Ljósmæðrablaðið - 01.12.2017, Page 30
30 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2017
ÚTDRÁTTUR
Inngangur: Neikvæð reynsla kvenna af fæðingu hefur talsvert verið
skoðuð innan ljósmóðurfræði síðasta áratug en rannsóknir sýna að
5 – 17% kvenna hafa neikvæða fæðingarreynslu. Þróuð hafa verið
úrræði fyrir þennan hóp í nokkrum löndum en Ljáðu mér eyra
viðtalsmeðferð hefur verið í boði á Landspítala frá árinu 1999 fyrir
konur og pör sem hafa upplifað fæðingu neikvætt eða óttast vænt-
anlega fæðingu. Tilgangur rannsóknar (fagrýni) var að skoða hvað
einkennir þann hóp kvenna sem leitar til Ljáðu mér eyra með tilliti
til bakgrunns, fæðingasögu og eigin mats á heilsu og andlegri líðan.
Aðferð: Rannsóknarsniðið er lýsandi og afturvirkt. Spurningalistar
voru sendir út til allra kvenna (n=301) sem komu í viðtal í Ljáðu
mér eyra á rúmlega fimm ára tímabili frá 2006 til 2011. Gögnin voru
greind með lýsandi tölfræði.
Niðurstöður: Svörun var 44% (n=131). Meðalaldur þátttakenda
var 34,2 ár, en 26,8 ár við fæðingu fyrsta barns. Rúm 82% höfðu
lokið námi á háskólastigi og 81% stunduðu vinnu utan heimilis. Um
96% töldu heilsu sína og andlega líðan vera góða. Tæp 66% höfðu
leitað sér aðstoðar vegna andlegrar vanlíðanar og rúmlega 40% taldi
sig hafa fengið fæðingarþunglyndi. Í fyrri fæðingum kvennanna
höfðu 73,3% fengið mænurótardeyfingu, 45,1% höfðu reynslu af
áhaldafæðingu, 34,4% af bráðakeisaraskurði og 13% af fyrirfram
ákveðnum keisaraskurði.
Umræður: Flestar konur sem leita til Ljáðu mér eyra eru með
háskólamenntun og eru giftar eða í sambúð. Margar hafa sögu
um íhlutanir í fæðingum. Einnig hafa margar kvennanna upplifað
fæðingarþunglyndi og leitað sér aðstoðar vegna andlegrar vanlíð-
anar. Mikilvægt er að ljósmæður og annað fagfólk finni þær konur
sem upplifa fæðingu sína neikvætt, hafi viðeigandi úrræði að bjóða
þeim og hvetji þær til að nota þau.
Lykilhugtök: Fæðing, fæðingarreynsla, viðtalsmeðferð, ljós-
mæðraþjónusta.
Keywords: Birth, birth experience, interview intervention, midwi-
fery practice.
ABSTRACT
Background: Negative birth experience has been a prominent rese-
arch topic within midwifery the past decade and studies show that
5-17% of women have negative birth experience. Interventions
have been developed and implemented in some countries. Since,
1999, Listen to me, an interview intervention has been offered at the
Landspitali University Hospital, for women who have experienced
birth negatively or suffer from fear of childbirth. The aim of this
paper is to present findings from an audit study, exploring character-
isitics of attending women and outcome of their births.
Methods: A questionnaire was developed and sent to all women
who had attended the Listen to me intervention (n=301) 2006-2011.
SPSS was used for data management and descriptive analysis to
present findings.
Results: Response rate was 44% (n=131). Mean age of the
participating women was 34,2 years, but 26,8 years at time of their
first birth. More than 82% had a university degree and 81% worked
outside home. Around 96% estimated their own health, physical
and mental, to be good. Almost 66% had sought help for mental
symptoms and 40% reported perinatal depression. During their
previous births 73,3% had received epidural analgesia, 45,1% had
experienced instrumental deliveries, 34,4% emergency and 13%
elective caesarean sections.
Conclusions: Women who attend Listen to me intervention are
in general well educated, married or cohabiting. History of inter-
R I T R Ý N D F R Æ Ð I G R E I N FYRIRSPURNIR: valgerds@hi.is
HVAÐ EINKENNIR ÞANN HÓP KVENNA
SEM LEITA TIL LJÁÐU MÉR EYRA
– sérhæfðrar viðtalsmeðferðar á kvennadeild Landspítala?
Ólöf Ásta Ólafsdóttir,
ljósmóðir og dósent,
Háskóla Íslands
Helga Gottfreðsdóttir,
ljósmóðir og prófessor, Háskóla
Íslands og Landspítala
Valgerður Lísa Sigurðardóttir,
sérfræðiljósmóðir á Landspítala og
doktorsnemi við Háskóla íslands
Þóra Steingrímsdóttir,
fæðingarlæknir og prófessor,
Háskóla Íslands og Landspítala
CHARACTERISTICS OF WOMEN ATTENDING LISTEN TO ME; INTERVIEW INTERVENTION
OFFERED AT THE WOMEN´S DEPARTMENT AT LANDSPITALI-UNIVERSITY HOSPITAL