Fréttablaðið - 16.02.2019, Page 56
Rafvirki óskast
Straumleidir ehf rafverktaki óskar eftir að ráða rafvirkja,
góð verkefnastaða.
Áhugasamir sendi umsókn sína ásamt ferilskrá
á netfangið straumleidir@gmail.com eða í síma 8972811
Starf fagstjóra
búfjárræktar og
þjónustusviðs
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir fagstjóra
búfjárræktar og þjónustusviðs.
Um er að ræða stjórnendastarf á öðru af tveimur fags-
viðum í nýju skipuriti.
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Faglegur leiðtogi og fyrirliði teymis sem vinnur að búfjár-
rækt og þjónustu í landbúnaði.
• Fagsviðið hefur meðal annars umsjón með ræktu-
narstarfi búfjárkynja, almennri þjónustu og ráðgjöf til
landbúnaðar
• Fagstjóri ber lykilábyrgð á stýringu mannauðs og gætir
þess að ráðgjafar á sviðinu nýtist sem best fyrir heildina
• Fagstjóri ber ábyrgð að innan teymisins séu verkefni og
ráðgjöf markviss.
Menntunar og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á
sviði búvisinda, raungreina, eða náttúruvísinda æskileg
• Stjórnunarreynslu krafist
• Þekking á verkefnastjórnun er kostur
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Góðir samskiptahæfileikar.
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á
landbúnaði í sínum víðasta skilningi og hefur metnað og
frumkvæði til að vinna að ráðgjafastarfsemi RML.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki
í eigu bænda og sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land.
Starfsemin er dreifð um landið á 13 starfsstöðvum. Við
bendum áhugasömum á heimasíðu fyrirtækisins www.
rml.is þar sem sótt er um starfið, en þar er einnig hægt að
kynna sér starfsemina enn frekar.
Umsóknarfrestur er til og með 5. mars.
Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson klk@rml.is
og Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir geh@rml.is
Leikskólastjóri Holti
Reykjanesbær auglýsir starf leikskólastjóra við leikskólann Holt laust til umsóknar. Leikskólinn er
fjögurra deilda með um 95 börn á aldrinum tveggja til sex ára. Í skólanum er starfað í anda Reggio Emilia.
Einkunnarorð skólans eru gleði, virðing, sköpun og þekkingarleit.
Leikskólinn er staðsettur þar sem stutt er í skemmtileg og fjölbreytt útivistarsvæði. Útinámssvæði
er í nálægð skólans sem byggt var upp af leikskólum og grunnskólanum í hverfinu. Holt hefur verið
þátttakandi í Evrópusamstarfi Erasmus+ og eTwinning og hlotið viðurkenningar fyrir framúrskarandi
verkefni. Leikskólinn er einnig þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi leikskóli á vegum Embættis
landlæknis. Holt hefur fjórum sinnum fengið Grænfánann.
Leitað er að metnaðarfullum stjórnanda sem býr yfir leiðtogahæfileikum og hefur góða þekkingu á
leikskólastarfi.
Starfssvið
• Vera faglegur leiðtogi
• Bera faglega og rekstrarlega ábyrgð á starfi
leikskólans, stjórna daglegri starfsemi hans
og hafa forgöngu um mótun og framgang
stefnu leikskólans
• Vinna náið með starfsfólki að því að skapa
frjótt námsumhverfi þar sem vellíðan er tryggð
og styrkleiki hvers og eins fá að njóta sín
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s.
ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun
• Bera ábyrgð á samstarfi við aðila
skólasamfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
• Leikskólakennaramenntun
• Framhaldsskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af stjórnun og rekstri
• Áhugi og reynsla í að leiða þróunarstarf
• Góðir samskipthæfileikar og
sveigjanleiki í starfsháttum
• Framsækni og vilji til að leita nýrra leiða
í skólastarfi
• Hæfni í mannlegum samskiptum
Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2019.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsókninni fylgi starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags stjórnenda í leikskólum.
Umsækjendur eru beðnir að sækja um rafrænt á ráðningarvef Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is undir
Laus störf.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir leikskólafulltrúi Reykjanesbæjar
ingibjorg.b.hilmarsdottir@reykjanesbaer.is
Matreiðslumeistari
eða einstaklingur með reynslu í matreiðslu óskast til
starfa á hjúkrunarheimilið Fellsenda. Um er að ræða
fullt starf, unnar eru 10 tíma vaktir og önnur hvor helgi.
Í starfinu felst matreiðsla, framreiðsla á mat, bakstur,
frágangur í eldhúsi og pantanir.
Nánari upplýsingar veitir,
Jóna Helga Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
Sími: 863 5090 / 433 1805 jona@fellsendi.is
Hjúkrunarheimilið Fellsendi,
371 Búðardal
1
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:0
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
5
7
-5
F
8
0
2
2
5
7
-5
E
4
4
2
2
5
7
-5
D
0
8
2
2
5
7
-5
B
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
1
5
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K