Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Side 11

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Side 11
11LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2017 Skýrsla Ljósmæðrafélags Íslands var kynnt af Áslaugu Valsdóttur sem hún flutti á aðalfundi félagsins 2016 og birt var í Ljósmæðrablað- inu í 1. tölublaði 2017. Norska ljósmæðrafélagið heldur áfram að vinna að innra starfi félagsins og gera það aðlaðandi fyrir nýja félagsmenn. Erfitt hefur reynst að fá aukin stöðugildi ljósmæðra sem starfa hjá sveitarfélögum við meðgönguvernd og á fæðingarstofum og eru þær víða einar og í 20-30% stöðum að sinna meðgönguvernd. Í nýlegri könnun kom í ljós að um 36% þungaðra kvenna sækja meðgönguvernd á heilsugæslustöð en hinar fara til síns ,,fastlæge“. Klínískar leiðbeiningar fyrir heimafæðingar voru gefnar út 2012 og í framhaldinu gerðu ljósmæður samning við ríkið um greiðslur vegna heimafæðinga. Þær greiðslur ná til fæðingarhjálpar, en ekki vaktaálags og ferðakostnaðar ljósmóður. Ennfremur gengur illa að fá leyfi til að ávísa nauðsynlegum lyfjum vegna heimafæðinga og þurfa þungaðar konur sjálfar að leita til síns heimilislæknis vegna þessara lyfja og gengur það svona og svona. Fæðingar utan stofnana sem ekki voru fyrir fram ákveðnar hafa tvöfaldast á síðustu árum og er talið að nú fæðist 7 börn af hverjum 1000 utan stofnana. Menntun ljósmæðra er enn til umræðu, í dag lýkur ljósmæðranámi í tveimur af fimm skólum landsins með meistaraprófi (30 ECTS meistaraverkefni). Félagið óskar eftir því að ljósmæðranámið verði 5 ára sjálfstætt nám sem ljúki með meistaragráðu án hjúkrunarleyfis. Því hefur þingið neitað. Félagið hefur einnig rætt hugmyndir um á hvern hátt ljósmæður geta viðhaldið þekkingu sinni og hvort ástæða sé til þess að endurnýja starfs- leyfi sitt á ákveðnu árabili. Engin ákvörðun hefur verið tekin um þetta. Starfandi ljósmæður í Svíþjóð eru nú um 8000 og starfa fyrst og fremst við fæðingar og sængurleguþjónustu, mæðravernd, við kven- sjúkdóma, á unglingamóttökum, á tæknifrjóvgunardeildum, fósturrann- sóknardeildum og við rannsóknir og kennslu. Heilbrigðisyfirvöld áætla að fjöldi ljósmæðra á 100 þúsund íbúa muni aukast um 16% á tímabil- inu 2014 - 2030. Forsendur þessarra útreikninga byggja meðal annars á því að fleiri nemendur munu útskrifast sem ljósmæður frá og með árinu 2017 eða 250 á ári. Erfiðlega hefur gengið að manna stöður ljósmæðra víða um landið, sérstaklega á fæðingardeildum í Stokkhólmi þar sem álag er gífurlegt. Í mönnunarútreikningum er gert ráð fyrir að jafnvægi verði komið á um 2020. Félagið hefur eftir kosningu meðal félagsmanna ákveðið að hefja viðræður um að Ljósmæðrafélagið verði sjálfstætt félag sem semji sjálft um laun og kjör sjá nánar um þetta hér: http://www.barnmorske- forbundet.se/ . Í janúar 2013 var fæðingaskrá, mæðraverndarskrá og fósturgrein- ingaskrá sameinuð í eina ,,Barneignarskrá“ og gert er ráð fyrir að allar fæðingardeildir og mæðraverndarstöðvar verði tengdar þessari skrá á þessu ári þ.e. 2017. Mikil umræða hefur verið um fóstureyðingar og siðferðisleg gildi ljósmæðra. Umræðan komst í hámæli þegar tvær sænskar ljósmæður leituðu réttar síns vegna þess að þær neituðu að sinna fóstureyðingu, en í Svíþjóð sinna ljósmæður lyfjafóstureyðingum. Rætt er um menntun ljósmæðra í Svíþjóð eins og í hinum löndunum og í Gautaborg er í boði meistaranám til ljósmóðurréttinda og eru þar 48 nemendur. Önnur mál sem rædd voru Framkvæmdastjóri danska ljósmæðrafélagsins Jan Helmer sagði frá ambassadör verkefni félagsins sem er mjög áhugavert og spennandi. Hægt er að lesa nánar um þetta hér: http://www.jordemoderforeningen.dk/tidsskrift-for-jordemoedre/ singlevisning/artikel/giv-saa-skal-der-nok-komme-mere-tilbage . Danskar ljósmæður ræddu um verkefnið ,,Þolinmóðar ljósmæður“ sem hefur að markmiði að draga úr sjúkdómsvæðingu og óþarfa inngripum í fæðingum. Flestar fæðingardeildir landsins hafa verið heimsóttar og verkefninu hefur verið afar vel tekið. Áframhaldandi umræður urðu um rétt ljósmæðra til að taka ekki þátt í aðgerðum sem stríða gegn siðferðilegum og mannlegum gildum þeirra. Nokkur umræða skapaðist um þetta og er það svo að í Svíþjóð er þessi umönnun hluti af faglegum skyldum fagfólks og persónu- leg gildi starfsmannsins hverfa í bakgrunninn. Í Noregi, Finnlandi og Danmörku hefur það ekki verið vandamál fyrir fagfólk að neita að taka þátt í einhverju sem stríðir gegn gildum þeirra. Í Færeyjum eru fóstur- eyðingar ekki leyfðar og löggjöfin þar er frá 1933 og styður einungis fóstureyðingar af læknisfræðilegum ástæðum. Niðurstaða þessara umræðna var sú að þetta efni gæti verið áhugavert þema á ráðstefnu eða tekið fyrir á fundum félaganna. Unnið var með skjal um sameiginlega sýn NJF á störf og menntun ljósmæðra á Norðurlöndunum og vonumst við til að það verði tilbúið ekki seinna en 2019 e.t.v. fyrr. Ingela Wiklund fyrrum formaður sænskra ljósmæðra, er gjaldkeri í ICM, ráðgjafi hjá World bank og WHO og Trude Thommesen frá Noregi verður fulltrúi Norður Evrópu í stjórn ICM. Formaðurinn á miðstjórnarfundi ICM.

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.