Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 34

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 34
34 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2017 Há tíðni á mænurótardeyfingum hjá Ljáðu mér eyra hópnum vekur athygli en hafa ber í huga að spurt var hvort konurnar hefðu einhvern tímann fengið deyfingu – ekki var tilgreint nánar hversu oft þær hefðu fengið deyfingu eða hvort þær hefðu fengið deyfingu í þeirri fæðingu sem þær upplifðu neikvætt. Næstum helmingur Ljáðu mér eyra hópsins hafði upplifað þunglyndi eftir fæðingu en sé litið til erlendra rannsókna um efnið þá virðist tíðni þess vera á bilinu 10 - 15% í flestum þeim löndum sem við berum okkur gjarnan saman við (Gavin o.fl., 2005; Thome, 2000; Woody, Ferrari, Siskind, Whiteford og Harris, 2017). Þarna er þó líklega að hafa áhrif að í erlendu rannsóknunum er tíðnin skoðuð út frá einstökum fæðingum en ekki uppsafnað eftir allar fæðingar kvenna eins og í þessari rann- sókn. Í niðurstöðum okkar er jafnframt byggt á minni kvennanna og skilgreiningu þeirra sjálfra á greiningu á þunglyndi. Tengsl andlegrar vanlíðunar og neikvæðrar fæðingarreynslu hafa fundist í fyrri rannsóknum (Boorman o.fl., 2014; Edworthy o.fl., 2008; Fenech og Thomson, 2014; Sigurdardottir o.fl., 2017) enda hafði stór hluti kvennanna sem leitaði til Ljáðu mér eyra leitað sér aðstoðar vegna andlegrar vanlíðunar. Menntunarstig hópsins er hátt þar sem rúm 80% kvennanna hafa menntun á háskólastigi. Frá Hagstofu Íslands fengust þær upplýsingar að í aldurshópnum 25-34 ára voru 39% kvenna með háskólapróf hér á landi árið 2009 en 43% kvenna ef horft er á aldurshópinn 35 - 44 ára (Education at a Glance, 2010). Í fyrri rannsóknum virðist menntunarstig ekki hafa áhrif á fæðingar- reynslu (Sigurdardottir o.fl., 2017) og getur það því ekki skýrt hvers vegna svo hátt hlutfall kvenna í þessari rannsókn hefur lokið menntun á háskólastigi. Í rannsókn Gamble o.fl. (2005) þar sem þátttakendur voru valdir eftir áfallastreitueinkennum, hafði um 40% kvenna lokið námi á háskólastigi. Möguleg skýring á háu menntunarstigi í okkar rannsóknarhópi getur verið að líklega er stór hluti hópsins af höfuðborgarsvæðinu þar sem menntunar- stig er almennt hærra samanborið við landsbyggðina (Hagstofa Íslands, 2014). Önnur möguleg skýring á háu menntunarstigi hjá þeim hópi sem leitar aðstoðar hjá Ljáðu mér eyra gæti verið sú að háskólamenntaðar konur sæki frekar upplýsingar og ráðgjöf almennt, en það samræmist innlendum og erlendum rannsóknum (Helga Gottfreðsdóttir, 2011; Fabian, Radestad og Waldenström, 2005). Ef sú er raunin, er mikilvægt að huga að því hvernig ljós- mæður geta náð til þeirra sem hafa ekki frumkvæði að því að leita sér hjálpar vegna neikvæðrar fæðingarreynslu. Langflestir þátttakenda eru giftir eða í sambúð (93,1%) en erfitt er að alhæfa um hvort hópurinn er sambærilegur við tölur frá Hagstofu um hjúskaparstöðu þar sem vitað er að verðandi foreldrar eru oft í sambúð þó það sé ekki skráð þar. Langflestar kvennanna stunda vinnu utan heimilis. Aldursdreifing hópsins er sambærileg við tölur Hagstofunnar, en meðalaldur frumbyrja á Íslandi var tæp 27 ár árið 2012 (Hagstofa Íslands, e.d.). Það er athyglivert að í gegnum árin hafa einungis 50 - 70 konur á ári (1-2%) sótt meðferð hjá Ljáðu mér eyra á meðan vísbendingar eru um að 5,0 - 5,7% kvenna hérlendis hafi neikvæða fæðingar- reynslu (Sigurdardottir o.fl., 2017). Þó gera megi ráð fyrir að einhver hluti þessa hóps leiti til annarra fagaðila, bendir margt til þess að umtalsverður fjöldi þeirra sem upplifir fæðingu neikvætt, fái ekki viðeigandi hjálp. Það má spyrja sig hvers vegna - getur verið að konur segi ekki frá neikvæðri reynslu af fæðingu? Eða eru þær ekki spurðar um upplifun sína af fæðingu? Erfitt er að segja til um ástæður þessa en ljóst er að það má gera mun betur, bæði í að greina þær konur sem hafa þörf fyrir að vinna úr fæðingarreynslu sinni og að vísa þeim með markvissum hætti í úrræði. Hér mætti líta til rannsóknar Gamble o.fl. (2005) þar sem skimunarlistar voru notaðir til að finna konur með einkenni um áfallastreitu eftir fæðingu en með því skapast tækifæri til að hefja umræðuna um fæðingarupplifun og í kjölfarið bjóða konum meðferð ef þörf er á. Ljáðu mér eyra viðtalsmeðferðin hefur staðið til boða frá árinu 1999 en ekki liggja fyrir upplýsingar um árangur hennar og er það verðugt rannsóknarefni í framtíðinni. Vert er að skoða þær rannsóknir sem sýnt hafa jákvæðan árangur meðferðar þegar hugað er að meðferðarmöguleikum fyrir konur með neikvæða fæðingarreynslu (Gamble o.fl., 2005; Meades o.fl. 2011; Di Blasio o.fl., 2015; Lavender og Walkinshaw, 1998). Í rannsókn Meades o.fl. (2011) virtist draga úr áfallastreitueinkennum hjá konum sem óskuðu eftir og fengu viðrunarviðtöl samanborið við konur með sambærileg einkenni um áfallastreitu sem ekki sóttust eftir aðstoð. Hér virðist vilji konunnar til meðferðar skipta máli fyrir árangur. Þá er vert að huga að tímasetningu viðtals en í rannsókn Gamble o.fl. (2005) og Di Blasio o.fl. (2015) var meðferð veitt á fyrstu dögunum eftir fæðingu. Erfitt er að greina á milli tegundar íhlutunar því segja má að margt sé líkt með viðrun (Meades o.fl., 2011; Lavender og Walkinshaw, 1998) og þeirri aðferð að skil- greina hugsanir og tilfinningar á blað (Di Blasio o.fl., 2015). Skilgreiningin á þeirri íhlutun sem veitt var í rannsókn Gamble o.fl., (2005) var ráðgjöf en þó má sjá í lýsingu meðferðarinnar að hún innihélt einnig viðrun, umræðu um ákveðna þætti fæðingar og stuðning frá ljósmóður. Því er ekki einfalt að segja af eða á um hvers konar íhlutun virkar eða á hvaða tímapunkti hún myndi gagnast best en hafa ber í huga að í flestum rannsóknum er það mat kvennanna sjálfra að meðferðin sem var í boði hafi verið gagnleg (Baxter o.fl., 2014). Styrkleikar og takmarkanir rannsóknar Svarhlutfall er svipað því sem almennt gerist í spurningalista- könnunum (Baruch og Holtom, 2008) en svörun var betri eftir því sem styttra var liðið frá viðtalinu. Ekki var leitað neinna upplýsinga um rannsóknarhópinn úr öðrum gagnagrunnum. Engar upplýsingar voru fengnar um þann hóp sem hafnaði þátt- töku í rannsókninni og því er ekki hægt að alhæfa að hópurinn sem tók þátt endurspegli þýðið, þ.e. hópinn sem leitar sér hjálpar hjá Ljáðu mér eyra vegna neikvæðrar fæðingarreynslu. Þá er ekki vitað hve stór hluti hópsins var barnshafandi þegar Ljáðu mér eyra viðtal fór fram en þær upplýsingar hefðu verið áhugaverðar til að öðlast betri innsýn inn í hvað einkennir hópinn og jafnvel til samanburðar við þær sem voru ekki barnshafandi þegar viðtal fór fram. Hafa ber í huga að gögnin byggja á svörum kvennanna sjálfra og hjá hluta hópsins var töluverður tími liðinn frá viðtali þegar þær fengu spurningalistann og gæti minnisbjögun (e. recall bias) þannig haft áhrif á svörin. Að lokum má nefna að í þessari rannsókn er því ekki svarað hvort einkenni þeirra sem ekki leita sér hjálpar eða svara spurningalistunum séu sambærileg við þennan hóp. Hagnýting fyrir ljósmóðurfræði Í ljósi þess að neikvæð fæðingarreynsla getur haft í för með sér neikvæð áhrif á velferð móður og barns er mikilvægt er að huga að henni sérstaklega, mögulega með reglubundinni skimun. Slík skimun fellur vel að starfssviði ljósmæðra sem eru aðalu- mönnunaraðilar í öllu barneignarferlinu hér á landi. Stór hluti kvennanna sem leitaði til Ljáðu mér eyra hafði leitað sér aðstoðar vegna andlegrar vanlíðunar og undirstrikar það mikilvægi þess að skimað sé fyrir fyrri sögu um geðheilsuvanda snemma í meðgönguvernd líkt og mælt er með í klínískum leiðbeiningum um meðgönguvernd (NICE, 2014; Embætti landlæknis, 2010). Þverfræðileg samvinna og samtal um fæðingarreynslu getur verið liður í þeim stuðningi sem veittur er bæði á meðgöngu og eftir fæðingu. Við búum nú þegar yfir þekkingu á mikilvægi þess að finna þær konur sem hafa þörf fyrir að vinna úr fæðingar- reynslunni sinni. Í framhaldinu er síðan brýnt að í boði séu viðeigandi úrræði handa þeim konum sem hafa neikvæða reynslu af fæðingu. ÞAKKIR Bestu þakkir fá konurnar sem tóku þátt í rannsókninni. Auk þess þökkum við Guðrúnu Sigríði Ólafsdóttur, Jóhönnu Valgerði

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.