Fréttablaðið - 12.01.2019, Page 12

Fréttablaðið - 12.01.2019, Page 12
Nánari upplýsingar og skráning á gallup.is/vidburdir/umhverfisradstefna 18. janúar 2019, 09.00-11.15, Harpa, Norðurljós Umhverfisráðstefna Ávarp umhverfis- og auðlindaráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson Kynning á niðurstöðum Umhverfiskönnunar Gallup 2018 Ólafur Elínarson, sviðsstjóri markaðsrannsókna hjá Gallup á Íslandi Hvernig sjáum við framtíðina? Örerindi frá samstarfsaðilum og Höllu Hrund Logadóttur frá Arctic Initiative Ráðstefnustjóri: Arna Frímannsdóttir, sérfræðingur á greiningarsviði Gallup á Íslandi Dagskrá Sýndarveruleiki í bíla Bifreiðarisinn Audi kynnti Holoride til leiks. Það er tækni sem miðar að því að færa sýndarveruleikann í baksæti allra bifreiða. Notkun sýndarveruleikagleraugna á síður að valda bílveiki en skjáir. Snjallklósett Hið gamalgróna fyrirtæki Kohler sýndi ráðstefnugestum Kohler Numi 2.0. Nýtt snjallklósett. Sumir myndu segja snjallvæðingu komna út fyrir öll velsæmismörk en klósettið er útbúið hreinsunar- og þurrkunar- búnaði sem lagar sig að notand- anum, hituðu sæti og meira að segja stafræna aðstoðarmanninum Alexa. Það allra áhugaverðasta frá CES 2019 Stærstu neytendatæknisýningu heims lauk í gær. Hún fer fram árlega í Las Vegas. Áframhaldandi snjallvæðing heimilisins, hleðslutækni og sjón- vörp voru á meðal þess sem stóð upp úr í ár. TÆKNI Ekki kjöt Það var ýmislegt fleira til sýnis en snjalltæki, gler og málmur. Im- possible Foods kynnti Impossible Burger 2.0 á CES sem er uppfærð útgáfa af vegan-hamborgaranum Impossible Burger. Borgarinn virð- ist hafa platað marga ráðstefnugesti og þykir bæði afar bragðgóður og nauðalíkur hefðbundnu, umhverfis- spillandi nautakjöti. „Þrátt fyrir að vera gerður úr plöntupróteinum lítur hann út, bragðast, eldast og er með sömu áferð og nautakjöts- borgari. Kolefnisfótsporið er hins vegar mun minna,“ sagði blaða- maður Engadget. Myndavélasleðar Snjallsímaframleiðendur keppast við að ná sem mestum hluta fram- hliðarinnar undir skjá. Á síðustu misserum hafa framleiðendur komið framhliðarmyndavélum og skynjurum fyrir í hökum (e. notches) á skjánum en nýlega hafa kínverskir framleiðendur sett eins konar sleða á síma sína. Þá getur nær öll fram- hliðin farið undir skjá og myndavélinni er svo bara rennt upp þegar þörf er á. Honor kynnti einn slíkan á CES, Magic 2. MicroLED í stað OLED Samsung, leiðandi afl í skjátækni, kynnti risa- vaxið 75 tommu sjón- varp sem styðst ekki við hina vinsælu OLED- tækni heldur MicroLED. Samkvæmt The Verge er útlit fyrir að MicroLED sé framtíðin. Það bjóði upp á jafngóð eða betri mynd- gæði en OLED og sé ekki hrjáð sömu göllum. Þá kynnti Sam- sung einnig einingasjónvarp, sem hægt er að stækka eða minnka, með sömu skjátækni. Þýðingarmaskína Google Google kynnti nýja viðbót við staf- ræna aðstoðarmanninn Google Ass- istant. Með hjálp Google Translate getur aðstoðarmaðurinn nú þýtt samtöl á mismunandi tungumálum Hér sést OLED-sjónvarpið frá LG á leið úr kassanum. NORDICPHOTOS/GETTY Það er nákvæmlega ekkert kjöt á þessu grilli. MYND/IMPOS- SIBLE FOODS Svona gæti gangandi bíll Hyundai litið út. Snjallkisuklósett Ef lesendum þykir það fara yfir strikið að framleiða snjallklósett ættu þeir að hætta að lesa hér. Fyrir hina, þá gæti verið gaman að vita að Purr- Song kynnti nýtt snjallkattaklósett er kallast LavvieBot. Það hreinsar katta sandinn sjálft og eyðir lykt, gerir greinarmun á milli katta og tengist veraldarvefnum. Mun smærra tölvuhleðslutæki Hleðslutæki fyrir fartölvur eru oftast nær stór og klunnaleg og það getur verið leiðinlegt að pakka þeim niður í fartölvutöskuna. Anker sýndi Power- Port Atom PD 1. Það er nýtt USB-C fartölvuhleðslutæki, sem virkar með fjölmörgum fartölvum eins og til dæmis nýju MacBook Air-tölvunum, og er álíka stórt og snjallsímahleðslu- tæki. í rauntíma. Þýðingin er hins vegar ekki fullkomin en eins og margir ættu að þekkja tekur Google Trans- late þó stöðugum framförum. Gönguþjarkur Samsung sýndi prufuútgáfur af vörum úr nýrri línu sem kallast GEMS og er hönnuð til þess að aðstoða fólk við að ganga. GEMS-H er flaggskipið í línunni og er eigin- legur gönguþjarkur sem á að auð- velda fólki að ganga um 23 prósent. Aðstoðarvélmenni Samsung, sem kemur merkilega oft fyrir á þess- ari einu síðu, sýndi einnig aðstoðarvélmennið Bot Care. Það er hvítt og krútt- legt og getur fylgst með svefni, mælt púls og jafnvel hringt í neyðarlínuna eða fjölskylduna þegar það skynjar að þú hafir dottið svo fátt eitt sé nefnt. Gangandi bíll Hyundai reynir að finna upp hjólið á nýjan leik, eða kannski bara alls ekki, og kynnti hugmynd að nýjum bíl er kallast Elevate. Bíllinn er hugsaður fyrir erfitt færi og er með risavaxnar lappir líkt og padda auk hefðbundinna dekkja. Sjálfhlaðandi úr Mörg nenna ekki að fá sér snjallúr því þau vilja ekki þurfa að hlaða enn eina græjuna. Heilsusnjallúrið Matrix Powerwatch 2 er hugsað sem svar við því ákalli og fullyrða framleiðendur að það gangi fyrir sólarorku og hita. Þráðlaust hleðsluhulstur Eigendur iPhone-síma sem ekki fengu AirPods eða önnur þráðlaus heyrnartól í jólagjöf þurfa enn að pirra sig á því að geta ekki bæði hlaðið símann og hlustað á tónlist á sama tíma. Þessu ætlar Mophie að breyta og kynnti hleðsluhulstur fyrir iPhone X, XS Max, XS og XR sem hleður símann með þráðlausri hleðslutækni. Upprúllað sjónvarp Tæknirisinn LG sýndi glæsilegt OLED-sjónvarp sem ætti að kæta þau sem aðhyllast mínímalískan lífsstíl. Auk mikilla myndgæða er hægt að rúlla skjá LG OLED TV R sjónvarpsins saman í snyrtilegan, svartan kassa þegar notkun er hætt. Þannig er eiginlega hægt að fela sjónvarpið. Snjallkisuklósettið frá PurrSoft hreinsar sig sjálft, gerir greinarmun á milli katta og er tengt veraldar- vefnum. Bot Care. Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is 1 2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 2 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 0 2 -3 D 6 0 2 2 0 2 -3 C 2 4 2 2 0 2 -3 A E 8 2 2 0 2 -3 9 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 1 2 s _ 1 1 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.