Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Side 4

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Side 4
4 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2017 Á aðventunni, tíma ljóssins, vakna minningar um hátíðlega og tilfinningaríka reynslu af barnsfæðingu sem minna á list- rænar hliðar ljósmóðurstarfsins. Það fer því vel á því að í Ljós- mæðrablaðinu sem kemur út á þessum tíma sé hrundið af stað nýrri aðferð við að velja forsíðu blaðsins sem mun næstu ár vera tileinkuð listinni og ljósmóðurfræðunum. Listaverkið á fyrstu forsíðunni sem nefnist Fléttukjóllinn er skapað undir áhrifum meðgöngu og fæðingar af listakonunni og ljósmóðurnemanum Sunnu Maríu Schram. Sunna treysti innsæinu þegar hún ákvað að verða ljósmóðir enda segir hún snertiflöt við hugmyndafræði þessara tveggja faga, myndlistar og ljósmóðurfræði, vera augljósan. Sagt er nánar frá verkinu og listakonunni í blaðinu sem mun útnefna aðra listakonu fyrir næstu forsíðu. Í síðasta ritstjórnarpistli var nefnt að haldið yrði áfram að víkka efnistök blaðsins. Í því felst að taka þátt í gagnrýnni, þverfaglegri og þjóðfélagslegri umræðu, fjölga fræðigreinum á sviði ljósmóðurfræða og kynheilbrigði. Ritstjórnin reynir að standa við sitt með því efni sem hér er á boðstólum. Þverfræðileg umræða er mikilvæg, ekki síst milli ljósmóður- fræðinnar og systurgreinarinnar hjúkrunarfræði. Það er ánægu- legt að aðalkennarar ljósmæðra um kven- og kynheilbrigði síðustu áratugina og prófessorar í hjúkrunarfræði við Háskól- anum eru báðir með framlag í þessu blaði en önnur ritrýnda greinin í blaðinu er eftir Herdísi Sveinsdóttur um rannsókn hennar um tíðaverki ungra kvenna. Síðan er viðtal við Sóleyju Bender sem segir frá tillögum nefndar um endurskoðun laga frá 1975 sem fjalla um kynlíf, fóstureyðingar og ófrjósemis- aðgerðir. Miklar samfélagslegar breytingar hafa orðið á þeim rúmlega 40 árum síðan lögin voru sett. Tillögurnar þykja frekar róttækar sem skapar nauðsynlega umræðu í samfélaginu og Ljósmæðrablaðinu finnst mikilvægt að taka þátt í. Sóley segir frá helstu breytingum og forsendum, til dæmis um orðanotk- unina; þungunarrof eða fóstureyðing, ákvörðunarrétt fólks um barneignir og mikilvægi þess að afmá alla mismunun. Hin ritrýnda greinin er eftir Valgerði Lísu Sigurðardóttur sérfræðiljósmóður og doktorsnema. Í greininni fjallar hún ásamt samstarfsfélögum um Ljáðu mér eyra þá merkilegu meðferðarþjónustu fyrir konur með erfiða reynslu af barns- fæðingu, sem sett var á stofn á Landspítala fyrir 15 árum. Nú er komið að því að efla hana með rannsóknum, skoða hvað einkennir þær konur sem leita aðstoðar með gagnsemi og þróun viðtalsmeðferðar fyrir augum. Á samfélagsmiðlum víða um heim stendur yfir mikil bylgja þar sem færðar eru upp á yfirborðið sögur af kynbundnu- og kynferðisofbeldi eða áreitni og áhrifum þess á konur. Umræðan er hávær hér heima, og veldur usla. Hún hefur haft pólitísk áhrif, stjórnarslit og kosningar hafa farið fram. Skömminni er skilað, leyndarhyggju er hafnað – við #höfum hátt. Fyrirmynd ljósmæðra um að láta í okkur heyra og taka þátt í þjóðsfélagsumræðunni, er ljósmóðurneminn Inga María Hlíðar Thorsteinson. Hún skrifaði pistilinn Ekki þegja á romur.is í lok nóvember sem birtist síðar í Kvennablaðinu. Með leyfi Ingu Maríu, birtist hann hér með smá viðbótum. Skrifin minna okkur á hvað hugmyndafræði ljósmóðurstarfsins og myndun tengsla við konur og fjölskyldur, fellur vel að áfallamiðaðri umönnun, nærgætni og öryggi sem allar barnshafandi konur ættu að finna hjá ljósmæðrum. Ljósmæður fara víða til að leita sér þekkingar. Í þessu blaði er sagt frá Alþjóðaráðstefnu ljósmæðra sem haldin var í Toronto í Kanada í júní 2017. Fulltrúar okkar í alþjóðasamskiptum á vettvangi Ljósmæðrafélagsins segja frá spennandi verkefnum sem íslenskar ljósmæður taka þátt í, við birtum hugleiðingar og greinar ljósmæðra og fréttir af þeim úr daglegu lífi og starfi. Ljósmæðranemar eru líka á faraldsfæti og efla sig innan og utan námsins. Nemaverkefnið í þessu blaði er ferðasaga á slóðir Inu May Gaskin, með lýsingum á spennandi námskeiði og ólíkri menningu sem hægt er að læra af og nýta í íslensku umhverfi. Umræðuefni Ljósmæðrablaðsins með list og vísindi í huga eru margvísleg. Segja má að í ljósmóðurfræðinni séum við sí og æ að fjalla um menningu barneigna, kynheilbrigði, þekk- ingu og reynslu líkama og sálar af barnsfæðingu, jákvæðra og neikvæðra áhrifa fyrir eða eftir barnsburð; um hvort af honum verður eða komið er í veg fyrir fyrir hann. Í ljósmóðurheitinu felst svo að móðir aðstoði barnið til að komast í ljósið og lifa lífinu. Ljósmæðrablaðið óskar lesendum sínum gleðilegra hátíða og friðsældar á nýju ári. LIST OG VÍSINDI Ólöf Ásta Ólafsdóttir, ritstjóri Ljósmæðrablaðsins R I T S T J Ó R N A R P I S T I L L

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.