Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 26

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 26
26 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2017 Kæru ljósmæður Nú styttist í 100 ára afmæli Ljósmæðrafélags Íslands árið 2019. Á aðalfundi fyrir nokkrum árum var stofnuð ritnefnd bókar með nýju ljósmæðratali sem myndi vera gefið út á afmælisárinu. Ljósmæðra- talið verður sjálfstætt framhald á fyrra tali sem var gefið út 1984. Auk þess verður bætt við sögu Ljósmæðrafélags Íslands og ljós- mæðrafagsins til dagsins í dag. Í ritnefnd voru, Álfheiður Árnadóttir, Inga Sigríður Árnadóttir, Harpa Ósk Valgeirsdóttir og formaður félagsins Áslaug Valsdóttir. Erla Dóris Halldórsdóttir sagn- og hjúkrunarfræðingur var ráðin til að skrá söguna og síðan bættist Ólöf Ásta Ólafsdóttir við sem ritstjóri. Bókin mun skiptast í þrjá hluta; stéttartal frá árinu 1983, saga Ljós- mæðrafélags Íslands frá og með 1979 og þróun menntunar, starfs og rannsókna í ljósmóðurfræði frá sama tíma. Nefndin er búin að vinna mikla grunnvinnu og nú förum við að kalla eftir upplýsingum og myndum frá ykkur. Eftir ármótin mun verða settur inn tengill á www. ljosmaedrafelag.is þar sem ljósmæður geta sent inn upplýsingar um sig og mynd fyrir talið. Þar verður einnig hægt að forpanta bókina en hún mun verða gefin út í innbundinni hátíðarútgáfu á afmælisárinu sjálfu. Eftir það mun vera hægt að nálgast kiljur og rafrænar útgáfur. Þegar bókin er forpöntuð er greitt ákveðið gjald, nokkurs konar áskriftargjald, sem mun standa straum af kostnaði við útgáfuna. Nú hvetjum við allar ljósmæður einar sér, saman í sínu holli eða á vinnustað að rifja upp og segja sögur, finna góðar myndir frá útskrift eða úr starfi og senda okkur. Öll ráð eru vel þegin um hvað ljós- mæðrum finnst eiga heima í bókinni, í tilefni þessa merka áfanga í sögu okkar. Fyrir hönd ritnefndar Álfheiður Árnadóttir Inga Sigríður Árnadóttir Ólöf Ásta Ólafsdóttir „REYNSLA SEM LIFIR Í ÞÖGNINNI“ Bókaumfjöllun Fyrir tveimur árum síðan kom merkileg bók út. Bókin ber heitið Rof – frásagnir kvenna af fóstur- eyðingum og í henni segja konur frá reynslu sinni af því að fara í fóstureyðingu, eins og titill bókar- innar gefur til kynna. Höfundarnir, þær Silja Bára Ómarsdóttir og Steinunn Rögnvaldsdóttir auglýstu í fjölmiðlum eftir sögum kvenna af þessu tagi og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Rúmlega hund- rað konur settu sig í samband við þær og úr varð að 76 konur voru tilbúnar að segja sögu sína. Sögurnar eru mjög ólíkar og endurspegla vel hversu ólíka reynslu og upplifun konur eiga. Þær fjalla um kæruleysi unglingsáranna og það að vera ekki tilbúin í barneignir. Þær fjalla um konur sem langar ekki til að eignast börn og konur sem treysta sér ekki til þess að eiga fleiri börn. Þær fjalla líka um konur í flóknum og erfiðum aðstæðum, konur sem eru fegnar að hafa tekið þessa ákvörðun á sínum tíma og hafa aldrei séð eftir henni og konur sem sjá eftir því að hafa ekki fylgt eigin sannfæringu. Þær fjalla um konur sem finna fyrir létti, konur sem finna fyrir skömm, konur með samviskubit, konur með samviskubit yfir því að vera ekki með samviskubit og nánast allt þar á milli. En í sögunum má líka greina sterk sameiginleg stef eins og til dæmis að ákvörðun um að enda meðgöngu er ekki léttvæg. Einnig má greina ákveðið ákall kvennanna um skýran rétt þeirra til þess að fá að taka svo stóra ákvörðun um eigið líf á eigin forsendum. Sögunum er skipt upp í fimmtán þemu sem ná mjög vel utan um þá ólíku reynslu sem birtist í þeim. Þemun eru: aðstæður, frjósemi og getnaðarvarnir, heilbrigðiskerfið og starfsfólk, sjálfsákvörðun, eftirsjá, að kjósa að þegja, drusluskömm, niðurlæging, mistök, karlar og fóstureyðingar, þvingun og þrýstingur, fósturskaðar og -frávik, ábyrgð, rétt ákvörðun og léttir. Í bókinni er einnig að finna fræðilegan inngangskafla þar sem fjallað er um málið út frá pólitísku sjónarhorni, lagasetningar og aðstæður í öðrum löndum svo eitthvað sé nefnt. Einnig fjalla höfundar um þá leyndarhyggju sem hvílt hefur á málaflokknum áratugum og öldum saman. Þær leggja áherslu á að markmiðið með útgáfu bókar- innar hafi fyrst og fremst verið að opna umræðuna og færa þennan reynsluheim kvenna fram í dags- ljósið. Um 1000 konur fara árlega í fóstureyðingu hér á landi og því tugþúsundir íslenskra kvenna sem deila þessari reynslu. Þær segja að þrátt fyrir algengið þá mæti konur oft fordómum og ennþá sé þetta að einhverju leiti feimnismál. Það er von höfunda að þessi reynsluheimur kvenna fái pláss og merkingu í samfé- laginu en líka að konur séu ekki einangraðar í ákvarðanatöku sinni og geti fundið stuðning af sögum annarra kvenna. Það er skoðun undirritaðrar að sögurnar geti einnig nýst heilbrigð- isstarfsfólki afar vel. Ekki bara þeim sem starfa með konum sem fara í fóstureyðingar heldur í raun öllum þeim sem sinna berskjölduðu fólki í viðkvæmum aðstæðum. Sögurnar minna okkur á að þó að skjól- stæðingahópur sæki sömu meðferð þá á hver og einn einstaklingur innan hópsins sína einstöku sögu sem mótar viðkomandi og allar þær ákvarðanir sem hann tekur. Rut Guðmundsdóttir FRÁ RITNEFND BÓKAR Í TILEFNI 100 ÁRA AFMÆLIS Hluti ritnefndar á skrifstofu félagsins. F R É T T I R Ú R F É L A G S S TA R F I

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.