
Bot Care.
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
1 2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
2
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
0
2
-3
D
6
0
2
2
0
2
-3
C
2
4
2
2
0
2
-3
A
E
8
2
2
0
2
-3
9
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K