Fréttablaðið - 12.01.2019, Blaðsíða 30
Þetta er Camelot,“ segir Júlían J.K. Jóhannsson k ra f t ly f t i n g a m a ð u r sem tekur á móti blaða-manni og ljósmyndara í æfingahúsnæði Breiða-
bliks undir stúkunni á Kópavogs-
velli. „Við erum ekki í neinum ridd-
araleik, þetta var svona smá uppgjör
í gamni vegna ofnotkunar á samlík-
ingum úr goðafræðinni sem loðir
við íþróttina,“ segir hann.
Í Camelot er járnið sem Jón Páll
Sigmarsson notaði við æfingar.
Mynd af honum og fleiri afreks-
mönnum úr íþróttinni hanga á vegg.
Í þessu æfingahúsnæði æfir Júlían
fjórum til fimm sinnum í viku. Þegar
hann æfir fyrir mót eru æfingarnar
alla jafna fjögurra til fimm klukku-
tíma langar. Kærastan hans, Ellen Ýr
Jónsdóttir, æfir oft með honum og
hefur gengið vel í íþróttinni.
Kraftlyftingar hafa átt hug Júlí-
ans frá því hann var unglingur.
Hann er 25 ára gamall og æfir af
kappi fyrir næsta mót sem er í lok
janúar. Hann varð næststigahæstur
í kosningu um íþróttamann ársins.
Það er engin furða, á síðasta ári setti
Júlían heimsmet í réttstöðulyftu í
+120 kg flokki þegar hann lyfti 405
kg. Hann vann gull í réttstöðulyftu á
HM og lenti í 3. sæti í samanlögðu.
Þá setti hann Evrópumet í klassískri
réttstöðulyftu í +120 kg flokki með
Lyfti túbusjónvarpi tveggja ára
Júlían J.K. Jóhannsson, einn sterkasti maður landsins, starfar á meðferðarstofnun fyrir ungmenni, hefur gaman af
lestri skáldsagna og lærir sagnfræði í Háskólanum. Hann hvetur ungt fólk til þess að helga sig áhugamálum sínum.
„Ég var fyrsti Íslendingurinn til að fá boð á heimsleikana. Mæti í þessa risahöll í Póllandi en féll svo úr keppni. Það voru auðvitað vonbrigði, en svo heldur maður bara áfram.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Júlían við æfingar í Camelot.
finnst það undarlegt en það er hollur
og góður matur,“ segir hann og svarar
því aðspurður að hann borði um
fjögur þúsund hitaeiningar á dag.
Uppistaðan sé prótín og hann er
hrifinn af lambakjöti.
Þú ert sem sagt ekki að borða
kjúklingabringur í öll mál?
„Nei, alls ekki. Ég borða bæði
nauta- og lambakjöt og grænmeti.
Það hentar ekki alltaf því mataræði
sem Ellen þarf að fylgja en þá er bara
meira fyrir mig! Ég hef haldið mér í
svipaðri þyngd í tvö ár og er ánægð-
ur með það,“ segir Júlían.
Júlían vinnur í hlutastarfi á með-
ferðarheimilinu Stuðlum og Ellen
kærasta hans starfar á geðsviði
Landspítalans á Kleppi.
„Ég starfa sem ráðgjafi á lokaðri
deild. Auðunn Jónsson kraftlyftinga-
maður, sem æfir með mér hér, hefur
starfað á Stuðlum í 20 ár. Nú hef ég
starfað þar í tvö ár og líkar vel. Ungl-
ingarnir sem koma til okkar á lokuðu
deildina dvelja hjá okkur í um tvær
vikur. Það er í mínu hlutverki að fá
þau til að lenda. Ná áttum, nærast og
styrkja sig,“ segir Júlían.
„Sumir sem starfa á Stuðlum hafa
einhverja reynslu af eða tengingu
við fíkn. Ég nota hins vegar bak-
grunn minn, og þá ástundun íþrótta
sem ég bý að. En algjörlega án þess
að predika. Sýna heilbrigða hugsun
og vera til staðar,“ segir Júlían.
„Við Ellen eigum margt sameigin-
legt. Við kynntumst í rauninni bara
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
372,5 kg og varð með frammistöð-
unni Evrópumeistari í greininni.
„Ég keppti á sex mótum, sem er
töluvert mikið álag í þessari grein.
Þrjú mót er talið passlegt. Álagið
var kannski sérstaklega mikið vegna
þess að fjögur mótanna voru fyrri-
hluta ársins. Ég er ánægður með árið
í heildina þó að allt hafi ekki gengið
upp,“ segir Júlían sem segir nauð-
synlegt að gæta að því að vera í góðu
andlegu jafnvægi. „Maður fjárfestir
svo mikið í þessu. Setur allan sinn
tíma í þetta, mikla vinnu og skipu-
lagningu. Og þegar það gengur illa
þá fylgir stundum hausinn með. Það
getur tekið tíma að jafna sig á því að
vinna úr því. Ég var fyrsti Íslending-
urinn til að fá boð á heimsleikana.
Mæti í þessa risahöll í Póllandi en
féll svo úr keppni. Það voru auðvit-
að vonbrigði, en svo heldur maður
bara áfram,“ segir hann.
„Nú er mót fram undan svo ég
tek þunga æfingu í dag,“ segir Júlían
sem leyfir blaðamanni og ljósmynd-
ara að fylgjast með. Reykjavíkur-
leikarnir í kraftlyftingum fara fram
í Laugardalshöll þann 27. janúar.
Tíu konum og tíu körlum hefur
verið boðin þátttaka og þrír heims-
methafar verða á meðal keppenda.
Hvernig er dæmigerður dagur í
þínu lífi? Hvað borðar þú til dæmis?
„Ég byrja alla daga eins. Heima á
morgunverði og kaffibolla. Ég hlakka
alltaf til kaffibollans. Tilhugsunin fær
mig á fætur, ég borða oftast um sex
egg og haframjöl í morgunmat. En
stundum nýti ég afgang úr kvöld-
matnum deginum áður. Mörgum ↣
VIÐ ELLEN EIGUM MARGT
SAMEIGINLEGT. VIÐ
KYNNTUMST Í RAUNINNI
BARA HÉRNA Í ÆFINGA-
SALNUM.
hérna í æfingasalnum. Við eigum
sömu áhugamál sem er mjög gott
og sérstaklega af því að við eyðum
bæði tvö miklum tíma hér. Ef við
værum ekki bæði að stunda þessa
íþrótt gætum við ekki eytt jafn-
miklum tíma saman. Hún er mjög
sterk og efnileg, ég dáðist að henni
þegar hún kom hingað að æfa og féll
svo alveg fyrir henni,“ segir Júlían.
„Þetta er ekki stór salur. En hér
eyðir maður 20 tímum á viku í
æfingar og það hef ég gert í nærri
áratug. Maður gengur bara hér inn
og gerir svipaða hluti dag eftir dag
og það er alltaf jafn gaman. Við
erum mörg sem æfum hér saman
og erum miklir vinir. Ég get nánast
talið æfingafélagana til fjölskyldu,“
segir hann.
1 2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
2
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
0
2
-3
3
8
0
2
2
0
2
-3
2
4
4
2
2
0
2
-3
1
0
8
2
2
0
2
-2
F
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
1
2
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K